Stuðningur vegna greiðslu launakostnaðar á uppsagnarfresti áætlaður 27 milljarðar

Markmið stuðn­ings­ins er að draga úr líkum á fjölda­gjald­þrotum fyr­ir­tækja og tryggja rétt­indi launa­fólks.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin og þing­flokkar stjórn­ar­flokk­anna sam­þykktu í dag frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem kveður á um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Þar segir að gera megi ráð fyrir að bein útgjöld rík­is­sjóðs vegna úrræð­is­ins nemi um 27 millj­örðum. „Þegar tekið hefur verið ann­ars vegar til­lit til þess kostn­aðar sem ætla má að hefði ella fallið til vegna frek­ari nýt­ingar á hluta­starfa­leið­inni og auk­inna útgjalda Ábyrgða­sjóðs launa og hins vegar út frá því sem áætlað er að end­ur­heimt­ist vegna skatta­legra ráð­staf­ana má telja að kostn­aður við þetta úrræði verði u.þ.b. 15 ma.kr. meiri en því næmi.“

Frum­varp­inu er ætla að koma til móts við fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir veru­legri fjár­hags­legri rösk­unar á atvinnu­rekstri vegna COVID-19 far­sótt­ar­innar. Markmið stuðn­ings­ins er að draga úr líkum á fjölda­gjald­þrotum fyr­ir­tækja og tryggja rétt­indi launa­fólks, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

  • Stuðn­ing­ur­inn nemur að hámarki 85 pró­sent af launa­kostn­aði starfs­manns á upp­sagn­ar­fresti.
  • Að hámarki 633.000 krónur á mán­uði vegna launa
  • Að hámarki 85.455 krónur á mán­uði vegna líf­eyr­is­sjóðsið­gjalds­hluta atvinnu­rek­anda
  • Að hámarki 1.014.000 krónur vegna orlofs­launa sem launa­maður kann að eiga rétt á, fyrir fullt starf og hlut­falls­lega fyrir hluta­starf.
  • Stuðn­ing­ur­inn er veittur á samn­ings­bundnum upp­sagn­ar­fresti starfs­manns, þó aldrei lengur en í þrjá mán­uði.

Þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði

Enn fremur kemur fram hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að atvinnu­rek­andi þurfi að upp­fylla eft­ir­far­andi skil­yrði:

  • Uppsögn launa­manns, sem ráð­inn hafði verið fyrir 1. maí 2020, þarf að vera vegna aðstæðna sem sköp­uð­ust vegna far­ald­urs kór­ónu­veiru.
  • Meðaltal mán­að­ar­tekna atvinnu­rek­anda hafi dreg­ist saman um 75 pró­sent frá 1. mars 2020 til upp­sagn­ar­dags launa­manns miðað við fyrri tíma­bil.
  • Atvinnu­rek­andi skal ekki hafa ákveðið að greiða út arð, lækka hlutafé, greiða óum­samda kaupauka eða keypt eigin bréf eða ráð­ist í sam­bæri­legar aðgerðir frá 15. mars 2020.
  • Atvinnu­rek­andi skal ekki vera í van­skilum með opin­ber gjöld, skatta eða skatt­sektir sem komin voru á eindaga fyrir lok árs 2019 og álagðir skattar og gjöld byggj­ast ekki á áætl­unum. Hann skal hafa staðið skil á skatt­fram­tölum og fylgi­gögnum og öðrum skýrslum og skila­greinum þar með talið CFC skýrslum til Skatts­ins sl. þrjú ár áður en umsókn barst og staðið skil á árs­reikn­ingum og upp­lýst um raun­veru­lega eig­endur.
  • Bú atvinnu­rek­anda hafi hvorki verið tekið til gjald­þrota­skipta né slita.
  • Atvinnu­rek­andi skal hafa staðið skil á stað­greiðslu skatts af launum fyrir sama mánuð.

„Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að vænk­ist hagur atvinnu­rek­anda innan ákveð­ins tíma njóti það launa­fólk sem sagt er upp störfum með stuðn­ingi hins opin­bera for­gangs til sam­bæri­legs starfs og það gegndi áður og njóti áunn­inna rétt­inda í starfi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Atvinnurekandi skuldbindi sig til að greiða ekki út arð

Samkvæmt frum­varp­inu skal tekju­færa stuðn­ings­fjár­hæð­ina í skatt­skilum atvinnu­rek­enda. Hún verði nýtt til jöfn­unar taps á því ári sem stuðn­ingur fæst og til jöfn­unar yfir­fær­an­legs rekstr­ar­taps fyrri ára, eftir því sem við á. Það sem umfram er verði fært í sér­stakan sjóð meðal eig­in­fjár sem tekju­færður verður á næstu sex rekstr­ar­árum, 10 próos­ent ár hvert fyrstu tvö árin og 20 pró­sent á ári næstu fjögur árin þar á eftir.

Gert er ráð fyrir að atvinnu­rek­andi skuld­bindi sig til að gera ekki til­teknar ráð­staf­anir, svo sem að greiða út arð, fyrr en stuðn­ing­ur­inn hefur að fullu verið tekju­færður. Lagt er til að atvinnu­rek­andi geti leyst sig undan þeirri skuld­bind­ingu með því að end­ur­greiða, með verð­bótum og vöxtum, þann hluta fjár­stuðn­ings sem þá er ótekju­færður.

Úrræðið tekur til þeirra sem hófu starf­semi fyrir 1. des­em­ber 2019 og bera ótak­mark­aða skatt­skyldu hér á Íslandi. Það gildir ekki um stofn­anir, byggða­sam­lög og fyr­ir­tæki í eigu ríkis eða sveit­ar­fé­laga. Lagt er til að Skatt­ur­inn sjái um fram­kvæmd úrræð­is­ins og að umsókn­ar­ferlið verði raf­rænt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár