Menntaðar konur fá ekki vinnu

Fjöldi atvinnu­lausra kvenna með háskóla­menntun tvö­fald­að­ist á árunum 2012 til 2014. Fjöldi atvinnu­lausra karla með sömu menntun dróst saman á tíma­bil­inu. Fleiri mennt­aðar konur eru atvinnu­lausar en ómennt­aðar.

Hlutfall menntaðra, atvinnulausra kvenna er hærra heldur en hjá þeim sem ómenntaðar eru.
Hlutfall mennt­aðra, atvinnu­lausra kvenna er hærra heldur en hjá þeim sem ómennt­aðar eru. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Atvinnu­lausar konur með háskóla­menntun eru fleiri en þær sem ein­ungis eru með grunn­skóla­próf. Fjöldi atvinnu­lausra, háskóla­mennt­aðra kvenna tvö­fald­að­ist á árunum 2012 til 2014. Hlutfall háskóla­mennt­aðra kvenna sem voru atvinnu­lausar var 15 pró­sent árið 2012 og fór upp í 36 pró­sent árið 2014. Á á sama tíma fækk­aði þeim mikið sem eru án vinnu og ein­göngu með grunn­skóla­próf, úr 58 pró­sent í 34,5. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum Félags­vísum sem birtir voru í gær. Félags­vísar eru gefnir út af Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og Hagstofu Íslands á hverju ári til að varpa ljósi á þróun og breyt­ingar í sam­fé­lag­inu með því að birta á einum stað tölur og upp­lýs­ingar um til­tekna hópa sam­fé­lags­ins.

1.550 atvinnulausar og menntaðar

Séu fjölda­töl­urnar skoð­aðar kemur í ljós að fjöldi atvinnu­lausra kvenna með háskóla­menntun er 1.550 og hafði þeim fjölgað úr 750 frá árinu 2012. Fjöldi atvinnu­lausra kvenna ein­ungis með grunn­skóla­menntun dróst hins vegar mikið saman, úr 2.850 árið 2012 í 1.500 árið 2014.

Atvinnuleysi mest meðal ómenntaðra karla

Sé hlufall atvinnu­lausra karla með háskóla­menntun skoðað fyrir sama tíma­bil kemur önnur þróun í ljós. Hlutfall atvinnu­lausra karla með háskóla­menntun var 14,6 pró­sent árið 2012 og lækk­aði um rúmt pró­sentu­stig árið 2014, þá 13,5 pró­sent. 

Lang­flestir atvinnu­lausir karlar eru ein­ungis með grunn­skóla­menntun, eða 52,5 pró­sent. 34 pró­sent þeirra karla sem eru atvinnu­lausir og eru með starfs- eða fram­halds­skóla­menntun og eins og áður segir, 13,5 pró­sent með háskóla­menntun.

Aðra sögu er hins vegar að segja með kon­urnar. Fleiri atvinnu­lausar konur eru með háskóla­menntun en ein­ungis grunn­skóla­menntun. Hlutfall kvenna án vinnu sem hafa ein­ungis klárað grunn­skóla er 34,5 pró­sent, en 35,6 pró­sent meðal þeirra sem eru með háskóla­próf. Hlutfall atvinnu­lausra sem lokið hafa starfs- eða fram­halds­skóla­menntun er 53 pró­sent meðal karla og 35 pró­sent meðal kvenna.

Fjórfalt fleiri konur heimavinnandi

Nær fjór­falt fleiri konur en karlar eru skráðar heima­vinn­andi og því utan atvinnu­mark­aðar, ell­efu pró­sent kvenna og þrjú pró­sent karla.

VR sendi frá sér skýrslu í byrjun árs þar sem fram kom að atvinnu­lausum með háskóla­próf hafi auk­ist um 275 pró­sent á síð­ustu 10 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár