Þórólfur: Ekki lengur aðeins sóttvarnamál

Baráttan við kór­ónu­veiruna er ekki lengur aðeins sótt­varna­mál heldur einnig póli­tískt og efna­hags­legt. „Það eru fleiri sem þurfa að koma að borð­inu,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Ég hef stungið upp á því við stjórn­völd að settur verði á lagg­irnar sam­starfs­vett­vangur um hvernig við ætlum að hafa þetta næstu mán­uði og ár,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. „Núna er þetta meira en bara sótt­varna­mál. Það eru fleiri sem þurfa að koma að borð­inu og það þarf að taka til­lit til ýmissa sjón­ar­miða. Mín sjón­ar­mið eru fyrst og fremst sótt­varna­sjón­ar­mið og ég áfram halda þeim á lofti en þetta er póli­tískt mál, þetta er efna­hags­legt mál og alls konar við­horf.“

Þórólfur var gestur í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun þar sem hann ræddi stöðu far­ald­urs­ins hér á landi sem og fram­tíð­ina. Virk smit hér landi eru nú orðin átta­tíu og hefur þeim fjölgað hratt á síð­ustu dögum.

„Þetta er við­var­andi ástand,“ bendi hann á þó að alltaf kæmu til nýjar áherslur og hlutir sem líta þyrfti til. „Og þannig verður þetta næstu mán­uð­ina. Ég held að menn megi ekki líta svo á að þetta sé ein­hver úrslita orr­usta núna. Við gerum eitt­hvað sem von­andi virkar vel en síðan taka bara við nýjar áskor­anir.“

Á meðan far­ald­ur­inn væri í sókn erlendis yrði þetta staðan sem kæmi reglu­lega upp. „Og hann er svo sann­ar­lega í sókn erlendis. Það grein­ast fleiri til­felli á hverjum degi núna heldur en nokkurn tím­ann áður. Það sem við höfum verið að tala um er að við þurfum að hugsa um þessi mál til lang­tíma. Þetta er ekki bara hvað ætlum við að gera í dag og á morgun. Hvað ætlum við að gera næstu mán­uði – hvernig ætlum við að haga þessu málum hér á Íslandi.“

Þórólfur sagði það rétt að ekki hefði tek­ist að finna tengsl milli allra sem smit­ast hefðu af veiru af sama stofni, þeirri sem valdið hefur stórri hóp­sýk­ingu hér á landi. Hins vegar hefði smitrakn­ing ekki verið svona nákvæm áður.

[links]Hann benti á að það væri lyk­il­at­riði að rekja snemma og setja fólk í ein­angrun eða sótt­kví en bætti svo við með áherslu: „EF að menn vilja að far­ald­ur­inn fari ekki að dreifa sér hérna út um allt. Ef okkur er nokkurn veg­inn sama um það þá getum við hætt þessu. Þá fáum við örugg­lega dreif­ingu hér inn­an­lands með til­heyr­andi álagi fyrir heil­brigð­is­kerfið. En það er þetta sem ég er að tala um, nú þurfa menn að ákveða sig, hvernig vilja menn hafa þetta áfram? Því við eigum eftir að fá aðra hóp­sýk­ingu eftir þessa, það eiga eftir að koma smit hérna inn, í raun hvað sem við gerum. [...] Þetta er veru­leik­inn eins og hann blasir við mér varð­andi þessa veiru næstu mán­uði eða kannski ár jafn­vel.“

Ef núver­andi stefnu yrði haldið áfram þyrfti stöðugt að vera að herða og slaka á aðgerðum. „Ég veit að þetta er mjög óþægi­legt fyrir marga – þetta er óþægi­legt fyrir alla. En afleið­ingin af því að gera ekk­ert er sú að þá fáum við lík­lega yfir okkur hol­skeflu með til­heyr­andi afleið­ingum. Og þá er of seint að spyrja: Af hverju gerðum við ekki þetta eða hitt?“

Þórólfur sagð­ist hafa miklar áhyggjur af því að fólki skorti þol­in­mæði til að taka þátt í sam­fé­lags­legum aðgerðum vegna far­ald­urs­ins af fullum hug til lengdar. Við­ur­kenndi hann að tíma­bil far­ald­urs­ins væri lengra og meira en hann sjálfur gat séð fyrir. Fyr­ir­fram hefði hann talið að far­ald­ur­inn yrði far­inn að ganga aðeins niður erlendis á þessum tíma­punkti. „Ég bjóst ekki við að hann ætti ennþá eftir að ná toppi. Þannig að ver­öldin er bara önnur og þetta tekur langan tíma. Og það er það sem ég hef verið að segja, við verðum að lifa með þess­ari veiru, við verðum taka inn í [jöfn­una] að það er ýmis­legt annað sem við þurfum að gera líka og það eru ýmsar aðrar áskor­anir sem við þurfum að fást við.“

Því hefði hann lagt til við stjórn­völd að settur yrði á stofn sam­ráðs­vett­vangur þar sem farið yrði yfir hvert fólk vildi stefna næstu mán­uði og ár. „Við þurfum að fara að venj­ast þeirri hugsun að við erum ekki í ein­hverjum litlum orr­ustum. Þetta er lang­tíma stríð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár