Nefnd búin að afgreiða fjölmiðlastyrki og umsóknarfrestur verður til loka maímánaðar

Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar hefur skilað áliti um stuðn­ings­kerfi til fjöl­miðla. Þar er lagt til að þrengja skil­yrði fyrir stuðn­ingi úr rík­is­sjóði og gild­is­tími lag­anna er færður í eitt ár.

Páll Magnússon er formaður allsherjar- og menntamálanefndar.
Páll Magn­ús­son er for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar hefur birt nefnd­ar­á­lit sitt um frum­varp vegna stuðn­ings við einka­rekna fjöl­miðla. Frum­varpið var afgreitt úr nefnd­inni í byrjun viku og sam­kvæmt álit­inu vill meiri­hlut­inn gera nokkrar breyt­ingar á frum­varp­inu. Þar ber hæst að sett verði þrengri skil­yrði um til að telj­ast stuðn­ings­hæfur fjöl­mið­ill. Sú þreng­ing felur í ann­ars vegar í sér að lág­marks­út­gáfu­tíðni prent­mið­ils þar að vera að minnsta kosti 20 útgáfur á ári og aðrir miðlar sem hljóti styrk þurfi að „miðla nýjum fréttum, frétta­tengdu efni eða umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.“

Í frum­varp­inu sem Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lagði fram í des­em­ber stóð að launa- og verk­taka­kostn­aður allra sem öfl­uðu og miðl­uðu efni væri stuðn­ings­hæfur. Meiri­hlut­inn hefur lagt til að þessi skil­yrði verði þrengd veru­lega og að þeir miðlar einir verði stuðn­ings­hæfir sem afli og miðli „fréttum, frétta­tengdu efni og umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni.“

Til stóð að frum­varpið myndi gilda frá 1. jan­úar 2021, að umsókn­ar­ferli þeirra miðla sem eru stuðn­ings­hæfir væri til 31. mars. Þær dag­setn­ingar eru aug­ljós­lega liðnar og í áliti meiri­hlut­ans er gert ráð fyrir að fjöl­miðlar hafi út maí­mánuð til að sækja um styrki, sem bendir til þess að afgreiða eigi frum­varpið í næstu eða þarnæstu viku.

[adspot]Meiri­hlut­inn vill hins vegar að stuðn­ings­kerfið gildi ein­ungis í eitt ár, þ.e. að stuðn­ingur verði greiddur út til fjöl­miðla vegna kostn­aðar sem féll til á árinu 2020 ein­vörð­ungu. Þetta er rök­stutt þannig í áliti hans að fram hafi komið sjón­ar­mið um að „skýra þurfi aðferða­fræði við útreikn­ing stuðn­ings­kerf­is­ins betur og tryggja að fyr­ir­komu­lagið verði til þess fallið að hafa jákvæð áhrif á fjöl­breytni og fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði. Sömu­leiðis þurfi að huga að stöðu smærri fjöl­miðla í þessu sam­hengi. skýra þurfi aðferða­fræði við útreikn­ing stuðn­ings­kerf­is­ins betur og tryggja að fyr­ir­komu­lagið verði til þess fallið að hafa jákvæð áhrif á fjöl­breytni og fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði.

Meiri­hlut­inn vill taka til skoð­unar hvort koma eigi upp sam­keppn­is­sjóði til að jafna rekstrar- og sam­keppn­is­stöðu fjöl­miðla. „Meiri hlut­inn telur æski­leg­ast að fyr­ir­komu­lag stuðn­ings­kerf­is­ins sem kveðið er á um í frum­varpi þessu verði tekið til nán­ari skoð­unar, m.a. með hlið­sjón af fram­an­greindum sjón­ar­miðum, en verði jafn­framt tekið til skoð­unar sam­hliða þeirri end­ur­skoðun sem á sér stað á skatt­lagn­ingu erlendra efnis- og streym­isveitna. Í ljósi þessa telur meiri hlut­inn að svo stöddu ástæðu til að um verði að ræða tíma­bundið stuðn­ings­kerfi sem gildi til 31. des­em­ber 2021 vegna miðl­unar á fréttum og frétta­tengdu efni árið 2020.“

Undir nefnd­ar­á­litið skrifa allir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna. Nefnd­ar­menn síð­ast­nefnda flokks­ins gera það þó með fyr­ir­vara án þess að sá fyr­ir­vari sé skýrður í álit­inu.

Von er á að minnsta kosti einu minni­hluta­á­liti um málið sem Sam­fylk­ingin, Píratar og lík­lega Viðreisn munu skrifa upp á. Heim­ildir Kjarnans herma að þar verði lýst yfir stuðn­ingi við frum­varpið í meg­in­at­riðum en ýmsar breyt­ing­ar­til­lögur lagðar fram.

Óbreytt þak og þorrinn til þriggja fyrirtækja

Samkvæmt frum­varp­inu stendur til að útdeila 400 millj­ónum króna í styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla. Búið er að gera ráð fyrir þeirri upp­hæð á fjár­lögum yfir­stand­andi árs.

Samkvæmt frum­varp­inu er hægt að sækja um 25 pró­sent end­ur­greiðslu á stuðn­ings­hæfum kostn­aði en stuðn­ingur hvers og eins getur ekki orðið meiri en 25 pró­sent af fjár­veit­ingum til verk­efn­is­ins. Það þýðir að styrkur getur aldrei orðið meiri en 100 millj­ónir króna.

Það er byggt á svip­uðum grunni og sér­stakur neyð­ar­styrkur til einka­rek­inna fjöl­miðla vegna COVID-19, sem greiddur var út í fyrra, en er að mörgu leyti ólíkt fyrri frum­vörpum um málið sem lögð hafa verið fram. Meiri áhersla var í neyð­ar­styrknum og fyr­ir­liggj­andi frum­varpi sem stjórn­ar­flokk­arnir styðja að koma sem mestum hluta upp­hæð­ar­innar sem er til skipt­anna til þriggja stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins.

Sú áhersla birt­ist í því að hámarks­upp­hæð sem hvert fyr­ir­tæki gæti sótt í stuðn­ings­kerfið var hækkuð úr 50 í 100 millj­ónir króna. Fyrir vikið skert­ust greiðslur í fyrra sem upp­­runa­­lega voru ætl­­aðar 20 smærri fjöl­miðla­­fyr­ir­tækjum um 106 millj­­ónir króna en sama upp­­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­­urs, Sýnar og Torgs. Þessi þrjú fyr­ir­tæki fengu sam­tals 64 pró­sent af upp­hæð­inni sem deilt var út. Smærri miðl­arnir fengu tæp­lega 18 pró­sent af rekstr­ar­kostn­aði sínum end­ur­greiddan í stað þeirra 25 pró­sent sem til stóð að þeir fengu.

Meiri­hlut­inn gerir enga til­lögu um breyt­ingu á þess­ari til­högun.

Hluti athugasemda fjölmiðlanefndar hunsaðar

Við með­ferð máls­ins hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd komu fram ýmis­konar athuga­semdir við frum­varpið, meðal ann­ars frá fjöl­miðla­nefnd. Sú nefnd kall­aði meðal ann­ars eftir því að aðferð­ar­fræðin við útdeil­ingu styrkja yrði skýrð betur.

[links]Fjöl­miðla­nefnd kall­aði meðal ann­ars eftir því að ef hlutur stuðn­ings­hæfs rekstr­ar­kostn­aðar hjá fjöl­miðli sem mun sækja um styrk sé hærri en 100 millj­ónir króna beri að miða við að hlutar við­kom­andi fyrir hlut­falls­lega skerð­ingu telj­ist aldrei hærri en 100 millj­ónir króna. Stuðn­ing­ur­inn eigi svo að skerð­ast í jöfnum hlut­föllum þar til að heild­ar­upp­hæðin sé sú sama og áætl­aðar fjár­veit­ingar til verk­efn­is­ins. Slík breyt­ing myndi leiða til þess að Árvakur og Sýn myndu fá lægri styrki en þau fengu í fyrra, en að allir aðrir miðlar myndu fá hærri styrki. Meiri­hlut­inn tekur ekki til­lit til þess­arar til­lögu og breyt­ingin er ekki hluti af áliti hennar.

Fjöl­miðla­nefnd gerði fleiri athuga­semdir í umsögn­inni, meðal ann­ars við að allir séu styrkja­hæfir sem fjalli um „sam­fé­lags­leg mál­efni“. Nefndin taldi hug­takið ekki nægi­lega skýrt nægi­lega og að fyrir hendi sé mögu­leiki á því að fjöl­miðlar sem fjalla t.d. ein­vörð­ungu um beinar útsend­ingar eða texta­lýs­ingar af íþrótta­kapp­leikjum eða trú­mál, eins og sjón­varps­stöðin Omega, gætu talist styrkj­ar­hæf.

Þá lagði fjöl­miðla­nefnd til að skýr­ingum á hug­tak­inu „frétta­tengt efni“ yrði bætt við ákvæði frum­varps­ins. „Að mati nefnd­ar­innar er t.d. ekki full­kom­lega skýrt hvort íþrótta- og veð­ur­fréttir telj­ist falla undir hug­takið. Hið sama á við um aðra umfjöllun um íþróttir, þar á meðal beinar útsend­ingar og texta­lýs­ingar frá íþrótta­kapp­leikjum og -mótum.“

Tekið er til­lit til athuga­semda fjöl­miðla­nefndar hvað þetta varðar að hluta. Hugtakið „sam­fé­lags­leg mál­efni“ er enn inni í frum­varp­inu en hug­tak­inu „frétta­tengt efni“ hefur verið bætt við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár