Þórólfur: „Jújú, það er önnur bylgja hafin“

Sótt­varna­læknir segir að það sé hægt að sam­mæl­ast um að kalla það ástand sem Ísland stendur frammi fyrir nýja bylgju. Það segi sig sjálft að aukn­ing sé á til­fellum. Land­læknir segir tæki­færið til að ráða nið­ur­lögum ástands­ins vera núna.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

„Jújú, það er önnur bylgja hafin. Það segir sig sjálft að við erum með aukn­ingu á til­fellum. Það er bara smekks­at­riði hvort að menn vilja kalla það nýja bylgju eða ekki. En bara til að klára þessa umræðu, og setja punkt aftan við það, þá getum við sam­mælst um það að þetta er kannski ný bylgja.“

[links]Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna sem hófst klukkan 14 í dag þegar hann var spurður að því hvort að önnur bylgja far­ald­urs­ins væri hafin.

Átta ný inn­­an­lands­smit af COVID-19 veirunni greindust í gær. Alls var 291 sýni greint á sýkla- og veiru­fræð­i­­deild Land­­spít­­al­ans og voru átta þeirra jákvæð. Af þeim 914 sýnum sem Íslensk erfða­­grein­ing greindi í gær reynd­ist ekk­ert jákvætt en Íslensk erfða­­grein­ing hefur verið að mæla fyrir smiti í sam­­fé­lag­inu frá 29. júlí.

2.035 sýni voru tekin á landa­­mærum í gær. Beðið er eftir mótefna­­mæl­ingu í tveimur þeirra. Frá 15. júní þegar sýna­­taka hófst hafa 68.203 sýni verið tek­in við landa­mæri.

Staðan í raun óbreytt milli daga

Þórólfur sagði að smitin sem hefðu verið að grein­ast und­an­farna daga tengd­ust annarri af þeim hóp­sýk­ingum sem hefðu verið greindar. Virk smit væru nú í öllum lands­hlutum nema á Aust­ur­landi. Lang­flestir þeirra sem eru í sótt­kví eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Staðan í dag væri í raun nán­ast óbreytt frá því í gær. Þórólfur sagði að það væri ánægju­legt að sjá hversu fáir væru að grein­ast hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sem hóf að skima á ný með handa­hófs­kenndum hætti. Alls hefur fyr­ir­tækið ski­mað 3.374 ein­stak­linga frá 29. júlí en ein­ungis tveir hafa greinst með veiruna. Það renndi stoðum undir að sam­fé­lagsmit væri ekki mjög útbreitt.

[adspot]Þórólfur sagði að það ætti að sjást árangur af þeim við­bót­ar­að­gerðum sem kynntar voru á föstu­dag, þar sem meðal ann­ars tveggja metra reglan var tekin upp að nýju og sam­komu­tak­mark­anir aftur færðar niður í 100 manns. Þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga er svo kraf­ist notk­unar and­lits­grímu sem hylur nef og munn.

Ef þessar aðgerðir myndu ekki skila árangri ætti hins vegar að verða tölu­verð aukn­ing í smitum.

Tækifærið er núna

„Staðan í dag, með 80 smit, er eins og hún var 10. mars, og við vitum auð­vitað ekki alveg hvaða stefnu þessi smit taka næstu daga. En nú er tæki­færið til að ráða nið­ur­lögum þess og við verðum að hjálp­ast áfram að,“ sagði Alma D. Möller land­læknir á fund­inum í dag.

Alma sagði að verið væri að nota sömu aðferðir og síð­ast þegar COVID-19 smit blossuðu upp. Í þeim felst meðal ann­ars að slá skjald­borg um hina eldri og við­kvæmu. Síðan væri annað mark­mið að vernda nauð­syn­lega inn­viði, aðal­lega heil­brigð­is­kerfið, með því að fletja kúr­f­una. Þá þyrfti að miðla upp­lýs­ingum, hvetja til sótt­varna og biðla til fólks að sækja smitrakn­ing­arappið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár