Niðurstaða í máli HS Orku gegn Norðuráli í þessum mánuði

HS Orka hefur árum saman viljað losna út úr rúm­lega níu ára gömlum óhag­stæðum orku­sölu­samn­ingi vegna álvers í Helguvík, sem var aldrei byggt. Gerð­ar­dómur mun skila nið­ur­stöðu nú í nóv­em­ber.

Álverið í Helguvík er einungis byggt að hluta og verður nær örugglega aldrei sett í gang.
Álverið í Helguvík er ein­ungis byggt að hluta og verður nær örugg­lega aldrei sett í gang. Mynd: iav.is

Það mun liggja fyrir í þessum mán­uði hvort að HS Orka þurfi að standa við orku­sölu­samn­ing sem fyr­ir­tækið gerði við Norðurál vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helguvík fyrir rúmum níu árum síðan. Álverið hefur aldrei risið og íslenskir ráða­menn hafa lýst því yfir að þeir telji ekki að fleiri slík muni rísa á Íslandi. Samt sem áður hefur ekki gengið að losa HS Orku undan samn­ingnum og fyr­ir­tækið hefur ekki getað selt öðrum áhuga­sömum kaup­endum umrædda orku sem mögu­legt væri að fá úr þeim virkj­ana­kostum sem eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar á meðan að hann er í gildi. Því er um gríð­ar­lega hags­muni að ræða fyrir HS Orku. Þess utan er samn­ing­ur­inn svo óhag­kvæmur fyrir fyr­ir­tækið að verðið sem feng­ist fyrir umrædda orku frá Norð­ur­áli væri langt frá því að geta skilað við­un­andi arð­semi fyrir HS Orku.

Ásgeir Mar­geirs­son, for­stjóri HS Orku, seg­ist vona að engar frek­ari tafir verði á mál­inu og að nið­ur­staða gerð­ar­dóms, sem hefur haft málið til með­ferðar í tæp­lega tvö og hálft ár, verði end­an­leg.

Engar líkur á álveri

Full­byggt álver í Helgu­vík átti að vera með árlega fram­leiðslu­getu á bil­inu 270 til 360 þús­und tonn. Til þess að byggja stærri útgáfu þess þyrfti rúm­lega 600 megawött af orku.

Norð­urál hefur sagst hafa hug á að byggja álver í Helgu­vík í fjórum áföng­um. 150 mega­vött af orku þarf í hvern áfanga og Norð­urál hefur lýst því yfir að álverið verði ekki klárað nema að búið sé að tryggja orku fyrir tvo áfanga, alls 300 mega­vött. Helm­ingur þess átti því að koma frá HS Orku. Ekki hefur tek­ist að tryggja þá við­bót­ar­orku sem til þarf og lágt heims­mark­aðs­verð á áli á und­an­förnum árum hefur ekki skapað mik­inn hvata til þess að ráð­ast í að klára Helgu­vík­ur­verk­efn­ið.

Mich­ael Bless, for­stjóri Century Aluminum, var spurður út í Helgu­vík­ur­ál­verið á fundi með fjár­festum í til­efni af hálfs­árs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í júlí 2014. Þar sagði hann að það væri engin breyt­ing á stöðu verk­efn­is­ins á milli árs­fjórð­unga. „Það sem við virki­lega þurfum er að rík­is­orku­fyr­ir­tæk­ið, Lands­virkj­un, standi upp í leið­toga­hlut­verk í þessu verk­efni ef við ætlum að koma hlut­unum í gang í náinni fram­tíð“.

Engar líkur eru á því að rík­is­fyr­ir­tækið Lands­virkjun muni selja orku til álvers í Helguvík. Til þess þarf heims­mark­aðs­verð á áli að hækka um tugi pró­senta auk þess sem Lands­virkjun telur sig ein­ungis eiga til reiðu lítið brot af þeirri orku sem Helgu­vík­ur­ál­ver þyrfti.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sló málið síðan enn frekar út af borð­inu í lok sept­em­ber við sér­stakar umræður á Alþingi. Þar sagði hann um fyr­ir­hugað álver í Helguvík: „ Ég sé ekki að það ál­ver sé að verða sér út um raf­magn. Það virð­ist ekki vera að fæð­ast nein lausn á því og að öðru leyti þá sé ég ekki að það sé afl til að stefna á slík verk­efni á næst­unni.“ Hann bætti við að hann sæi ekki fyrir sér að álverum muni yfir höfuð fjölga á Íslandi í fram­tíð­inni.

Fyrst fyrir gerðardóm 2010

Um 150 megawött af þeirri orku sem álverið þarfn­að­ist í fyrstu atrennu áttu að koma frá HS Orku, sem und­ir­rit­aði orku­sölu­samn­ing þess efnis í apríl 2007. HS Orka getur ekki selt þá orku til ann­ars kaup­anda á meðan að hann er í gildi. Í dag, rúmum níu árum eftir að samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­að­ur, er fyr­ir­tækið því bundið inni í sam­komu­lagi með þorra þeirrar orku sem það telur sig geta fram­leitt og selt í nán­ustu fram­tíð sem virð­ist ekk­ert vera að fara að verða að veru­leika. Við­ræður stóðu yfir milli HS Orku og Century Aluminum, móð­ur­fé­lags Norð­ur­áls, í mörg ár til að reyna að höggva á hnút­inn. Þær við­ræður skil­uðu engum árangri.

Norðurál stefndi á end­anum HS Orku fyrir gerð­ar­dóm í Svíþjóð árið 2010. Nið­ur­staða hans, sem var kunn­gjörð í des­em­ber 2011, var sú að orku­sölu­samn­ing­ur­inn ætti að standa en að hann verði að skila HS Orku við­un­andi arð­semi, sem er sér­stak­lega skil­greind í nið­ur­stöð­unni. Þá hafn­aði gerð­ar­dóm­ur­inn skaða­bóta­kröfu Norð­ur­áls á hendur HS Orku vegna van­efnda á samn­ingn­um.

Í raun gátu báðir deilu­að­ilar tekið eitt­hvað jákvætt út úr þeirri nið­ur­stöðu. HS Orka var ekki skuld­bundið til að selja orku á verði sem skil­aði fyr­ir­tæk­inu ekki arð­semi og Norð­urál hélt þeim orku­sölu­samn­ingi sem var því mik­il­vægastur til að halda von­inni um álver í Helgu­vík lif­andi.

Nýtt ferli hófst 2014

Þar sem fyrri gerð­ar­dómur skil­aði í raun engri eig­in­legri nið­ur­stöðu í mál­inu hóf HS Orka nýtt gerð­ar­dóms­ferli í júlí 2014. Máls­rök voru þau að ákvæði orku­sölu­samn­ings­ins hafi ekki verið upp­fyllt og þar með sé hann ekki lengur í gildi. Norð­urál taldi þetta ekki rétt og tók til varna. Upp­haf­lega var búist er við því að mála­rekst­ur­inn gæti tekið allt að eitt og hálft ár og að nið­ur­staða myndi liggja fyrir undir lok árs­ins 2015.

Það frestað­ist og fyrir lá að nið­ur­staðan ætti að verða kunn­gjörð fyrir lok októ­ber­mán­aðar 2016. Í lok síð­asta mán­aðar óskaði gerð­ar­dóm­ur­inn eftir fresti út nóv­em­ber­mán­aðar til að kom­ast að nið­ur­stöðu og því ætti hún að liggja fyrir á allra næstu dögum eða vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár