Um 2 prósent af fjárfestingum ríkisins teljast „grænar“

Miðað við þrönga skil­grein­ingu námu grænar fjár­fest­ingar um 2 pró­sentum af heild­ar­fjár­fest­ingum rík­is­ins í fyrra. Ef not­ast er við víð­ari skil­grein­ingu og t.d. fram­lög til nýs Land­spít­ala tekin með, er hlut­fallið 20 pró­sent.

Þorbjörg Sigríður spurði Bjarna Benediktsson um grænar fjárfestingar ríkisins.
Þorbjörg Sigríður spurði Bjarna Bene­dikts­son um grænar fjár­fest­ingar rík­is­ins. Mynd: Bára Huld Beck/samsett

Ef notuð er „þröng afmörkun á grænum fjár­fest­ingum“ gefa tölur sam­kvæmt fjár­lögum og þjóð­hags­reikn­ingum til kynna að þær hafi verið um 2,9 millj­arðar króna árið 2021, eða nálægt 2 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu rík­is­ins.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­diks­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur, þing­manni Við­reisnar, um grænar fjár­fest­ingar rík­is­ins.

Þorbjörg spurði: Hversu hátt hlut­fall af fjár­fest­ingum rík­is­ins telst vera grænar fjár­fest­ingar í þeim skiln­ingi að þær eru til þess fallnar að draga úr losun meng­andi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, vernda vist­kerfi eða stuðla með öðrum hætti að því að Ísland upp­fylli alþjóð­legar skuld­bind­ingar sínar á sviði lofts­lags­mála? Hver er fjár­hæð þeirra fjár­fest­inga?

Samkvæmt fjár­mála­ráð­herra er svarið ekki klippt og skorið. Þar komi ólíkir staðlar og fleira við sögu. Nokkur munur sé á fram­setn­ingu talna um fjár­fest­ingu eins og þær birt­ast í útgjöldum ráðu­neyta í fjár­lögum og rík­is­reikn­ingi ann­ars vegar (IPSAS-stað­all) og þeirra sem taldar eru til fjár­fest­ingar rík­is­sjóðs í þjóð­hags­reikn­ingum hins vegar (GFS-stað­all).

Sem dæmi séu fram­lög til rann­sókna og þró­unar, sem flokk­ast sem fjár­fest­ing í mynd fjár­magnstil­færslna í fjár­lögum, ekki talin til fjár­fest­ingar sam­kvæmt GFS-staðli. Á móti vegur að ákveðið hlut­fall launa og ann­arra gjalda hjá til­teknum rík­is­að­ilum er skil­greint sem fjár­fest­ing. Annað dæmi sem ráð­herr­ann nefnir er að í fjár­lögum og rík­is­reikn­ingi telj­ast útgjöld vegna skóg­ræktar og land­græðslu til rekst­urs en sam­kvæmt GFS-staðl­inum eru þau færð sem fjár­fest­ing. „Einnig eru fyrir hendi umtals­verð útgjöld við ýmis verk­efni sem stuðla að grænum mark­miðum en telj­ast til rekst­urs en ekki fjár­fest­ingar í fjár­lögum.“

Nið­ur­stöður geta því verið mis­mun­andi eftir því hvor stað­all­inn er not­aður til fram­setn­ingar á útgjöldum rík­is­sjóðs vegna fjár­fest­inga­verk­efna.

Í svar­inu gengur Bjarni út frá fram­setn­ing­ar­máta fjár­laga og rík­is­reikn­ings sem hann segir fanga betur allar fjár­fest­ingar sem fjár­magn­aðar eru úr rík­is­sjóði en nái þó ekki til verk­efna sem falla inn í annan rekstur stofn­ana. Heild­ar­fjár­fest­ingar á þennan mæli­kvarða nema 120,4 millj­örðum króna eins og þær birt­ast í útgjaldar­ömmum fjár­laga og fjár­auka­laga árs­ins 2021.

Geta verið grænar óháð tilgangi

Í svari fjár­mála­ráð­herra segir að vert sé að hafa í huga að flestar fjár­fest­ingar hafi fjöl­þættan til­gang. Fjár­fest­ingar geti þannig verið grænar að ein­hverju marki þó að það sé ekki bein­línis til­gangur þeirra. T.d. er hægt að útfæra þær fjár­fest­ingar sem nauð­syn­legar eru í innviðum lands­ins með þeim hætti að nei­kvæð umhverf­is­á­hrif þeirra verði sem minnst. Dæmi um slíkt sé að nú eru vel­flestar nýbygg­ingar á vegum Fram­kvæmda­sýsl­unnar – Rík­is­eigna með umhverf­is­vottun. Sem annað dæmi má nefna ýmsar fram­kvæmdir í þjóð­görðum, svo sem við þjón­ustu­mið­stöðvar, sem styðja við starf­semi þeirra. „Þetta felur í sér að tals­vert flókið getur verið að setja saman heild­stætt yfir­lit yfir grænar fjár­fest­ingar.“

Í mati á því hvað telj­ist til grænna fjár­fest­inga eru „umhverf­is­væn­ustu sam­göngu­fjár­fest­ing­arnar“ taldar með að fullu, þ.e. fram­lög í göngu- og hjóla­stíga, og einnig u.þ.b. helm­ingur af fram­lagi rík­is­ins til Betri sam­gangna, þ.e. Borg­ar­línu.

Fjár­mála­ráðu­neytið gerði í sam­ráði við umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið gróf­lega flokkun fjár­fest­inga rík­is­ins með til­liti til þess hvort þær telj­ist vera grænar. Þar eru m.a. taldir til styrkir til frá­veitna sveit­ar­fé­laga (800 millj­ónir), göngu- og hjóla­stíga­gerð Vega­gerð­ar­innar (243 millj­ónir) og hringrás­ar­hag­kerfið (230 millj­ónir).

„Ef notuð er þröng afmörkun á grænum fjár­fest­ingum gefa þessar tölur til kynna að þær hafi verið um 2,9 ma.kr. árið 2021, eða nálægt 2% af heild­ar­fjár­fest­ingu,“ segir svo í svari fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­bjargar.

Ítrekað er svo að umtals­verðum fjár­munum sé hins vegar árlega til ýmissa verk­efna sem telj­ist ekki bein­línis til fjár­fest­inga í fjár­lögum, einnig til fjár­fest­inga sem flokk­ast þó ekki sem slíkar til grænna verk­efna, heldur eru það með óbeinni hætti, „en er samt full ástæða til að taka með í reikn­ing­inn í þessu sam­hengi“.

Að slíkum verk­efnum með­töldum, en útgjöld vegna þeirra námu um 21,6 millj­arði króna og gefur sú sam­an­tekt til kynna, segir fjár­mála­ráð­herra, „að fjár­fest­ing af þessu tagi“ hafi verið alls um 24,4 millj­arða króna eða 20 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu.

Líkt og fram kemur í töfl­unni hér að ofan er inn í þá sam­an­tekt stjórn­valda tekin tæp­lega 12 millj­arða fjár­fest­ing í nýjum Land­spít­ala.

Í aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum er stefnt að orku­skiptum í ferjum og gengur nýja Vest­manna­eyja­ferjan fyrir raf­magni, bendir fjár­mála­ráð­hera á. Auk þess leggur ríkið árlega til um 2 millj­arða króna til Betri sam­gangna en yfir helm­ingur þeirra fram­kvæmda verður vegna umhverf­is­vænna fjár­fest­inga í borg­ar­línu, göngu- og hjóla­stígum.

Stafrænt Ísland sparar ferðakostnað

Auk þess telur ráðu­neytið vert að nefna að fram­lög til Stafræns Íslands nemi um 1,5 millj­arði króna árlega. „Stafrænt Ísland gerir opin­bera þjón­ustu skil­virk­ari og sparar tíma og ferða­kostnað fyrir almenn­ing og fyr­ir­tæki.“

Loks er nefnt að ríkið veiti skatt­styrki sem stuðli að grænni fjár­fest­ingu einka­að­ila með flýti­fyrn­ingu grænna fjár­fest­inga og fyrn­ing­ar­á­lagi á stofn­verð eigna sem telj­ast umhverf­is­vænar sam­kvæmt skiln­ingi laga um hvata til fjár­fest­inga.

Þorbjörg Sigríður spurði einnig hversu hátt hlut­fall af fjár­fest­ingum rík­is­ins teld­ist ekki vera grænar og hver fjár­hæð þeirra væri.

„Miðað við að um 2% fjár­fest­inga telj­ist vera „grænar“ í þröngum skiln­ingi þá eru um 98% fjár­fest­inga ekki grænar,“ svarar fjár­mála­ráð­herra, sem svari til um 118 millj­arða króna. Hins vegar kunni að vera rétt­ara að horfa til víð­ari skil­grein­ingar þar sem teknar eru m.a. með fjár­fest­ingar sem eru fyrst og fremst ætl­aðar til að bæta inn­viði en eru jafn­framt útfærðar með þeim hætti að þær hafi sem minnst nei­kvæð umhverf­is­á­hrif. „Þá væru grænar fjár­fest­ingar í þeim skiln­ingi taldar nema um 20% en á móti væru um 80% fjár­fest­inga ekki í þeim flokki, eða sem svarar til um 96 ma.kr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár