Enn fleiri farandverkamenn sýktir í Þýskalandi

Að minnsta kosti 174 far­and­verka­menn sem vinna á ávaxta­ökrum í nágrenni bæj­ar­ins Mamming í Þýska­landi hafa greinst með kór­ónu­veirusmit. Hundruð ann­arra far­and­verka­manna sýkt­ust í verk­smiðjum í land­inu fyrir nokkrum vikum.

Verkamennirnir standa fyrir utan vinnubúðir sínar við grænmetis- og ávaxtabýlið. Þar eru þeir allir í einangrun eða sóttkví.
Verka­menn­irnir standa fyrir utan vinnu­búðir sínar við græn­metis- og ávaxta­býlið. Þar eru þeir allir í ein­angrun eða sótt­kví. Mynd: EPA

Smit­sjúk­dóma­stofnun Þýska­lands hefur miklar áhyggjur af fjölgun nýrra kór­ónu­veirusmita í land­inu. Í gær greindu yfir­völd í Bæj­ara­landi frá því að hóp­sýk­ing væri komin upp meðal far­and­verka­manna á ávaxta- og græn­met­is­býli við bæinn Mamming. 174 verka­menn, um þriðj­ungur allra sem þar starfa, hafa greinst með veiruna.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa sett býlið í ein­angrun en þar starfa verka­menn frá Rúmeníu, Búlgaríu, Ung­verja­landi og Úkraínu. Hinir sýktu hafa verið settir í ein­angrun og aðskildir frá öðrum starfs­mönnum á býl­inu.

[adspot]

Verka­fólk á öðrum býlum í nágrenn­inu munu einnig fara í sýna­töku. Heil­brigð­is­yf­ir­völd segja það nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir enn fleiri hóp­sýk­ingar. Þá verður öllum 3.300 íbúum bæj­ar­ins Mamming boðið að koma í sýna­töku.

[links]Á fimmtu­dag greindust 815 ný til­felli af kór­ónu­veirunni í Þýska­landi og 781 á föstu­dag. Dagana á undan höfðu verið að grein­ast um 500 smit á dag. Í til­kynn­ingu frá smit­sjúk­dóma­stofn­un­inni hafa sam­komur fólks orðið til þess að smitum hefur fjölgað á ný í land­inu sem og því að fólk hefur farið til útlanda og komið heim sýkt af COVID-19.

Þjóð­verjar hafa glímt við fleiri hópsmit í land­bún­aði og iðn­aði síð­ustu vikur. Gríð­ar­legur fjöldi smita hefur m.a. greinst meðal starfs­manna í kjöt­vinnslum og slát­ur­húsum. Oft eru þessar verk­smiðjur mann­aðar útlend­ingum, far­and­verka­fólki sem bæði vinnur og býr saman við þröngan kost og ferð­ast svo til og frá vinnu í sömu rút­unum.

Smit­sjúk­dóma­stofn­unin bendir einnig á að hópsmit hafi nýverið komið upp á hjúkr­un­ar­heim­ilum og í hús­næði hæl­is­leit­enda og flótta­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár