Ríkisútvarpið sendi lögmenn á nefnd Eyþórs

Tveir lög­menn sendu nefnd­inni bréf og kröfð­ust leyndar yfir áætl­un­inni 2016. Skýrslan hafði þegar verið prentuð en upp­lag­inu var eytt. Hundruð millj­óna króna tapa blasir við, ef áætl­unin stendur. Útgjöld í hróp­andi ósam­ræmi við tekjur. Stjórn­endur RÚV töldu sig hafa lof­orð mennta­mál­ráð­herra um hærri skerf. Fjár­mála­ráð­herra á öðru máli.

Skýrslan kynnt
Skýrslan kynnt Örfáum klukku­stundum áður en Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra og Eyþór Arnalds, for­maður end­ur­skoð­un­ar­nefnd­ar­innar, kynntu skýrsl­una varð upp­nám. Stjórn­endur RÚV kröfð­ust þess að áætlun árs­ins 2016 yrði leynt. Upplagi skýrsl­unnar var eytt og töl­unum, sem gefa til kynna mikið tap, var hent út. Mynd: Heiða Helgadóttir

Uppnám varð á fimmtu­dag­inn Þegar birta átti skýrslu nefndar sem fór ofan í saumana á rekstri Rík­is­út­varps­ins. Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri og sam­starfs­menn hans innan RÚV voru gríð­ar­lega óánægðir með nið­ur­stöður nefnd­ar­innar sem­leiddi í ljós gríð­ar­legan rekstrar- og efna­hags­vanda.

Skömmu áður en birta átti álitið bár­ust nefnd­inni tvö bréf frá lög­mönnum þar sem hótað var ,,eft­ir­málum” ef upp­lýs­ingar úr rekstr­ar­á­ætlun árs­ins 2016 yrðu birtar. Bréf lög­mann­anna tveggja voru mjög harð­orð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár