„Umhverfisáhrif virkjunarinnar eru mjög lítil“

Himinn og haf er á milli afstöðu minni- og meiri­hluta Skaft­ár­hrepps er kemur að virkjun í Hverf­is­fljóti sem hefði í för með sér rask á Skaft­ár­elda­hrauni. Ýmsar stofn­anir hafa gert athuga­semdir við fyr­ir­ætl­an­irnar og spyrja: Hver er hin brýna nauð­syn?

Hverfisfljót í Skaftárhreppi.
Hverf­is­fljót í Skaft­ár­hreppi. Mynd: Skaftárhreppur

Skipu­lags­stofnun hefur stað­fest breyt­ingu á aðal­skipu­lagi Skaft­ár­hrepps vegna áform­aðrar virkj­unar í Hverf­is­fljóti. Ragnar Jónsson, eig­andi jarð­ar­innar Dals­höfða, fyr­ir­hugar að reisa allt að 9,3 MW virkjun í fljót­inu og er hug­myndin kennd við Hnútu.

[links]Aðal­skipu­lags­breyt­ingin sem og til­laga að deiliskipu­lagi vegna Hnútu­virkj­unar var sam­þykkt af meiri­hluta sveit­ar­stjórnar, öllum þremur full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks, á fundi í lok jan­úar. Þeir segja mark­mið breyt­ing­ar­innar vera að auka raf­orku­ör­yggi á svæð­inu og fram­leiða raf­magn til sölu á almennan markað.

Full­trúar Z-list­ans, Sólar í Skaft­ár­hreppi, höfn­uðu hins vegar afgreiðsl­unni og bentu á að í svörum í nafni hrepps­ins við athuga­semdum sem bár­ust frá almenn­ingi og stofn­unum skorti efn­is­leg svör. Sama svarið er gefið við hverri athuga­semd eins og sjá má í yfir 15 þús­und orða fund­ar­gerð skipu­lags­nefndar.

[adspot]

Full­trúar minni­hlut­ans bentu enn­fremur á, líkt og ítrekað var einnig gert í flestum athuga­semdum, að nátt­úru­minjar á svæð­inu njóti sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Þeim skuli ekki raskað nema að brýna nauð­syn beri til. „Engin rök hafa komið fram sem segja að það sé nauð­syn­legt að fara í þessar virkj­un­ar­fram­kvæmdir,“ sögðu full­trúar Z-list­ans á við afgreiðslu máls­ins.

Afhend­ingar­ör­yggi raf­magns í hér­að­inu hafi verið bætt til muna und­an­farin ár, m.a. með lagn­ingu jarð­strengja sem leystu af hólmi stopular loft­línur. „Þá verður ekki fram hjá því horft að raf­magns­fram­leiðsla í Hnútu­virkjun verður aldrei annað en óstöðug; far­vegur Hverf­is­fljóts verður vatns­lít­ill yfir köld­ustu mán­uði árs­ins sem þýðir að þá verður jafn­vel að stöðva fram­leiðslu vegna vatns­skorts og á sumrin þegar aur­burður er mik­ill er ráð­gert að stöðva virkj­un­ina í allt að tvo mán­uði og hleypa honum í gegnum aur­skol­un­ar­mann­virki sem verði stað­sett í meg­in­far­vegi fljóts­ins.“

Full­trúar Z-list­ans lögðu svo ríka áherslu á að öll svör sem lögð voru fram í nafni sveit­ar­stjórnar séu „ein­ungis afstaða meiri­hluta hennar“.

Hug­myndir um virkjun Hverf­is­fljóts við Hnútu eru langt frá því nýjar af nál­inni og í aðal­skipu­lagi Skaft­ár­hrepps var í fyrstu gert ráð fyrir 40 MW virkjun. Fyrstu hug­myndir fram­kvæmda­að­il­ans gerðu þó ráð fyrir 2,5 MW virkjun en í áætlun til mats á umhverf­is­á­hrifum, sem fara þurfti í sam­kvæmt ákvörðun umhverf­is­ráð­herra í kjöl­far kæru, var virkj­unin orðin 15 MW. Skipu­lags­stofnun gaf út nið­ur­stöðu sína um mats­á­ætl­un­ina árið 2008 en stuttu seinna var áformunum frestað allt þar til fyrir um fjórum árum og nú stendur til að hún verði 9,3 MW.

Virkj­un­ar­svæðið er fyr­ir­hugað í Eld­hrauni sem rann í Skaft­ár­eldum 1783-1784. Skaft­ár­eldar voru eitt mesta eld­gos Íslands­sög­unnar og þriðja mesta hraun sem runnið hefur á jörð­inni frá ísald­ar­lokum. Um þetta atriði fjall­aði Skipu­lags­stofnun sér­stak­lega í áliti sínu á mats­skýrslu fram­kvæmda­að­il­ans sem gefið var út í fyrra­sumar.

Álitið var í meg­in­dráttum nei­kvætt og var það nið­ur­staða stofn­un­ar­innar að virkjun við Hnútu myndi hafa nei­kvæð áhrif á Skaft­ár­elda­hraun sem hefði mikið vernd­ar­gildi bæði á lands- og heims­vísu. Hraunið væri jarð­minjar sem nytu sér­stakrar verndar í lögum. Þeim skuli ekki raska nema brýna nauð­syn beri til og að almanna­hags­munir séu í húfi. „Skipu­lags­stofnun telur að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð­syn fyrir röskun á Skaft­ár­elda­hrauni,“ sagði svo í álit­inu og að í ljósi sér­stöðu þess verði að gera kröfu um að sýnt verði fram á það með afdrátt­ar­laus­ari hætti í skipu­lags­gerð og áður en komi til leyf­is­veit­inga.

Rennslið hið sama og verið hefur í árhundruð

Í end­ur­teknum svörum sínum við tæp­lega tutt­ugu athuga­semdum og umsögnum sem bár­ust vegna skipu­lags­breyt­ing­anna kemur fram að meiri­hluti sveit­ar­stjórnar telji að með nýju svæði fyrir athafna- og iðn­að­ar­starf­semi við Hnútu sé sett fram stefna sem stuðli að mark­vissri þróun fyrir íbúa til fram­tíðar og að það sé jákvætt „að styðja við orku­vinnslu á end­ur­nýj­an­legri orku í sveit­ar­fé­lag­inu sem geti stuðlað að fjöl­breytt­ari atvinnu­upp­bygg­ingar og atvinnu­sköpun“. Einnig er það mat meiri­hlut­ans að fyr­ir­huguð orku­skipti sem stjórn­völd stefni að séu „ófram­kvæm­an­leg hvað þetta svæði varðar að óbreyttu“. Þá segir: „Umhverf­is­á­hrif virkj­un­ar­innar eru mjög lítil.“

Rennsl­is­breyt­ingar þær sem full­trúar Z-list­ans og fleiri vekja athygli á og telja verða til þess að orku­fram­leiðsla virkj­un­ar­innar verði óstöðug verða að sögn meiri­hlut­ans með þeim hætti að rennsli „minnkar svo­lítið“ á virkj­uðum kafla en að öðru leyti munu rennsl­is­sveiflur „vera með sama hætti og þær hafa verið síð­ustu árhund­ruð“.

Meiri­hlut­inn segir vega­lagn­ingu sem fylgja fram­kvæmd­inni falla vel inn í lands­lagið, myndi bæta aðgengi að svæð­inu um ókomna fram­tíð og „gera fólki mögu­legt að nálg­ast það fal­lega lands­lag sem þarna er að finna“. Í því liggi tæki­færi fyrir ferða­þjón­ust­una. „Það má öllum ljóst vera að þessi virkjun mun skapa það öryggi í raf­orku­málum sem nauð­syn­legt er fyrir svæðið og tryggja að eðli­leg upp­bygg­ing geti átt sér stað.“

Heiða Guðný: Einstöku gljúfri raskað

Heiða Guðný Ást­geirs­dóttir, full­trúi Z-list­ans í sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps sem hefur verið ötull tals­maður nátt­úru­verndar, og telur virkj­un­ina sem dæmi um úrelta hugsun. Í athuga­semd sinni við skipu­lags­breyt­ingar bendir hún á um sé að ræða miklu röskun á landi og að gljúfur Hverf­is­fljóts sé nán­ast ein­stakt í heim­inum.

Þóra Ellen: Verulega neikvæð áhrif

Þóra Ellen Þór­halls­dóttir, doktor í grasa­fræði og pró­fessor við Háskóla Íslands, tekur í sínum athuga­semdum undir nið­ur­stöðu Skipu­lags­stofn­unar að „áhrif á ásýnd, lands­lag og víð­erni verði veru­lega nei­kvæð, þrátt fyrir mót­væg­is­að­gerðir“. „Sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps ætti að líta til þeirra miklu nátt­úru­verð­mæta sem landið býr yfir og taka til­lit til þess: jarð­fræði­lega, sögu­lega, í lands­lagi og lítt snortin víð­erni.“

Steinunn Sigurðardóttir: Stórfelld náttúruspjöll

Steinunn Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur sem á sum­ar­hús í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða virkj­ana­svæðis telur ákvarð­anir sveit­ar­stjórnar ger­ræð­is­legar, illa ígrund­aðar og að þær valdi óásætt­an­legum og óaft­ur­kræfum land­spjöllum. Fram­kvæmdin sé þess utan ónauð­syn­leg og að skemmd­ar­verk verði unnin á hraundalnum milli Þver­ár­fjalls og Núpa­fjalls. Fram­kvæmdin yrði að sögn Stein­unnar „stór­felld nátt­úru­spjöll“ og vekja reiði og sorg. Fram­kvæmdin muni stór­spilla svæð­inu og rjúfa lands­lags­heild, þar á meðal heild Skaft­ár­elda­hrauns, og telj­ist nátt­úr­u­níð.

Þá segir hún það skjóta skökku við að þriggja manna sveit­ar­stjórn­ar­meiri­hluti geti tekið sér vald til að keyra í gegn gíf­ur­legt land­rask sem mun stór­skaða ásýnd sveitar og lands um alla fram­tíð.

Eldvötn: Fordæma vinnubrögð meirihlutans

Eldvötn - sam­tök um nátt­úru­vernd í Skaft­ár­hreppi gera alvar­legar athuga­semdir við að sveit­ar­stjórn skuli stefna að því að leyfa virkjun í Hverf­is­fljóti þvert á nið­ur­stöður Skipu­lags­stofn­unar. Samtökin for­dæma vinnu­brögð harð­lega og harma þá van­virð­ingu sem meiri­hlut­inn sýni með fram­ferði sínu. Skorað er á sveit­ar­stjórn að falla frá áformunum.

Skipulagsstofnun: Varanleg og óafturkræf áhrif

Skipu­lags­stofnun benti í umsögn sinni vegna skipu­lags­breyt­ing­anna á fyrri umsögn sína sem stofn­unin segir enn eiga við. Um sé að ræða skipu­lags­á­kvörðun vegna fram­kvæmdar sem muni hafa í för með sér var­an­leg og óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif.

„Skaft­ár­elda­hraun hefur umtals­verða sér­stöðu og vernd­ar­gildi þess er hátt bæði á lands- og heims­vísu enda er um að ræða annað af tveimur stærstu hraun­gosum sem runnið hafa á jörð­inni,“ segir í umsögn­inni. „Því hefur það sér­stakt jarð­sögu­legt gildi sem eykur á vernd­ar­gildi þess umfram flest önnur hraun hér á landi en hraun eru jarð­minjar sem njóta sér­stakrar verndar sbr. 61. gr. laga um nátt­úru­vernd og forð­ast ber að raska þeim nema brýna nauð­syn beri til.“

Fram­kvæmdin og mann­virki sem henni fylgja muni raska sér­stæðri lands­lags­heild og breyta ásýnd óraskaðs svæðis veru­lega auk breyt­inga á rennsli árfar­veg­ar­ins hluta árs­ins.

Náttúrufræðistofnun: Einstökum náttúruverðmætum raskað

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands sagði í sinni athuga­semd að ef skipu­lags­á­formin yrðu sam­þykkt og Hnútu­virkjun verði fram­kvæmd, þá muni „umtals­verðum ein­stökum nátt­úru­verð­mætum verða raskað, að stórum hluta til á óaft­ur­kræfan hátt“.

Umhverfisstofnun: Hver er hin brýna nauðsyn?

Umhverf­is­stofnun tekur í svip­aðan streng í sínum athuga­semdum og telur að í skipu­lag­inu vanti umfjöllun um hver brýna nauð­synin sé og hvaða ríku almanna hags­munir rétt­læti röskun á svæð­inu.

RARIK: Ellefu bilanir á fimm árum

RARIK skil­aði einnig umsögn þar sem fram kemur að ætla megi að Hnútu­virkjun myndi tengj­ast á spennu sem er hærri en dreifispenna dreifi­kerfis RARIK á svæð­inu. Virkj­unin myndi því tengj­ast beint í tengi­virkið á Prests­bakka. Verði virkj­unin hæf til eyja­rekstrar þ.e. getur fram­leitt án þess að tengj­ast öðru raf­orku­kerfi, myndi hún fyrst og fremst koma að gagni þegar að afhend­ing Lands­nets á Prests­bakka er ekki til staðar.

Í umsögn­inni er svo bent á að á fimm ára tíma­bili á árunum 2016-2020 hefði komið ell­efu sinnum til trufl­ana á afhend­ingu raf­orku.“ Því má ætla að raf­orku­af­hend­ing inn á dreifi­kerfi RARIK og þar með til not­enda myndi verða örugg­ari og hægt væri að leggja af vara­vél á Klaustri og þar með minnka olíu­notkun í bil­ana­til­fellum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hnútuvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár