Ráðherra boðar til samráðs lykilaðila vegna COVID-19

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að boða til sam­ráðs­vett­vangs í formi vinnu­stofu þann 20. ágúst. Þar verður rætt hvernig móta megi aðgerðir og stefnu til lengri tíma litið með til­liti til far­ald­urs COVID-19.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ljóst er að íslenskt sam­fé­lag er nú að hefja annan kafla í glímunni við Covid-19 þar sem vera kann að beita þurfi aðgerðum bæði innan lands og á landa­mærum um langt skeið til að hefta útbreiðslu veirunnar. Veiran er enn í vexti víða um lönd og sums staðar verið að herða reglur aftur.

Á þessum orðum hefst til­kynn­ing á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]

Sótt­varna­læknir hefur lagt áherslu á að halda beri áfram skimunum á landa­mærum auk þess sem nú eru í gildi umtals­verðar tak­mark­anir á sam­komu­haldi í sam­fé­lag­inu. Verið er að beita skimunum, sýna­tökum, smitrakn­ingu, ein­angrun og sótt­kví líkt og gert hefur verið allt frá upp­hafi far­ald­urs­ins og mun það verða gert áfram, segir í til­kynn­ing­unni. „Vera kann að slakað verði á tak­mörk­unum eða þær hertar allt eftir því hver þró­unin verður.“

[links]Sótt­varna­læknir hefur síð­ustu daga minnt á að hans hlut­verk sé að leggja til aðgerðir vegna sótt­varna. Annarra sé að taka ákvarð­anir um aðra þætti sem máli skipta. Hefur hann sagt þau mál póli­tísk og efna­hags­leg.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að „marg­háttað sam­ráð hefur verið við­haft allt frá því að veiran skaut fyrst upp koll­inum hér á landi. Stýri­hópar hafa verið starf­andi, ann­ars vegar um inn­an­land­s­varnir og hins vegar um skimanir á landa­mærum þar sem ýmsir aðilar hafa verið kall­aðir til.“

Svo segir:

„Með vísan til þess hversu stórt sam­fé­lags­verk­efni er um að ræða liggur fyrir að við þessi kafla­skil þarf að að efna til sam­ráðs helstu lyk­il­að­ila um áfram­hald­andi aðgerðir gegn Covid-19. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að boða til sam­ráðs­vett­vangs í formi vinnu­stofu þann 20. ágúst nk. Þar verður rætt hvernig móta megi aðgerðir og stefnu til lengri tíma litið. Vegna tak­mark­ana á sam­komum fer hluti af vinnu­stof­unni fram með fjar­funda­bún­aði í fleiri hópum til þess að sem flest sjón­ar­mið kom­ist að.“

Heil­brigð­is­ráðu­neytið vinnur nú að und­ir­bún­ingi vinnu­stof­unnar og mun bjóða til þessa vett­vangs innan skamms í sam­stafi við önnur ráðu­neyti og stjórn­völd. Nánar verður greint frá fyr­ir­komu­lagi og verk­lagi snemma í næstu viku.

Í fram­haldi af vinnu­stof­unni verður komið á fót fimm manna verk­efnateymi til að ann­ast fram­kvæmd aðgerða vegna Covid-19. Teymið mun starfa undir stjórn sótt­varna­læknis út árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár