Útgöngubann í Bretlandi: „Þið verðið að vera heima“

Boris Johnson ávarp­aði bresku þjóð­ina í kvöld og til­kynnti að nú væri tekið gildi nær algjört útgöngu­bann í land­inu. Öllum versl­unum sem ekki selja nauð­synja­vörur á að loka án tafar og lög­regla mun hafa vald til að sekta þá sem brjóta reglur.

Boris Johnson ávarpar þjóðina í kvöld.
Boris Johnson ávarpar þjóð­ina í kvöld. Mynd: Skjáskot úr útsendingu BBC

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands til­kynnti í kvöld að nær algjört útgöngu­bann tæki gildi í land­inu nú þegar. Núna á fólk í Bret­landi að vera heima, með örfáum und­an­tekn­ingum. Einungis tveir mega koma saman á almanna­færi, nema þeir búi á sama heim­ili.

Johnson ávarp­aði bresku þjóð­ina kl. 20:30 og var ómyrkur í máli. „Þið verðið að vera heima,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Frá og með þess­ari stundu mega íbúar í Bret­landi ein­ungis fara út til þess að versla helstu nauð­synja­vörur, eins sjaldan og unnt er. Einnig má fólk fara út að hreyfa sig einu sinni á dag, en þá ein­samalt eða með öðrum sem búa á sama heim­ili.

„Þú átt ekki að hitta vini. Ef vinir þínir biðja þig um að hitta sig, þá ættir þú að segja nei,“ sagði Johnson og bætti við að ef fólk færi ekki að reglum hefði lög­regla heim­ild til þess að beita sektum eða til þess að leysa upp sam­komur.

Fólk má fara út til þess að sækja sér lækn­is­þjón­ustu og einnig má fara út til þess að hlúa að öðrum. Svo má fólk ferð­ast til vinnu, en ein­ungis í þeim til­fellum þar sem það er algjör­lega nauð­syn­legt og vinnan getur ekki farið fram að heiman.

Rík­is­stjórnin hefur þannig ákveðið að öllum versl­unum sem selja annað en ýtr­ustu nauð­synja­vörur, mat­vöru og lyf, verði lokað umsvifa­laust. Engar trú­arat­hafnir nema jarð­ar­farir verða leyfðar.

Johnson hafði verið tregur til að grípa til þess ráðs að setja á útgöngu­bann, en hafði áður veitt almenn­ingi til­mæli um að halda sig heima og koma þannig í veg fyrir smit og vara við því að ef ekki yrði farið að ráðum yfir­valda þyrfti að grípa til harð­ari aðgerða.

Tilmælin ein og sér virt­ust þó ekki ná eyrum almenn­ings og um helg­ina kom fjöldi fólks saman víða um Bretland til ýmissa við­burða.

Á fjórða hund­rað manns hafa lát­ist vegna COVID-19 í Bret­landi til þessa og hefur Johnson látið hafa eftir sér að hann ótt­ist að þróun mála í Bret­landi sé um það bil tveimur vikum á eftir þeirri þróun sem hefur átt sér stað á Ítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár