Segist sjá fyrir sér „premium“ áskrift að Vísi en mikilvægt sé að sinna áfram almannaþjónustu

For­stjóri Sýnar bendir á að nán­ast allir fjöl­miðlar á Norð­ur­löndum séu með efni á bak­við greiðslu­gátt. Frumvarp um styrkja­kerfi einka­rek­inna fjöl­miðla var afgreitt úr úr nefnd í gær og er á leið til ann­arrar umræðu í þing­inu.

Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son er for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, seg­ist geta séð fyrir sér eins konar „prem­ium“ áskrift af Vísi sem veiti aðgang að enn meira efni en stendur öðrum not­endum til boða. Það sé samt sem áður mik­il­vægt að mið­ill­inn haldi áfram að sinna hlut­verki sínu sem almanna­þjón­usta. Þetta kemur fram í við­tali við Heiðar í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

Sýn er fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem er skráð á markað og stærstu eig­endur þess eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Árið 2017 keypti Sýn stóran hluta af fjöl­miðlum 365 miðla – Vísi, Stöð 2 og fjölda útvarps­stöðva – og víkk­aði þar með rekstur sinn veru­lega. Mikill tekju­sam­dráttur hefur orðið hjá þeim fjöl­miðlum síðan að Sýn keypti þá en frá lokum árs 2018 og til síð­ustu ára­móta hafa tekjur Sýnar vegna fjöl­miðl­unar lækkað um rúm­lega einn millj­arð króna.

Heiðar segir í við­tal­inu að sam­þætt­ingin hafi ekki gengið sem skyldi en að við­skipta­hug­myndin á bak­við sam­ein­ingu fjar­skipta og fjöl­miðla sé enn góð og gild. Lækkun áskrifta­verðs fyrir sjón­varps­stöðvar Sýnar, sem reknar eru undir merkjum Stöðvar 2, hafi til að mynda skilað sér í mik­illi fjölgun áskrif­enda og ákvörðun um að læsa frétta­tíma Stöðvar 2 hafi gert það að verkum að áskrif­endum hafi fjölgað í þús­unda­tali.

Ein hugmynd að setja Vísi á bakvið greiðslugátt

Í við­tal­inu er Heiðarspurður hvort það sé í píp­unum að setja til dæmis hluta af Vísi.is, sem hefur á stundum verið mest lesna frétta­vef lands­ins á þessu ári, á bak­við greiðslu­gátt þannig að not­endur þurfi að greiða fyrir efni. Heiðar segir það vera eina hug­mynd og að nán­ast allir fjöl­miðlar á Norð­ur­lönd­unum séu með efni á bak­við greiðslu­gátt. Hér­lendis eru tveir stærstu vef­frétta­miðl­arnir, Vísir og mbl.is, hins vegar með opinn aðgang að öllu sínu efni. „Ég get séð fyrir mér eins konar „prem­ium“ áskrift að Vísi sem veitir aðgang að enn meira efni og sníður við­mótið eftir höfði neyt­and­ans.“

[adspot]Það er samt sem áður mik­il­vægt að mati Heiðars að Vísir sinni líka áfram hlut­verk sitt sem almanna­þjón­usta. Í umsögn um fjár­laga­frum­varp síð­asta árs sem Sýn skil­aði inn sagð­ist félagið að það ræki fjöl­miðla í almanna­þjón­ustu án þess að fá sér­stak­lega greitt fyrir það úr rík­is­sjóði líkt og RÚV fær. Ef það eigi að auka rík­is­stuðn­ing til fjöl­mið­ils sem rekin sé í almanna­þágu geti sú fjár­veit­ing allt eins runnið til fjöl­miðla sem reknir eru af Sýn.

Heiðar segir í við­tal­inu að hann telji Vísi eiga mikið inni og á síð­asta árs­fjórð­ungi hafi aug­lýs­inga­tekjur mið­ils­ins auk­ist um 15 pró­sent þegar miðað er við sama tíma­bil í fyrra.

Styrkjafrumvarp afgreitt út úr nefnd

Heiðar ræðir einnig um stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla hér­lendis og segir að það sé ótrú­legt að stjórn­völd hafi ekki gripið til aðgerða vegna ásóknar sam­fé­lags­miðla í aug­lýs­inga­tekjur íslenskra fjöl­miðla, en sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækin greiða enga skatta af þeirri tekju­öflun hér­lendis. Um er að ræða millj­arða­til­færslu á tekjum úr landi sem hefur veikt rekstr­ar­grund­völl einka­rek­inna íslenskra fjöl­miðla veru­lega. Heiðar segir það ótrú­legt að stjórn­völd hafi ekki kippt þessu ástandi í lið­inn þar sem þau hafi skýra hags­muni af því að vernda íslenska fjöl­miðlun.

Þess í stað sé allur fókus á því að koma á fót styrkja­kerfi fyrir fjöl­miðla, sem í felst að dreifa 400 millj­ónum króna á milli allra þeirra sem keppa við RÚV í miðlun á frétta­tengdu efni. Heiðar segir það frum­varp ekki bjarga neinu. „Það er plástur á sár sem stækkar og stækkar.“

[links]Mælt var fyrir frum­varpi um styrkja­kerfið í des­em­ber í fyrra og það hefur verið til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd alla tíð síðan. Frum­varpið var afgreitt út úr nefnd­inni í gær og álit meiri­hluta hennar, sem stjórn­ar­þing­menn skipa, liggur fyrir. Nú er unnið að minni­hluta­á­liti á meðal stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna og von er á mál­inu til ann­arrar umræðu í þing­inu innan tíðar, en verði það að lögum á að klára mót­töku umsókna um styrki í þessum mán­uði.

Til við­bótar við þessa vinnu var í febr­úar mynd­aður starfs­hópur stjórn­ar­þing­manna sem ætlað var að sætta ólík sjón­ar­mið um starf­semi RÚV. Hópurinn átti að rýna lög um RÚV og gera til­lögur að breyt­ingum sem lík­legar eru til að sætta ólík sjón­ar­mið um starf­semi og hlut­verk þess.

Full­trúar flokk­anna eru Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, full­trúi Vinstri grænna sem er jafn­framt for­maður hóps­ins, Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Páll Magn­ús­son, full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi útvarps­stjóri.

Ráð­gert var að þau myndu ljúka störfum eigi síðar en 31. mars en hóp­ur­inn hefur enn ekki lokið störfum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stóð til að hann myndi funda í þess­ari viku og skila svo af sér sér nið­ur­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár