Í landi sem er „sprúðlandi af náttúrugæðum“ þarf að einblína á fleira en orkuskipti

„Við verndum ekki og virkjum sama foss­inn,“ segir for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar. „Þegar við ákveðum að fórna nátt­úruperlu í þágu orku­fram­leiðslu, hlýtur að vera for­gangs­at­riði að sú ákvörðun skili sam­fé­lag­inu sem bestri nýt­ingu við­kom­andi orku­lindar.“

Lambhagafossar í Hverfisfljóti. Reisa á virkjun rétt undir 10 MW í ánni og mun rennsli í fossunum skerðast.
Lamb­haga­fossar í Hverf­is­fljóti. Reisa á virkjun rétt undir 10 MW í ánni og mun rennsli í foss­unum skerð­ast. Mynd: Eldvötn – samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi

Hvati er íslensku reglu­verki til að fara í vatns­afls­virkj­anir undir 10 MW sem vekur spurn­ingar um hvort það skili far­sælum og réttum ákvörð­unum um ráð­stöfun tak­mark­aðra gæða. „Ég hef efa­semdir um að svo sé. Þegar við ákveðum að fórna nátt­úruperlu í þágu orku­fram­leiðslu, hlýtur að vera for­gangs­at­riði að sú ákvörðun skili sam­fé­lag­inu sem bestri nýt­ingu við­kom­andi orku­lindar.“

Þetta sagði Ásdís Hlökk Theó­dórs­dóttir, for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar, í erindi á Sam­orku­þingi í fyrra­dag. Tölu­verður fjöldi virkj­ana af þess­ari stærð­argráðu, rétt undir þeim mörkum sem þarf til svo að áformin fari í ferli ramma­á­ætl­unar, eru á teikni­borð­inu. Að minnsta kosti fimm slíkar eru fyr­ir­hug­aðar á Aust­ur­landi.

„Við verndum ekki og virkjum sama foss­inn,“ sagði hún og spurði hvað væri þá til ráða? Svarið felst að hennar sögn í því að beita fag­mennsku og nýta það sem skipu­lags­fræði, arki­tektúr og umhverf­is­mat bjóða upp á, til að greina mögu­leika og áhrif. Einnig þurfi að eiga sam­ráð við íbúa og aðra hags­muna­að­ila um fram­tíð­ar­sýn fyrir við­kom­andi svæði og leiðir til að vinna að þeirri fram­tíð.

Einnig þurfi að hafa reglu­verk sem styðji við þau mark­mið sem eigi að ná. „Til að mynda, ef sátt er um að virkja á til­teknu svæði í þágu orku­skipta, þá þurfa að vera leiðir til að tryggja að orkan rati í reynd til þeirra nota.“ Þannig er það ekki í dag.

Markmið um kolefn­is­hlut­leysi þarf að mati Ásdísar Hlakkar að vera leið­andi í allri ákvarð­ana­töku um land­nýt­ingu. Sama gildi um áherslu á nýtni og hringrás­ar­hugsun. „En þótt þessi mik­il­vægu mark­mið séu sett í for­grunn í skipu­lags­málum, þýðir það ekki að aðrir hags­munir og sjón­ar­mið séu látin lönd og leið. Við þurfum áfram sem endranær að miða alla skipu­lags­gerð að því að skapa gott byggt umhverfi sem heldur vel utan um líf og til­veru allra í sam­fé­lag­inu, þar sem til­lit er tekið til ólíkra þarfa íbúa og atvinnu­lífs, auk þess að gæta líf­fræði­legrar fjöl­breytni, lands­lags­verndar og fjölda ann­arra gæða og hags­muna.“

Fleira en orkuskipti þarf til

Ásdís Hlökk sagði að beita þyrfti mörgum og ólíkum sam­stilltum aðgerðum til að miða að ákveðnu marki. „Þannig er til dæmis mik­il­vægt að ein­blína ekki á orku­skipti í sam­göngum, heldur jafn­framt að tryggja skýra áherslu á sam­þætt byggðar- og sam­göngu­skipu­lag, með þéttri, bland­aðri byggð, sem ýtir undir virka ferða­máta, göngu og hjól­reiðar, og almenn­ings­sam­göngur.“ Með því náist ekki aðeins sam­dráttur í losun frá sam­göngum, heldur einnig marg­vís­legur annar dýr­mætur ávinn­ingur, svo sem í bættum loft­gæðum, auk­inni hreyf­ingu, skemmti­legra bæj­ar­lífi og minni þörf á fjár­fest­ingum í bygg­ingum og landi undir bíla og sam­göngu­mann­virki.

[links]Að mati Ásdísar Hlakkar er þörf á að yfir­fara og rýna lög um ramma­á­ætlun líkt og rík­is­stjórnin stefnir að sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála. „Í landi með gnótt tæki­færa til orku­nýt­ingar, en sem býr jafn­framt yfir miklum verð­mætum sem fel­ast í lands­lagi og ósnort­inni nátt­úru, er sér­stak­lega mik­il­vægt að lagaum­gjörð og stjórn­sýsla skili sam­fé­lag­inu sem bestum ákvörð­unum um þessi efni.“

Nokkuð „brokk­geng veg­ferð“ ramma­á­ætl­unar á und­an­förnum árum, eins og Ásdís Hlökk orðar það, sem og að það er enn ólent hvernig vind­orkunni verði best fyrir komið í reglu­verki og stefnu stjórn­valda, gefur að hennar sögn til­efni til mark­vissrar og heild­stæðrar rýni á því sem virkar og því sem bæta má í þeirri lög­gjöf.

„Við erum vel menntuð þjóð með sterka inn­viði, í landi sem er sprúðlandi af nátt­úru­gæðum og marg­vís­legum tæki­færum. Okkur á að geta farn­ast vel við þá skipu­lags­gerð og ákvarð­ana­töku um land­nýt­ingu sem framundan er í orku- og veitu­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár