Í frumvarpi um breytingar á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda, sem lögð voru fram af fulltrúum allra flokka á þingi í gær, er lagt til bann við stuðningi slíkra við nafnlausan kosningaáróður. Þar segir að stjórnmálaflokkum, kjörnum fulltrúum þeirra og frambjóðendum, sem og frambjóðendum í persónukjöri, verði gert óheimilt að „fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra.“
[links]Þeir sem brjóta gegn þessu munu sæta ótilgreindum sektum.
Í greinargerð sem fylgir frumvarpinu kemur þó skýrt fram að fulltrúarnir telji bannið einungis taka á hluta þess vandamáls sem við sé að glíma og lýtur að „mögulegum tilraunum ýmissa aðila til að hafa óeðlileg áhrif á kosningar eða draga taum tiltekinna stjórnmálaafla án þess að kjósendur geti áttað sig á hver eigi í hlut eða varað sig á annarlegum hvötum og hagsmunum sem kunna að búa að baki. Sömu vandamál geta komið upp þegar um er að ræða herferðir í þágu tiltekinna málefna án þess að þær tengist tilteknum stjórnmálasamtökum. Þessi atriði ásamt fleirum verða tekin til nánari skoðunar í áframhaldandi vinnu af hálfu stjórnvalda.“
[adspot]Ástæða þessa hluta er einföld: ekkert hefur komið fram um að stjórnmálasamtök eða frambjóðendur hafi greitt fyrir starfsemi þeirra sem birtu og bjuggu til nafnlausan kosningaáróður fyrir síðustu tvær kosningar. Óþekktir þriðju aðilar, sem voru fjármagnaðir af huldumönnum, sáu um slíkan rekstur og slíkar birtingar. Boðaðar lagabreytingar ná ekki með nokkrum hætti til slíkra.
Óeðlileg áhrif á kosningar
Í alþingiskosningum árin 2016 og 2017 var nafnlaus áróður gegn ákveðnum stjórnmálaflokkum áberandi á samfélagsmiðlum. Í mars lögðu þingmenn fjögurra stjórnmálaflokka fram beiðni um skýrslu frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um aðkomu og hlutdeild hulduaðila í kosningum til Alþingis. Þeir vildu meðal annars að komist yrði að því hverjir stóðu að nafnlausum áróðri í kringum alþingiskosningarnar 2016 og 2017 og kanna tengslin milli þeirra og stjórnmálaflokkanna sem buðu fram til Alþingis.
Í beiðninni sagði að um hafi verið að ræða „rætnar og andlýðræðislegar herferðir sem enginn vill gangast við. Á skömmum tíma höfðu tugþúsundir einstaklinga séð og dreift umræddum myndböndum og áróðri á samfélagsmiðlum (einkum á Facebook og YouTube) þar sem veist var að pólitískum andstæðingum í skjóli nafnleyndar og ráðist að þeim persónulega með ósannindum og skrumskælingum án þess að kjósendum væri ljóst hverjir stæðu á bak við áróðurinn. Þær síður sem mest voru áberandi voru annars vegar Facebook-síðurnar Kosningar 2016 og Kosningar 2017, sem beindu spjótum sínum að flokkum á vinstri væng stjórnmálanna, og hins vegar Facebook-síðan Kosningavaktin, sem beindi spjótum sínum að hægri væng stjórnmálanna.
[adspot]Í skýrslu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í kjölfar alþingiskosninganna árið 2017 kom m.a. fram að umboð eftirlitsaðila til eftirlits með ólögmætum og nafnlausum kosningaáróðri á netmiðlum væri ófullnægjandi. Athugasemdir ÖSE eru alvarlegar og renna stoðum undir mikilvægi þessarar skýrslubeiðni.“
Ekkert hægt að skoða fortíðina
Forsætisráðherra skilaði umræddri skýrslu í júní síðastliðnum. Niðurstaða hennar var að ekkert lægi fyrir um það hvaða hulduaðilar stóðu að nafnlausum áróðri í kringum alþingiskosningarnar 2016 og 2017 og ekkert lægi fyrir hvort stjórnmálasamtök sem lúta eftirliti Ríkisendurskoðunar hafi „staðið á bak við umræddar herferðir eða notið góðs af þeim þannig að slíks framlags bæri að geta í reikningum stjórnmálasamtakanna eða einstakra frambjóðenda.“ Þá væri vandséð hvað stjórnvöld geti gert til að grafast fyrir um hverjir standi á bak við þær.
Því telja stjórnvöld sig ekki hafa neina heimild, né nein úrræði, til að rannsaka eða skýra það sem í frumvarpinu sem var lagt fram í gær er kallað mögulegar tilraunir „ýmissa aðila til að hafa óeðlileg áhrif á kosningar eða draga taum tiltekinna stjórnmálaafla án þess að kjósendur geti áttað sig á hver eigi í hlut eða varað sig á annarlegum hvötum og hagsmunum sem kunna að búa að baki.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir