Þingmenn búnir að fá launaseðilinn – Fá greidda afturvirka launahækkun

Launa­hækkun alþing­is­manna og ráð­herra er komin til fram­kvæmda. Hún tók gildi um liðin ára­mót en fyrir mis­tök voru við­bót­ar­launin ekki greidd út síð­ustu mán­uði. Það hefur nú verið leið­rétt og ráða­menn fengið aft­ur­virka greiðslu.

„Nú er kom­inn launa­seð­ill fyrir næsta mánuð. Hækkunin er komin og aft­ur­virk. Það þýðir útborguð laun með leið­rétt­ing­unni eftir skatta upp á 915 þús­und krónur (1.518.069 kr fyrir skatt með leið­rétt­ing­unni).“

Þetta skrifar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Kjarninn greindi frá því 8. apríl að laun alþing­is­manna, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og ann­arra æðstu emb­ætt­is­manna hefðu hækkað um 6,3 pró­sent frá 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Fyrir mis­tök var launa­hækk­unin hins vegar ekki greidd út síð­ustu mán­uði og því fá þing­menn og ráð­herrar hana greidda nú um mán­aða­mótin aft­ur­virka frá ára­mótum.

[adspot]Grunn­laun þing­manna hækk­uðu þá um tæpar 70 þús­und krónur á mán­uði í 1.170.569 krónur á mán­uð. Laun for­sæt­is­ráð­herra hækk­uðu um 127 þús­und krónur á mán­uði í 2.149.200 krónur á mán­uði og laun ráð­herra hækk­uðu í 1.941.328 krónur á mán­uði, eða um 115.055 krónur á mán­uði.

Skömmu áður hafði verið greint frá því að Alþingi hefði sam­þykkt að lög­á­kveðin hækkun sem var áætluð 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. jan­úar 2021. Þetta var gert vegna yfir­stand­andi aðstæðna sem rekja má til útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og þeirra miklu efna­hags­legu afleið­inga sem hún hefur í för með sér.

Hún verður í sam­ræmi við hækkun á launa­vísi­tölu Hag­stof­unnar vegna árs­ins 2019. Sú frestun hafði þó, sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarn­ans, engin áhrif á gild­is­töku launa­hækk­un­ar­innar sem frestað var í fyrra.

[links]Pírat­ar, Sam­fylk­ingin, Flokkur fólks­ins og óháði þing­mað­ur­inn Andrés Ingi Jónsson lögðu nýverið fram frum­varp sem í fólst að fella niður launa­hækkun þing­manna og ráð­herra sem tók gildi 1. jan­úar síð­ast­lið­inn og frysta laun þeirra út tíma­bilið. Fyrsta umræða um málið fór fram í fyrra­dag.

Yfir 50 þús­und manns, rúm­lega fjórð­ungur íslensks atvinnu­mark­aðar, eru sem stendur atvinnu­lausir að hluta eða öllu leyti. Í þess­ari viku hafa á fimmta þús­und manns hið minnsta misst vinn­una í hóp­upp­sögnum, að lang­mestu leyti fólk sem starf­aði hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár