Sýn vill tilnefnt almannaþjónustuhlutverk og fá styrki úr ríkissjóði til að sinna því

Sýn metur nei­kvæð áhrif COVID-19 á rekstur sinn á 1,1 millj­arð króna. Félagið segir ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að það verði til­nefnt með almanna­þjón­ustu­hlut­verk og að ríkið geri samn­ing um að styrkja það fyrir að sinna hlut­verk­inu.

Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son er for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Aug­lýs­inga­tekjur fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lags­ins Sýnar hafa dreg­ist saman um 212 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, vaxta­ber­andi skuldir þess hafa hækkað um 401 milljón króna vegna veik­ingu krón­unnar og skuld­bind­ingar við erlenda birgja – einkum vegna efn­is­kaupa – hafa lækkað um 260 millj­ónir króna. Þá hafa reiki­tekjur félags­ins fallið um 235 millj­ónir króna, sem er um 60 pró­sent sam­dráttur miðað við sama tíma­bil í fyrra.Samtals metur Sýn því nei­kvæð áhrif heims­far­ald­urs­ins á rekstur sinn á 1,1 millj­arð króna.

Þetta kemur fram í umsögn sem Páll Ásgríms­son, sem situr í fram­kvæmda­stjórn Sýnar, hefur skilað inn um fjár­laga­frum­varpið fyrir hönd Sýnar.

Þar segir einnig að Sýn sé nú þegar að reka fjöl­miðla í almanna­þjón­ustu án þess að fá sér­stak­lega greitt fyrir það úr rík­is­sjóði líkt og RÚV fær. Ef það eigi að auka rík­is­stuðn­ing til fjöl­mið­ils sem rekin sé í almanna­þágu geti sú fjár­veit­ing allt eins runnið til fjöl­miðla sem reknir eru af Sýn.

Sýn, sem var upp­haf­lega fjar­skipta­fé­lag, keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum í lok árs­ins 2017. Um er að ræða ljós­vaka­miðla á borð við Stöð 2, Bylgj­una og tengdar útvarps­­­stöðvar og frétta­vef­inn Vísi. Félagið tap­aði alls 402 millj­ónum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og hefur tapað alls 2,1 millj­arði króna frá upp­hafi síð­asta árs.

Svar við umsögn RÚV

Ástæða þess að Sýn skil­aði inn umsögn er sú að Stefán Eiríks­son, útvarps­stjóri RÚV, gerði slíkt hið sama fyrir skemmstu. Þar kom fram að aug­lýs­inga­tekjur RÚV verði um 300 millj­ónum króna lægri á árinu 2020 en áætlað var, beinn auk­inn kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins vegna hlut­verks RÚV í COVID-19 far­aldr­inum væri hátt í 80 millj­ónir króna og geng­is­lækkun og aðrir liðir hafi hækkað fjár­magnsliði fyr­ir­tæk­is­ins um 90 millj­ónir króna.

Rekstr­ar­nið­ur­staða RÚV verði því 470 millj­ónum krónum verri í ár en stefnt var að.

Staðan á næsta ári, 2021, verður mun alvar­legri að sögn Stef­áns. Líkt og Kjarn­inn greindi frá í byrjun októ­ber er gert ráð fyrir því í fjár­laga­frum­varp­inu að fram­lög til RÚV úr rík­is­sjóði verði lækkuð um 310 millj­ónir króna milli ára og verði rúm­lega 4,5 millj­arðar króna. Þau voru rúm­lega 4,8 millj­arðar króna á yfir­stand­andi ári.

[adspot]Heild­­ar­fjár­­heim­ild til fjöl­miðla, sem fjár­mögnuð er með að mestu með inn­heimtu útvarps­gjalds, er áætluð fimm millj­­arðar króna. Það þýðir að 484 millj­­ónir króna munu fara í eitt­hvað annað RÚV. Þar af fara 92 millj­­ónir króna í rekstur Fjöl­miðla­­nefndar en það sem út af stend­­ur, 392 millj­­ónir króna, er ætl­­aður stuðn­­ingur við einka­rekna fjöl­miðla.

Stefán sagði í umsögn­inni að nettó áhrif af fram­an­greindri lækkun útvarps­gjalds­ins væru mun meiri en 310 millj­ónir króna í ljósi þess að RÚV líkt og aðrir standi frammi fyrir verð­lags­hækk­unum á næsta ári í sínum rekstri, þar á meðal vegna nýrra kjara­samn­inga. Því séu raunn­á­hrifin um 400 millj­ónir króna. Stefán sagði auk þess að áfram sé gert ráð fyrir veru­legum sam­drætti í aug­lýs­inga­tekjum á næsta ári. „Árið 2021 mun því í heild vanta yfir 600 m. kr. í fjár­mögnun RÚV,“ skrif­aði Stefán í umsögn sína.

Þessu þyrfti að mæta með „breyt­ingum og sam­drætti í dag­skrár­gerð og frétta­þjón­ustu RÚV.“

Segjast reka fjölmiðla í almannaþágu

Í umsögn Sýnar segir að fyr­ir­tækið hafi mætt sínum sam­drætti með marg­vís­legum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum sem hafi skert sam­keppn­is­stöðu þess gagn­vart RÚV.

Í heims­far­aldr­inum hafi að mati Sýnar komið í ljós hversu mik­il­vægir fjöl­miðlar félags­ins væru í sam­fé­lag­inu og ekki síður hlut­verk þeirra í almanna­vörnum þegar kæmi að miðlun upp­lýs­inga til lands­manna. “Þrátt fyrir breyttar aðstæður hafa fjöl­miðlar Sýnar haldið úti öfl­ugri frétta­þjón­ustu í sjón­varpi, útvarpi og á vefnum[...]Ekki er ofmælt að frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar gegni ein­stæðu hlut­verki sem óháð og ókeypis frétta­veita á fjöl­miðlum sem þorri almenn­ings notar frá degi til dags. Einnig er sér­stök áhersla lögð á fram­leiðslu inn­lends dag­skrár­efnis, sem sýnt er á miðlum félags­ins, sem og gæða barna­efni. Þessu til við­bótar skal bent á að Sýn rekur eina lands­dekk­andi sjón­varps­dreifi­kerfi lands­ins og ann­ast sjón­varps­dreif­ingu m.a. fyrir RÚV. Með vísan til fram­an­greinds má færa fyrir því rök að Sýn reki nú þegar fjöl­miðil í almanna­þágu, þrátt fyrir að lögin um Rík­is­út­varpið byggi á að ein­ungis einn slíkur mið­ill sé rekin hér á landi.“

Vísa til fordæmis í Noregi

Þar sem sú upp­hæð sem fjár­lög ætla til stuðn­ing einka­rek­inna fjöl­miðla, alls 392 millj­ónir króna, sé fjarri því nægj­an­leg til að dekka tekju­tap þeirra vegna COVID-19 sé eðli­legt að fjár­fram­lög til RÚV skerð­ist líka. „Með vísan til þessa er með öllu óverj­andi ef RÚV verði bættur allur skað­inn eins og farið er á leit í umsögn RÚV enda myndi slík aðgerð ein­ungis auka á þá sam­keppn­is­röskun sem þegar leiðiraf tæp­lega 5 millj­arða árlegri með­gjöf frá rík­inu og um 2ja millj­arða aug­lýs­inga­tekna sem stofn­unin aflar sér ár hvert[...]í þessu sam­hengi skal bent á, að ef nið­ur­staðan verður sú að auka rík­is­stuðn­ing til fjöl­mið­ils sem rekin er í almanna­þágu getur sú fjár­veit­ing allt eins runnið til fjöl­miðla sem reknir eru af Sýn hf. í Noregi hefur TV 2 til að mynda verið útnefnt sem fjöl­mið­ill starf­andi í almanna­þágu. Á þeim grund­velli fær TV 2 rík­is­styrk, sem tal­inn er sam­ræm­ast rík­is­styrkja­reglum á Evrópska efna­hags­svæð­inu.“

[links]Í umsögn Sýnar segir ljóst að frétta­stofa Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis, haldi úti þjón­ustu sem sé sam­bæri­leg þeirri frétta­þjón­ustu sem TV2 ann­ast í Noregi og fær rík­is­stuðn­ing fyrir. „Á það einkum við frétta­þjón­ustu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar, sem stuðlar að fjöl­breytni og fjöl­ræði í frétta­flutn­ingi á ljós­vaka­miðlum. Án hennar væri ein­göngu frétta­stofa RÚV starf­andi á ljós­vaka­miðli, sem væri afleitt fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu og nauð­syn­legt aðhald fjöl­miðla. Virðist ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að íslenska ríkið til­nefni Sýn með almanna­þjón­ustu­hlut­verk og geri í fram­hald­inu samn­ing við fyr­ir­tækið hlið­stæðan þeim sem gerður hefur verið við TV2 í Noregi. Myndi slíkur samn­ingur, að upp­fylltum til­teknum skil­yrðum, falla undir hópund­an­þágu SGEI ákvörð­unnar með sama hætti og í Noregi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár