Væntingar almennings og fjárfesta brotlenda vegna bóluefnatíðinda

Ljóst virð­ist að loka­sprett­ur­inn í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna verður lengri en stjórn­völd höfðu von­ast eftir. Margir eru svekktir, enda vænt­ingar verið uppi um að hægt yrði að bólu­setja nægi­lega marga til að ná hjarð­ó­næmi á allra næstu mán­uðum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir færði þjóðinni leiðindafréttir í morgun.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir færði þjóð­inni leið­inda­fréttir í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Einungis tveimur vikum eftir að heil­brigð­is­ráðu­neytið sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem sagði að von­ast væri til þess að hjarð­ó­næmi yrði náð á fyrsta árs­fjórð­ungi kom­andi árs, hafa vænt­ingar lands­manna verið demp­aðar. Verulega.

Eins og fram kom á Kjarn­anum fyrr í dag sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir frá því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna að ekki væri búist við því að hjarð­ó­næmi yrði náð fyrr en á síð­ari hluta árs­ins 2021, þar sem minna bólu­efni kemur til lands­ins en áætlað var.[links]

Fram kom í máli Þórólfs að vafa­laust þyrftu Íslend­ingar að búa við áfram­hald­andi tak­mark­anir fram eftir næsta ári og halda áfram að við­halda ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum.

„Við von­uð­umst til að sjá hrað­ari bólu­setn­ingar strax eftir ára­mótin en við þurfum að lifa við það að það mun ganga hægar en við von­uð­umst til,“ sagði Þórólfur.

[adspot]

Á sam­fé­lags­miðlum hafa von­brigði fólks ekki leynt sér. „Þessi tíð­indi eru nátt­úr­lega aga­leg og enn verri vegna þess að sumir hafa talað um að við verðum öll orðin bólu­sett á fyrstu mán­uðum næsta árs,“ sagði Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoð­ar­maður land­læknis, í umræðum um málið á Twitter.

Þar hélt hann því til haga að heil­brigð­is­yf­ir­völd hefðu varað við of mik­illi bjart­sýni um bólu­setn­ingar og hjarð­ó­næmi, sem er rétt. Þórólfur sótt­varna­læknir sagði einmitt 3. des­em­ber, í sam­tali við Vísi, að það væri í hans huga ótíma­bært að ræða tíma­setn­ingar, en fyrr þann sama dag höfðu vonir lands­manna um hjarð­ó­næmi, mögu­lega fyrir lok mars­mán­aðar, verið glæddar með til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

„Það sem ég hef sagt er að við erum ekki með neitt í hendi um það hvenær við fáum fyrstu send­ingu af bólu­efni eða hversu mikið. Í mínum huga er ekki tíma­bært að ræða tíma­setn­ingar nákvæm­lega fyrr en við vitum það betur,“ sagði Þórólfur við Vísi.

Lokaspretturinn verður lengri en vonast var eftir

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði þann 8. des­em­ber, í til­efni af því að Bretar hófu bólu­setn­ingu, að ljóst væri að loka­sprett­ur­inn í glímunni væri að hefj­ast.

„Þetta eru tíma­mót í bar­átt­unni gegn veirunni og við getum óhikað litið með bjart­sýni til nýs árs. Sam­fé­lagið okkar mun þá byrja að fær­ast smátt og smátt í eðli­legt horf. Við getum farið að njóta sam­vista óhindrað og efna­hags­lífið getur spyrnt kröft­ug­lega við fótum og atvinnu­leysi byrjað að ganga nið­ur,“ skrif­aði hún.

Miðað við tíð­indi dags­ins er ljóst að loka­sprett­ur­inn hér á landi verður tölu­vert lengri en vonir stóðu til.

Rautt um að litast í Kauphöllinni

Fjár­festar tóku tíð­ind­unum af upp­lýs­inga­fundi almanna­varna ekki vel og eru nær allar tölur í Kaup­höll­inni rauðar það sem af er degi.

Verð hluta­bréfa í Icelandair tók um það bil 12 pró­senta dýfu um hádeg­is­bil en líkt og flest önnur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki á flug­fé­lagið, sem farið hefur í gegnum miklar hremm­ingar vegna far­ald­urs­ins, mikla hags­muni af því að hjarð­ó­næmi náist hér á landi sem fyrst.

Hluta­bréfa­verð félags­ins hefur hækkað á ný eftir dýf­una í kjöl­far tíð­ind­anna og er verðið nú 5 pró­sentum lægra en þegar við­skipti hófust í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár