Nú sé kominn tími til að hætta að skoða málin og gera eitthvað

Ekki liggur fyrir ákvörðun stjórn­valda um fram­leng­ingu atvinnu­leys­is­bóta að svo stöddu, sam­kvæmt félags­mála­ráð­herra, en málið er í skoðun. Þing­maður Flokks fólks­ins segir það vera álíka og að segja við fólk: „Étið það sem úti frýs.“

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins.
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Nú stefnir í að fleiri hund­ruð falli af bótum á þessu ári. Það fólk verður þá að segja sig til sveitar, leita í fram­færslu sveit­ar­fé­laga. Bara í Reykja­nesbæ munu það að öllu óbreyttu verða um 200 manns á árinu sem nú er að hefj­ast. Þetta eru hrika­legar tölur og bak við þær standa mann­eskjur, 1.000 borg­arar í þessu landi. Áhyggjur af afkomu og fátækt, fólk sér fram á að stefna í fátækt­ar­gildru með börnin sín. Við í Flokki fólks­ins viljum að öllum til­tækum ráðum verði beitt til að bjarga þessu fólki meðan við erum að kom­ast út úr COVID-19 kóf­inu.“

Þetta sagði Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en hann spurði Ásmund Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra hvort rík­is­stjórnin og ráðu­neyti hans hygð­ist skoða þann mögu­leika að lengja tíma­bil atvinnu­leys­is­bóta úr 30 mán­uðum þannig að ein­hver von væri fyrir þetta fólk að lenda ekki í sára­fá­tækt.

„Nú á föstu­dag­inn birti Vinnu­mála­stofnun tölur um atvinnu­leysi í des­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum. Þær tölur eru því miður dap­ur­legar. Almennt atvinnu­leysi jókst lít­il­lega á lands­vísu, er 10,7 pró­sent en var 10,6 pró­sent í nóv­em­ber. Þannig var 21.000 manns án atvinnu í lok árs­ins. Rúmlega 5.000 ein­stak­lingar voru svo á hluta­bótum. Ef við tökum þennan hóp með er heild­ar­at­vinnu­leysi 12,1 pró­sent. Samtals eru þannig yfir 26.400 manns alveg án atvinnu eða að hluta. Ríflega 4.000 manns hafa verið án vinnu í meira en eitt ár og 6.600 án vinnu í 6 til 12 mán­uði. Samtals hafa því tæp­lega 11.000 verið án vinnu lengur en hálft ár. Sam­bæri­leg tala í des­em­ber 2019 var 3.800. Þannig glíma nærri þrisvar sinnum fleiri við lang­tíma­at­vinnu­leysi nú en 2019. Atvinnu­leysi er mest á Suð­ur­nesjum, yfir 26 pró­sent meðal kvenna og rúm­lega 21 pró­sent meðal karla. Það er næst­mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, karlar í meiri hluta, 12 pró­sent, og konur 11,5 pró­sent,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Ekki liggur fyrir ákvörðun um framlengingu að svo stöddu

Ásmundur Einar svar­aði og sagði að rík­is­stjórnin hefði ráð­ist í marg­vís­legar aðgerðir. „Nú fyrir jólin var meðal ann­ars ráð­ist í hækkun bóta og við fram­lengdum líka hækkun greiðslna sem fylgja börnum atvinnu­lausra. Við höfum lengt tekju­tengda tíma­bilið og hluta­bóta­leiðin, eins og hátt­virtur þing­maður fór yfir, hefur verið mjög mik­il­væg í þess­ari stöðu. Við erum auð­vitað að fylgj­ast með því dag frá degi hvernig far­aldr­inum vindur áfram. Það liggur ljóst fyrir að þegar við erum með eina atvinnu­grein algjör­lega í frosti, sem er ferða­þjón­ustan, sem hefur verið ein stærsta atvinnu­greinin á und­an­förnum árum, þá eru menn að bíða eftir því að hún kom­ist í gang á nýjan leik og öll sú starf­semi sem legið hefur niðri í verslun, þjón­ustu og fleira vegna far­ald­urs­ins.

Þegar kemur að leng­ingu bóta­tíma­bils þá erum við að skoða þetta á hverjum ein­asta tíma. Nið­ur­staðan fyrir ára­mót var sú að stíga ekki það skref þá. Engu að síður höfum við verið í mjög þéttu sam­tali og sam­starfi við félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga. Ráðu­neytið fundar mjög reglu­lega með félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga og fær allar upp­lýs­ingar þaðan. Við erum með alla nýj­ustu töl­fræði frá Vinnu­mála­stofnun um hversu margir eru að klára sinn bóta­rétt en að svo stöddu hefur ekki verið tekin ákvörðun um fram­leng­ingu á þeim rétt­indum,“ sagði ráð­herr­ann.

Hann sagði jafn­framt að eftir því sem far­ald­ur­inn drægist á lang­inn þá myndi rík­is­stjórnin áfram þurfa að koma með aðgerðir. „Það hef ég sagt um allar þær aðgerðir sem við höfum komið með að þær úti­loki ekki frek­ari aðgerðir á síð­ari stigum. Þannig að: Höfum við skoðað þetta? Já, við höfum skoðað þetta en það liggur ekki fyrir ákvörðun um fram­leng­ingu að svo stöddu.“

Heldur „rýr svör“

Guð­mundur Ingi beindi fyr­ir­spurn að Ásmundi Einari í annað sinn. „Ég þakka hæst­virtum félags- og barna­mála­ráð­herra fyrir svörin. Þau voru heldur rýr. Skoða þetta? Það er bara eins og að segja við fólk: Étið það sem úti frýs. En þar er ekk­ert að hafa lengur. Það er ekk­ert að hafa fyrir þetta fólk. Það er stór hópur fólks sem bíður í röðum eftir mat og þessi hópur mun bæt­ast við. Þeir sem eru að fara á félags­legar bætur hjá sveit­ar­fé­lögum eru í mjög slæmum málum vegna þess að það er allt tekið á móti til þess að skerða þær bætur. Þannig að þetta er bara fátækt­ar­gildra.

Það þýðir ekk­ert að segja að maður ætli að skoða málið vegna þess að það er ekki talað um að skoða málin þegar verið að bjarga fyr­ir­tækjum. Þá er eitt­hvað gert, það er búið til. Nú er kom­inn tími til að hætta að skoða málin og gera eitt­hvað og sjá til þess að fólk þurfi ekki að standa í röð eftir mat. Það er lág­mark að við sjáum til þess að það þurfi eng­inn að svelta á Íslandi,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Ætla sér að halda utan um fólk í þessum faraldri

Ásmundur Einar steig aftur í pontu og sagði að stjórn­völd hefðu gripið til marg­vís­legra aðgerða til að tryggja félags­lega þátt­inn. „Það lýtur að þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til vegna COVID-19, marg­vís­legar aðgerðir á vinnu­mark­aði og ég rakti hluta af þeim áðan. Við höfum líka gripið til marg­vís­legra félags­legra aðgerða sem hafa fæðst í sam­starfi og sam­tali á milli ráðu­neyt­is­ins og félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna sem hefur með höndum þjón­ustu við alla við­kvæm­ustu hópa lands­ins.

Þegar við vinnum að þeim þætti sem hátt­virtur þing­maður vitnar hér til, sem er fram­leng­ing bóta­tíma­bils, er hann auð­vitað líka skoð­aður í sam­tali og sam­vinnu á milli þeirra aðila sem þjón­usta þessa við­kvæmu hópa. Þegar ráð­herra segir að eitt­hvað sé í skoðun hefur það sýnt sig að sumt af því sem við skoðum raun­ger­ist í fram­kvæmdum og annað ekki. Við erum ein­fald­lega áfram að vakta þetta. Við ætlum okkur að halda utan um fólk í þessum far­aldri og eftir því sem hann dregst á lang­inn munum við grípa til frek­ari aðgerða. Það höfum við sýnt á síð­asta ári og það munum við líka gera á því ári sem nú er að hefj­ast,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár