Fyrstu fangar áætlaðir á Hólmsheiði í sumar

Áætlað er að taka á móti fyrstu kven­föng­unum á Hólms­heiði í sumar. Hegn­ing­ar­húsið við Skóla­vörðu­stíg lokar 1. júní og starfs­fólk flyst á heið­ina. Fram­kvæmdin á Hólms­heiði mun taka rúm þrjú ár.

Arkís arkítektar unnu hönnunarsamkeppni innanríkisráðuneytisins um útlit og hönnun fangelsisins á Hólmsheiði.
Arkís arkítektar unnu hönn­un­ar­sam­keppni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um útlit og hönnun fang­els­is­ins á Hólms­heiði. Mynd: Framkvæmdasýsla ríkisins

Áætlað er að kvenna­álma fang­els­is­ins á Hólms­heiði verði tekin í notkun í sumar. Fullur rekstur í fang­els­inu hefst í haust. Pláss verður fyrir 56 fanga.

Enn er stefnt að því að halda sig innan upp­haf­legra fjár­heim­ilda, en áætl­aður heild­ar­kostn­aður er um 2,7 millj­arðar. Fram­kvæmda­kostn­að­ur­inn er áætl­aður tæpir tveir millj­arðar, eða 1.930 millj­ónir króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Halldóru Víf­ils­dóttur, for­stjóra Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins.

Jarð­vinnu­fram­kvæmdir hófust í júní árið 2013 og var lokið þá um haustið. Fram­kvæmdir vegna húss og lóðar hófust svo í jan­úar 2014. Halldóra segir fram­kvæmd­inni miða vel og allt hafi gengið vel hingað til.

„Við stefnum enn að því að loka verk­efn­inu með upp­runar­legar áætl­anir,” segir hún. „Síðan fer loka­upp­gjör fram í sumar og haust og þá verður end­an­legur kostn­aður ljós.”

Hegningarhúsið lokar 1. júní

Fang­elsið á Hólms­heiði leysir aðrar bygg­ingar af hólmi: Hegn­ing­ar­húsið við Skóla­vörðu­stíg, sem starf­rækt hefur verið í 140 ár, og Kvenna­fang­elsið í Kópavogi, en hvor­ugt fang­elsið upp­fyllir nútíma­kröfur um fanga­vist. Einnig verður gæslu­varð­halds­deild í Fang­els­inu á Litla-Hrauni lögð niður og aðstaða hennar tekin fyrir afplánun.

Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, segir að ekki sé orðið alveg ljóst hvenær fyrstu fang­arnir komi í hús. Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg, sem hefur verið í sam­felldum rekstri frá 1874, verður lokað 1. júní næst­kom­andi.

„Starfs­fólk þar flyst á þeim tíma­mótum á Hólms­heiði en fangar í Hegn­ing­ar­hús­inu verða fluttir í önnur fang­elsi,” segir Páll við Kjarnann. „Þegar allt hefur verið prófað á Hólms­heiði verða fyrstu fangar teknir til afplán­unar þar, fyrst konur og svo koll af kolli.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár