Danir gripnir kaupæði – „Við stöndum frammi fyrir krísu“

Ler­bjerg­skóg­ur­inn mun héðan í frá fá að dafna án mann­legra athafna. Hann er hluti þess lands sem Danir hafa keypt saman til að auka líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika og draga úr áhrifum lofts­lags­breyt­inga.

Lerbjergskógurinn er nú kominn í eigu og umsjá Danska náttúrusjóðsins.
Ler­bjerg­skóg­ur­inn er nú kom­inn í eigu og umsjá Danska nátt­úru­sjóðs­ins. Mynd: Danski náttúrusjóðurinn

Sífellt fleiri Danir leggja nú pen­inga til kaupa á skóg­lendi í gegnum Danska nátt­úru­sjóð­inn (Den Danske Nat­ur­fond). Nýjustu kaup sjóðs­ins er skógur á Mið-Sjálandi, Ler­bjerg­skógur. Þar vaxa bæði lauf- og barr­tré og fram­lög almenn­ings í land­inu standa straum af kaup­unum.

„Við stöndum frammi fyrir mik­illi krísu,“ segir Povl Markus­sen, einn þeirra Dana sem kost­uðu kaupin með fram­lagi sem nemur um 40.000 íslenskum krónum. „Þetta er krísa sem ógnar bæði líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika og lofts­lag­inu. Við neyð­umst til að standa saman og gera það sem við getum til að koma okkur út úr vand­anum.“

Danski nátt­úru­sjóð­ur­inn var stofn­aður árið 2015. Hann hefur síðan þá fest kaup á landi í Danmörku með það að mark­miði að vernda þau svæði og auka hlut ósnort­innar nátt­úru á ný. Í fyrra gaf sjóð­ur­inn út 8.460 vott­orð til fólks um skóg­ar­kaup og áhug­inn hefur því stór­auk­ist frá árinu 2017 er vott­orðin voru aðeins 331. Frá stofnun hefur sjóð­ur­inn keypt um 1.750 hekt­ara lands.

Nátt­úru­sjóð­ur­inn greiddi 22,5 millj­ónir danskra króna fyrir Ler­bjerg­skóg­inn, um hálfan millj­arð íslenskra króna, og um 20 pró­sent af þeirri upp­hæð kom frá ein­stak­lingum.

„Með þessum hætti getum við end­ur­gert þá nátt­úru­legu ferla sem eru á svæð­inu og við getum einnig end­ur­gert mósaíkmynd ólíkra búsvæða svo margar ólíkar teg­undir fái aftur þrif­ist þar,“ hefur danska rík­is­út­varpið eftir Bengt Holst, for­manni Danska nátt­úru­sjóðs­ins.

Rasmus Ejrnæs, líf­fræð­ingur við Árós­ar­há­skóla og sér­fræð­ingur í líf­fræði­legri fjöl­breytni er jákvæður gagn­vart verk­efnum Danska nátt­úru­sjóðs­ins. „Við getum brugð­ist við tapi á líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika með því að vernda stærri svæði og leyfa nátt­úr­unni að ráða ferð­inni á hluta lands og í sjó.“

Hann bendir á að sam­kvæmt stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins skuli 10 pró­sent lands innan þess vera ósnortin nátt­úra. „Í dag er um það bill núll pró­sent danskrar nátt­úru ósnortin,“ segir Ejrnæs við danska rík­is­út­varpið. Því sé það rétt leið að kaupa land og leyfa nátt­úr­unni að hafa þar sinn gang og um þetta þurfi stjórn­völd að hugsa í hvert sinn sem farið er í fram­kvæmdir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár