Mynd: 123rf.com

Eru stjórnmálaflokkar eitthvað að pæla í fjölmiðlum?

Rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur hríð­versnað á síð­ustu árum, starfs­fólki í geir­anum hefur fækkað um næstum helm­ing á tveimur árum og fjöl­miðla­frelsi á Íslandi fyrir vikið hríð­fallið.

Blaða­manna­fé­lag Íslands (BÍ) sendi í síð­ustu viku frá sér áskorun til stjórn­mála­flokk­ana um að gera það að stefnu­máli sínu að tryggja að á Íslandi fái þrif­ist frjálsir, sjálf­stæðir og óháðir fjöl­miðlar.

Auk þess skor­aði Blaða­manna­fé­lagið á stjórn­mála­flokka að hafa í huga sam­fé­lags­lega ábyrgð sína og mik­il­vægi fjöl­miðla fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu í sam­fé­lag­inu þegar ákvörðun er tekin um birt­ingu aug­lýs­inga.

BÍ hvatti stjórn­mála­flokka til að setja sér stefnu, sem birt yrði opin­ber­lega, um hlut­fall aug­lýs­inga­fjár­magns sem veitt er til erlendra miðla, og jafn­framt að birta að kosn­ingum loknum sund­ur­liðun á því hve miklu fjár­magni var varið til erlendra miðla ann­ars vegar og íslenskra hins vegar.

BÍ lagði fram alls átta til­lögur til efl­ingar rekstr­ar­um­hverfis íslenskra fjöl­miðla sem finna má hér.

En hvað er að finna um fjöl­miðla í stefnum þeirra tíu flokka sem bjóða fram til Alþingis í öllum kjör­dæmum í kom­andi kosn­ingum?

Hnignandi rekstrarumhverfi

Rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur verið mikið í umræð­unni árum saman, enda hefur það orðið erf­ið­ara með hverju árinu. Í júní var greint frá því að frá árinu 2013 og fram til síð­ustu ára­mót hafi þeim sem starfa á fjöl­miðlum fækkað um úr 2.238 í 731. Frá árinu 2018 hefur þeim fækkað um 45 pró­sent og því er ljóst að þessi þróun hefur ágerst á þessum kjör­tíma­bili.

Eina aðgerðin sem gripið hefur verið til vegna þessa er inn­leið­ing styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla, fyrst sem hluta af kór­ónu­veiru­far­ald­urs­að­gerðum stjórn­valda í fyrra, og svo með sam­þykkt laga sem greiða fyrir því að tæp­lega 400 millj­ónum króna verði skipt á milli allra einka­rek­inna fjöl­miðla árlega. Um er að ræða end­ur­greiðslu á hluta af rit­stjórn­ar­kostn­aði og fer þorri upp­hæð­ar­innar, næstum tvær af hverjum þremur krónur, til þriggja stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins.

Mikið var tek­ist á um þessa styrki á kjör­tíma­bil­inu og ekki tókst að lög­festa þá fyrr en á síð­ustu metrum þess, eftir að upp­haf­legu frum­varpi hafði verið breytt veru­lega.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Á meðan að tek­ist var á um þessa styrki var ekk­ert annað gert til að styrkja rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla. Fyrir vikið hefur Ísland hríð­fallið í vísi­tölu Blaða­manna án landamæra, sem mæla fjöl­miðla­frelsi í heim­inum. Ísland situr nú í 16. sæti á þeim lista en hin Norð­ur­löndin, þar sem umtals­vert er stutt við fjöl­miðla, raða sér í fjögur efstu sætin.

Þeir sem vilja ekki opinbera styrki til fjölmiðla

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill ekki rík­is­styrki til fjöl­miðla. Í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ráðs­fundar flokks­ins frá því í síð­asta mán­uði kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji frekar breyta skattaum­hverfi þeirra og tak­marka veru­lega umfang RÚV á mark­aði. „Umfang RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og sam­keppni við stór erlend tækni­fyr­ir­tæki, sem búa við mun hag­stæð­ara skattaum­hverfi, hafa haft veru­lega nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Rekstur rík­is­ins á fjöl­miðlum má ekki hamla frjálsri sam­keppni og raska rekstr­ar­grund­velli ann­arra fjöl­miðla. Takmarka á veru­lega umfang RÚV og bæta skattaum­hverfi fjöl­miðla.“

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn vill að almenn­ingi verði gef­inn kostur á að styðja við alla fjöl­miðla á skatta­skýrslu sinni, sem þýðir að almenn­ingur geti látið fé renna til eins eða fleiri fjöl­miðla að eigin ósk. Flokk­ur­inn vill að sama skapi leggja niður það styrkja­kerfi við einka­rekna fjöl­miðla sem hefur verið lög­fest. Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn er líka með nokkrar aðrar hug­myndir sem eru nokkuð ein­stakar. Hann vill til að mynda að frí­blöð verði látin borga end­ur­vinnslu­gjald á hvert prentað ein­tak og að fjöl­miðlar í eigu hags­muna­tengdra fyr­ir­tækja verði gert að aug­lýsa tengsl sín sér­stak­lega við hags­muna­tengdar fréttir í sama miðli. „Mis­notkun stór­fyr­ir­tækja, auð­manna og leppa þeirra í íslenskri fjöl­miðlaflóru verður að upp­ræta. Tak­mörkun á tján­ing­ar­frelsi má aldrei líð­ast,“ segir í stefnu flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 22,5 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans en Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn mælist ekki með mark­tækt fylgi.

Þeir sem vilja að hið opinbera styrki einkarekna fjölmiðla

Ekkert er fjallað um fjöl­miðla í kosn­inga­stefnu­skrá Vinstri grænna en í stefnu flokks­ins, sem sam­þykkt var á lands­fundi í maí, segir að frjálsir fjöl­miðlar séu lýð­ræð­inu nauð­syn­legir, þeir veiti aðhald með fag­legri og upp­lýsandi umfjöllun og frétta­flutn­ingi og því beri stjórn­völdum að verja sjálf­stæði þeirra og rit­stjórn­ar­legt frelsi. „Fjöl­miðlar verða að hafa fjár­hags­lega burði til að sinna lýð­ræð­is­hlut­verki sínu. Æskilegt er að hið opin­bera styðji við starf­semi þeirra án þess að vega að sjálf­stæði þeirra með tak­mörk­unum á fjár­veit­ingum, hót­unum eða annarri vald­beit­ingu.“

Vinstri græn vill sam­hliða tryggja stöðu RÚV sem öfl­ugs fjöl­mið­ils í almanna­þágu sem reka eigi fyrir almannafé.

Lilja D. Alfreðsdóttir lagði fram frumvarp um styrki til einkarekinna fjölmiðla á liðnu kjörtímabili, sem varð að lögum undir lok þess. Mynd: Bára Huld Beck
Lilja D. Alfreðs­dóttir lagði fram frum­varp um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla á liðnu kjör­tíma­bili, sem varð að lögum undir lok þess. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin fjallar sömu­leiðis ekk­ert um fjöl­miðla í kosn­inga­stefnu sinni en í stefnu flokks­ins, sem var sam­þykkt á flokks­stjórn­ar­fundi í mars, segir að frjálsir fjöl­miðla gegni lyk­il­hlut­verki í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi og séu nauð­syn­leg und­ir­staða upp­lýstrar þjóð­fé­lags­um­ræðu. „Sam­fylk­ingin vill tryggja rekstr­ar­grund­völl einka­rek­inna miðla með rík­is­fram­lögum, gera þeim kleift að starfa óháðir fjár­mála­valdi og stuðla þannig að heil­brigð­ara fjöl­miðlaum­hverfi á Íslandi.“

Flokk­ur­inn vill auk þess standa vörð um sjálf­stæði RÚV og „tryggja stofn­un­inni bol­magn til að upp­lýsa og veita aðhald án óeðli­legra afskipta vald­hafa.“

Viðreisn er á svip­uðum slóðum. Flokk­ur­inn fjallar ekk­ert um fjöl­miðla í sinni kosn­inga­stefnu­skrá. Í lands­þings­á­lyktun flokks­ins frá 28. ágúst er hins vegar sagt:

„Almanna­út­varp hefur bæði menn­ing­ar­legu og lýð­ræð­is­legu hlut­verki að gegna. Rétt er að huga að sam­keppn­is­stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla og stuðn­ingi hins opin­bera, sér­stak­lega við inn­lenda dag­skrár­gerð. Veru RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði þarf að end­ur­skoða með til­liti til stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla. Viðreisn telur að erlendir miðlar sem aug­lýsa á Íslandi, svo sem Facebook og Google, skuli greiða skatta til íslenska rík­is­ins, til jafns við aðra aug­lýs­inga­miðla.“

Þessir þrír flokkar mæl­ast sam­tals með 36,6 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þeir sem boða ekki styrki en aðrar skýrar aðgerðir

Píratar fjalla nokkuð ítar­lega fjöl­miðla í kosn­inga­stefnu­skrá sinni. Þar segir meðal ann­ars að ætli að fram­kvæma heild­ar­stefnu­mótun til að styrkja fjöl­miðla á Íslandi og auð­velda þeim aðhalds- og eft­ir­lits­hlut­verk sitt með stjórn­völdum. „Gerð heild­stæðrar stefnu er for­senda breyt­inga í mála­flokknum, því búta­saums­lausnir síð­ustu ára hafa hyglað stærri fjöl­miðlum. Stefnan mun taka til­lit til allra þátta í laga­legu og fjár­hags­legu umhverfi fjöl­miðla af öllum stærðum.“

Þá vilja Píratar taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði til að styrkja tekju­öfl­un­ar­mögu­leika ann­arra miðla en tryggja rík­is­miðl­inum þess í stað næg fram­lög til að standa straum af inn­lendri dag­skrár­gerð, örygg­is­hlut­verki, menn­ingar- og mennta­hlut­verki og rekstri frétta­stofu. „Afnemum nef­skatt­inn sem leggst hlut­falls­lega þyngst á þau sem minnst hafa og fjár­mögnum RÚV þess í stað með hefð­bundnum sköttum.“

Píratar benda á að stærstu iðn­ríki heims hafi náð sam­komu­lagi um að skatt­leggja netrisa, sem taki til sín sífellt meira aug­lýs­ingafé á ári hverju. „Ísland á að feta í sömu fót­spor og fjár­magna þannig stuðn­ing til íslenskra fjöl­miðla.“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur þá stefnu að vilja styrkja skoð­ana- og tján­ing­ar­frelsi. Í því felst að styðja frjálsa fjöl­miðla með því að styrkja blaða­menn beint í stað þess að styrkja „rit­stjórnir fjöl­miðla í eigu auð­fólks“.

Flokk­ur­inn vill auka sjálf­stæði RÚV og gera fyr­ir­tækið aftur að stofnun. Í því felst að auka völd auka völd starfs­fólks og breikka stjórn þess svo full­trúar almanna­sam­taka eigi þar sæti. „Breyta Rík­is­út­varp­inu í þjóð­ar­út­varp, kljúfa það frá flokks­ræði elítu­stjórn­mál­anna.“

Sam­an­lagt fylgi þess­ara tveggja flokka er 19 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þeir sem eru ekki skýrir um hvað þeir vilja

Fjöl­miðla­mál heyra undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, þar sem Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ráðið ríkjum á kjör­tíma­bil­inu.

Flokk­ur­inn fjallar ekk­ert um fjöl­miðla í sinni kosn­inga­stefnu­skrá en í almennri stefnu­skrá flokks­ins segir hins vegar að fjöl­miðlar séu mik­il­væg upp­lýs­inga­veita almenn­ings í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi. „Auka þarf gagn­sæi um útbreidda fjöl­miðla þannig að eign­ar­hald sé skýrt sem og til að koma í veg fyrir sam­þjöppun. Rík­is­út­varpið á að gegna mik­il­vægu hlut­verki í íslensku sam­fé­lagi með hlut­lægri umfjöllun og standa vörð um ísl. tungu. Á RÚV hvílir rík, lýð­ræðis- og sam­fé­lags­leg skylda og því ber að þjóna öllu land­inu. Útvarps­gjaldið verður því að renna óskipt til RÚV.“

Framsókn mælist með 12,7 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þeir sem fjalla ekkert um fjölmiðla í stefnum sínum

Ekkert um fjöl­miðla er að finna í stefnu­skrá Flokks fólks­ins. Sömu sögu er að segja um þau stefnu­plögg sem Mið­flokk­ur­inn hefur birt. Ekkert var fjallað um stöðu fjöl­miðla í stjórn­mála­á­lyktun lands­þings hans sem sam­þykkt var um miðjan ágúst og það er heldur ekk­ert um fjöl­miðla í grunn­stefnu Mið­flokks­ins.

Flokk­ur­inn sendi þó frá sér til­kynn­ingu í des­em­ber 2019 þar sem hann lagði meðal ann­ars til það sem hann kall­aði „nýja og betri aðferð til að styðja við einka­rekna miðla“ með það að mark­miði að draga hægt og rólega úr yfir­burða­stöðu RÚV á fjöl­miðla­mark­aði. „Til­lög­urnar eru tví­þættar. Annars vegar ganga þær út á að almenn­ingur fái að velja með hvaða hætti stuðn­ingur skilar sér til einka­rek­inna fjöl­miðla. Hins vegar er horft til þess að styrkja inn­lenda dag­skrár­gerð í gegnum sam­keppn­is­sjóð sem verður fjár­magn­aður með aug­lýs­inga­sölu hjá Rík­is­út­varp­inu.“

Sam­an­lagt fylgi þess­ara tveggja flokka mælist ell­efu pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár