Kenndu hvort öðru að treysta

Mæðginin María Sólrún og Magnús Maríuson standa að baki ADAM, sem er loka­kvikmynd Alþjóðlegrar barna­kvikmynda­hátíðar í Reykjavík 2018 og fer að því loknu í almennar sýningar í Bíó Paradís. Hún leik­stýrði syni sínum sem fer með aðal­hlutverk í myndinni. Hér segja þau frá því hvað þau hafa lært af hvort öðru og hvernig samstarf þeirra skilaði sér í ævintýrinu um ADAM.

Góð saman
Góð saman María Sólrún og Magnús við Balaton­vatn í fyrra­sumar, þar sem þau dvöldu við að skrifa hand­rit að næstu mynd, sem þau eru þegar komin með fram­leið­anda á. Mynd: Úr einkasafni

„Þegar Magnús hringdi í mig einn daginn frá Finnlandi og spurði hvort við ættum ekki að gera eina stuttmynd saman þá stökk ég bara með út í ævintýrið og stakk upp á að gera úr því mynd í fullri lengd, án þess að pæla hvort það væri skynsamlegt, hvort ég hefði tíma eða fjármagn til þess. Tók áhættu sem maður þorir frekar þegar maður er yngri. En ég þakka Magnúsi fyrir að taka af skarið. Og afraksturinn af ævintýrinu var síðan ADAM.“

Þannig lýsir leik­stjórinn og handrits­höfundurinn María Sólrún aðdrag­anda þess að hún og sonur hennar tóku ákvörðun um að gera í sameiningu kvikmynd í fullri lengd. Sú ákvörðun varð upphafið að nokkuð löngu, persónu­legu og lærdóms­ríku ferli fyrir þau bæði. Þau fram­leiddu myndina saman, ásamt Jim Stark. Að verk­efninu komu nokkrir af nánustu aðstand­endum þeirra mæðgina, auk þess að þeirra eigið nærumhverfi í Neukölln í Berlín er sögu­sviðið. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár