ASÍ, FFÍ, SA og Icelandair grafa stríðsöxina með undirritaðri yfirlýsingu

ASÍ og FFÍ munu ekki draga Icelandair Group og SA fyrir Félags­dóm eftir að síð­ar­nefndu aðil­arnir við­ur­kenndu að upp­sagnir flug­freyja hafi ekki verið „í sam­ræmi við þær góðu sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa.“

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair og Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair og Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Samsett

Icelandair Group, Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ), Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem sam­komu­lag þeirra um að ljúka deilum vegna upp­sagna flug­freyja og -þjóna Icelandair 17. júlí síð­ast­lið­inn, í miðri kjara­deilu. Kjarninn greindi fyrst frá því að slík yfir­lýs­ing væri í burð­ar­liðnum í gær­morgun. Með und­ir­ritun yfir­lýs­ing­ar­innar fellur ASÍ frá ætl­uðum mála­rekstri fyrir Félags­dómi vegna meintra brota Icelandair. Hluta­fjár­út­boð Icelandair, þar sem stefnt er að því að safna að minnsta kosti 20 millj­örðum króna til að bjarga félag­inu stendur nú yfir.

Sú yfir­lýs­ing sem send var út í dag er að efn­inu til önnur tveggja sem Drífa Snædal, for­seti ASÍ, fékk umboð til að und­ir­rita á auka­fundi mið­stjórnar ASÍ í gær­morgun.

[adspot]Hún er eft­ir­far­andi:

„Aðilar eru sam­mála um að lög­mæt og rétt við­brögð atvinnu­rek­enda og stétt­ar­fé­laga í erf­iðum og lang­dregnum kjara­deilum eigi að fara eftir þeim leik­reglum og lögum sem gilda í sam­skiptum aðila vinnu­mark­aðar og sem koma fram í lögum nr. 80/1938.

Þau við­brögð Icelandair, með stuðn­ingi SA, þegar félagið taldi von­laust að ná árangri í við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands, að segja upp öllum starf­andi flug­freyjum og flug­þjónum þann 17.7.2020 eru hörmuð enda ekki í sam­ræmi við þær góðu sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa. Icelandair telur nauð­syn­legt fyrir fram­tíð félags­ins að virða stétt­ar­fé­lög og sjálf­stæðan samn­ings­rétt starfs­fólks síns sem tryggir frið um starf­semi félags­ins á gild­is­tíma kjara­samn­inga og á meðan leitað er lausna í kjara­við­ræðum.

Aðilar munu leggja sig fram um að halda góðu sam­starfi og munu leggja sitt af mörkum til þess að end­ur­vinna og efla traust sín í milli.

[links]Með yfir­lýs­ingu þess­ari eru aðilar sam­mála um að með henni ljúki öllum deilum milli þeirra um þá atburði sem áttu sér stað í sam­skiptum þeirra þann 17.7 2020 og mun hvor­ugur aðila gera kröfur á hinn vegna þeirra.“

Undir yfir­lýs­ing­una skrifa Drífa, Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, og Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður FFÍ.

Kjarninn greindi ítar­lega frá þeim atburðum sem leiddu til þess að yfir­lýs­ingin var und­ir­rituð í frétta­skýr­ingu í morgun. Hana má lesa hér.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna und­ir­rit­unar á yfir­lýs­ing­unni er haft eftir Drífu að í nýaf­stað­inni kjara­deilu hafi Icelandair, með stuðn­ingi SA, beitt brögðum sem hafi ekki sést á Íslandi ára­tugum saman en þekk­ist víða erlendis og hafi það að mark­miði að brjóta niður stétt­ar­fé­lög og sam­stöðu launa­fólks. „Með þess­ari yfir­lýs­ingu er geng­ist við því að slíkar aðferðir eigi sér ekki pláss á íslenskum vinnu­mark­aði. Ég fagna því að hér hafi náðst nið­ur­staða aðila í milli án þess að fara fyrir dóm. Það er nauð­syn­legt fyrir alla að farið sé eftir þeim form­legu og óform­legu leik­reglum sem gilda á íslenskum vinnu­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár