Kolefnishlutlaus Reykjavík 2040

Ný lofts­lags­stefna Reykja­vík­ur­borgar hveður á um að borgin verði kolefna­hlut­laus árið 2040. Grænar áherslur eiga að ríkja í öllum rekstri borg­ar­innar og hefst það átak í ár.

„Neyðarbrautinni“ svokölluðu hefur verið lokað í takti við dóm Hæstaréttar sem féll á dögunum. Reykjavík hefur þegar hafið uppbyggingu íbúðahverfis við nyrðri enda brautarinnar.
„Neyð­ar­braut­inni“ svoköll­uðu hefur verið lokað í takti við dóm Hæsta­réttar sem féll á dög­unum. Reykja­vík hefur þegar hafið upp­bygg­ingu íbúða­hverfis við nyrðri enda braut­ar­innar.

Ný lofts­lags­stefna Reykja­vík­ur­borgar hefur verið sam­þykkt í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur­borgar. Stefnt er að því að borgin verði kolefna­hlut­laus fyrir árið 2040 og að grænar áherslur ráði för í allri ákvörð­un­ar­töku borg­ar­innar. Reykja­vík er fyrsta opin­bera sam­fé­lagið á Íslandi til að lýsa yfir slíkum mark­miðum. Loft­lags­á­ætl­unin verður svo end­ur­skoðuð á fimm ára fresti í takti við Par­ís­ar­sátt­mál­ann sem Ísland hefur und­ir­ritað.

Björn Blöndal, for­maður Borg­ar­ráðs, segir að um stefn­una sé sátt í öllum flokkum. Einn fyr­ir­vari hefur þó verið gerður við stefn­una í borg­ar­ráði; Sjálf­stæð­is­menn áskilja sér rétt til að fylgja eftir sér­stökum áherslum sem ekki eru nefndar í stefn­unni og lúta að sam­göngu­málum, mengun og flæði umferðar.

Til að vega upp á móti þeirri losun sem óhjá­kvæmi­lega verður til á vegum borg­ar­innar og íbúa hennar verður mögu­leg kolefn­is­bind­ing með skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis innan borg­ar­markanna kort­lögð.

Dagur B. Egg­erts­son hefur sagt í sam­tali við Kjarnann að þétt­ing byggðar telj­ist til helm­ings þeirra aðgerða sem borgin getur gripið til í lofts­lags­málum. „Ef við fylgjum ekki þétt­ingu byggðar eftir, þá munum við ekki ná þeim árangri sem við þurfum í [lofts­lags­málum],“ sagði Dagur í sam­tali við hlað­varps­þátt­inn Þukl 2. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann sagð­ist einnig vona að borg og ríki gætu unnið vel saman í lofts­lags­mál­unum. „Þar þurfa allir að vinna saman,“ segir hann.

Íslenska ríkið miðar við að minnka nettólosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 50 til 75 pró­sent árið 2050 miðað við árið 1990. Sú stefnu­mörkun var sett árið 2007 og gildir enn, en víst er að þegar ný stefnu­mótun verður kláruð í kjöl­far inn­leið­ingar Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra hygg­ist mæla fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í upp­hafi þings í ágúst um sátt­mál­ann og full­gild­ingu þeirra skuld­bind­inga sem Ísland mun gang­ast við. Enn á eftir að semja við Evr­ópu­sam­bandið um „sann­gjarna hlut­deild“ Íslands í sam­eig­in­legu lofts­lags­mark­miði Íslands og ESB.

„Borgin skiptir miklu máli þegar kemur að því að hafa frum­kvæði í aðgerðum til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum,“ skrifar Björn Blöndal í tölvu­pósti til Kjarnans. „Borgir um allan heim hafa í raun farið fram úr rík­is­valdi í lofts­lags­málum. Þar skiptir miklu að hafa frum­kvæði að því að vekja almenn­ing til vit­undar um breytt neyslu­mynstur.“

„Borgir um allan heim hafa í raun farið fram úr rík­is­valdi í lofts­lags­málum. Þar skiptir miklu að hafa frum­kvæði að því að vekja almenn­ing til vit­undar um breytt neyslu­mynstur.“

Samkvæmt lofts­lags­stefn­unni hygg­ist borgin ætla að virkja borg­ar­búa til að lifa með lofts­lagsvænni hætti. Til þess verður opnað vef­svæði þar sem almenn­ingi gefst kostur á að kynna sér leiðir til að minnka úrgang frá heim­ilum og stunda vist­vænni lifn­að­ar­hætti. Um leið ætlar borgin að fjölga grend­ar­gámum og stuðla að frek­ari flokkun úrgangs.

Björn segir mik­il­vægt að sveit­ar­fé­lögin standi öll saman að þessum mark­miðum og hjálpi íbúum að lifa á vist­vænni hátt. Rík­is­valdið verði einnig að ganga í takt við þró­un­ina, „þó ekki sé með öðru en að lög og reglur styðji við aðgerðir til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum frekar en að hindra þær,“ skrifar Björn og áréttar að borgin hafi átt í góðu sam­starfi við ríkið í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París.

Grænt í forgang

Lofts­lags­stefna Reykja­vík­ur­borgar er í tveimur hlutum. Annar hlut­inn fjallar um mark­mið í rekstri borg­ar­innar. Í meg­in­at­riðum er mark­miðið að vera kolefn­is­hlut­laust fyrir árið 2040 og að allar ákvarð­anir í rekstri borg­ar­innar verði byggðar á grænum áherslum; um það verði ekk­ert val. Öll svið borg­ar­innar og starf­staðir hennar eiga að taka þátt í grænum skrefum, sér­stöku lofts­lags­verk­efni stjórn­sýsl­unnar í borg­inni, eigi síðar en í árs­lok 2016.

Eitt lyk­il­at­rið­anna í aðgerðum gegn lofts­lags­breyt­ingum er að auka mæl­ingar á þeim þáttum sem tengj­ast losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Það er mik­il­vægt til að hafa yfir­sýn hvar megi gera betur og einnig til að auka skil­virni og hag­ræða í rekstri. Þess vegna verður gert grænt bók­hald yfir notkun jarð­efna­elds­neytis, orku­notkun, úrgangs­magn og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Bók­haldið verður svo birt árlega á vef­síðu Grænna skrefa.

Lyk­il­hug­tök sam­fé­laga um allan heim þegar kemur að lofts­lags­að­gerðum eru tvö: aðgerðir og aðlögun. Aðgerð­irnar eiga að miða að því að sporna við þeim breyt­ingum sem þegar eiga eftir að verða en aðlög­unin er mik­il­væg til að sam­fé­lög geti þrif­ist í breyttum veru­leika sem fylgir þeim lofts­lags­breyt­ingum sem eru óhjá­kvæmi­legar. Borgin ætlar þess vegna að ráð­ast í frekara mat á flóða­hættu og öðrum þáttum sem okkur þykja sjálf­sagðir í dag eins og aðgengi að hreinu vatni.

Íslenskt forskot

Sam­göngur eru helsti meng­un­ar­valdur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Reykja­vík­ur­borg hefur raun­veru­lega for­skot á aðrar borgir í heim­inum vegna þessa, enda þurfa stærstu borgir í heimi að stuðla að orku­skiptum við hús­hitun og raf­magns­notkun á heim­ilum. Í Reykja­vík veldur hús­hitun og raf­magns­notkun nær engri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Raf­magnið fáum við úr vist­vænum vatns­afls­virkj­unum og við notum jarð­hita til hús­hit­unar.

Með þéttingu byggðar í borginni verða til auknir hvatar fyrir fólk til að ferðast um á tveimur jafnfljótum, á hjóli eða með almenningssamgöngum frekar en að eiga bíl.
Með þétt­ingu byggðar í borg­inni verða til auknir hvatar fyrir fólk til að ferð­ast um á tveimur jafn­fljótum, á hjóli eða með almenn­ings­sam­göngum frekar en að eiga bíl.

Markmið borg­ar­innar miða þess vegna helst að því að draga úr losun í sam­göngum. Í drög­unum er mark­miðið að hlut­deild bíla­um­ferðar verði 58 pró­sent árið 2030, almenn­ings­sam­göngur telji 12 pró­sent og gang­andi og hjólandi umferð verði 30 pró­sent. Búið er að gera ráð fyrir þessu í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur og borg­ar­búar eru þegar farnir að taka eftir breyt­ingum á umferð­ar­æðum og göngu­stígum sem eiga að stuðla að þessu. Árið 2040 er mark­miðið svo að bíla­um­ferð og almenn­ings­sam­göngur muni ekki menga neitt.

Til að ná þessu mark­miði er einnig ætl­unin að efla almenn­ings­sam­göngur veru­lega með hrað­vögnum eða létt­lestum. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa þegar fall­ist á til­lögur um svo­kall­aða Borg­ar­línu sem á að vera hryggjar­stykkið í sam­göngu­kerfi svæð­is­ins. Ljóst er að þessi áform munu kosta gríð­ar­lega fjár­muni en að sam­fé­lags­legur ávinn­ingur sé mun meiri, eins og dæmi sýna í borg­ar­sam­fé­lögum sem farið hafa þessa leið.

„Þessi vinna mætti að mínu mati vera komin lengra,“ við­ur­kennir Björn þegar hann er spurður hversu langt sam­starfið um borg­ar­lín­una er komið. „Það er þó svo að öll sveit­ar­fé­lögin hafi sam­þykkt svæð­is­skipu­lag sem gerir ráð fyrir borg­ar­línu og í raun breyttum sam­göngu­háttum. Það er risa­skref. Næsta skref er að ráð­ast í beinar aðgerðir til að byggja undir borg­ar­lín­una.“

„Það er þó svo að öll sveit­ar­fé­lögin hafi sam­þykkt svæð­is­skipu­lag sem gerir ráð fyrir borg­ar­línu og í raun breyttum sam­göngu­háttum. Það er risa­skref.“

Þessi efl­ing almenn­ings­sam­gangna á að fara fram í nokkrum skrefum. Að sögn Björns er fyrst á dag­skrá að koma upp for­gangs­reinum fyrir strætó. Þannig munu vagn­arnir geta gengið oftar og hraðar um stofn­leiðir og um leið gera strætó að fýsi­legri kosti fyrir marga. „Ég vil meina að það þurfi að ganga hratt í það mál, helst þannig að fram­kvæmdir hefj­ist strax í ár og á næsta ári. Sveit­ar­fé­lög þurfa að sjá um að greiða fyrir þessu í deiliskipu­lagi hvert á sínum stað.“

Fleiri rafhleðslustöðvar á kostnað bensínstöðva

Auk þess að efla vist­vænar almenn­ings­sam­göngur þá verða settir upp hvatar fyrir almenn­ing til að stuðla að orku­skiptum í umferð­inni. Í sam­starfi við Orku­veitu Reykja­víkur verða settar upp raf­hleðslu­stöðvar víða, enda er reiknað með að raf­væð­ing bíla­flot­ans sé far­sælasta og fljót­leg­asta leiðin í orku­skiptum í sam­göngum á Íslandi. Enn vegur hreina raf­orkan þungt og gefur Reykja­vík for­skot á aðrar borgir.

Til að mæta auk­inni raf­orku­notkunn Reyk­vík­inga þarf hins vegar að fram­leiða meira raf­magn og þess vegna er gert ráð fyrir að kann­aður verði fýsi­leiki þess að reisa vind­myllu­garð innan borg­ar­markanna í sam­vinnu við Orku­veit­una.

Um leið verður jarð­efna­elds­neyt­is­stöðvum fækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Kjarninn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að bens­ín­stöðvum hafi fjölgað mikið hér á landi und­an­farin ár, þvert á þróun víða ann­ars­staðar í Evrópu. Samkvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu er þetta vegna þess að sam­keppn­is­mark­aður með elds­neyti á Íslandi er ekki nægi­lega virkur. Væri eðli­legt ástand hér þar ætti bens­ín­stöðvum að fækka um allt að 30 pró­sent. Ætla má að með auk­inni raf­væð­ingu bíla­flot­ans verði eft­ir­spurn eftir elds­neyti minni eins og þörfin fyrir bens­ín­stöðvar.

Ef eðlilegt samkeppnisumhverfi væri á eldsneytismarkaði á Íslandi myndi eldsneytisstöðvum fækka um 30% að mati Samkeppniseftirlitsins.
Ef eðli­legt sam­keppn­isum­hverfi væri á elds­neyt­is­mark­aði á Íslandi myndi elds­neyt­is­stöðvum fækka um 30% að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Í áætl­un­inni verða hvatar skil­greindir sem miða að fækkun bens­ín­stöðva. „Mark­miðið verði að dælur fyrir jarð­efna­elds­neyti innan borg­ar­markanna verði 50% færri árið 2030 og að mestu horfnar árið 2040,“ segir í stefn­unni.

Ein þeirra aðgerða sem þarf að ráð­ast í til að þessi áætlun verði að veru­leika er að rýna í allt reglu­verk borg­ar­innar með það að mark­miði að ryðja úr vegi hindr­unum þar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem gerði athuga­semd við lofts­lags­stefn­una og áskildi sér rétt til að þrýsta á stýri­hóp um aðgerð­irnar um sér­stakar áherslur í sam­göngu­málum, um mengun og flæði umferðar.

Skipaflotinn raftengdur

Einn mesti meng­un­ar­valdur á Íslandi er skipa­flot­inn. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur grið­ar­legra hags­muna að gæta í lofts­lags­málum enda reiða fyr­ir­tækin sig á auð­lindir sem gætu hugs­an­lega yfir­gefið lög­sög­una ef hita­stig sjávar hækkar og hafið súrnar, eins og rann­sóknir benda til að þegar sé farið að ger­ast. Stærsta höfn lands­ins er í Reykja­vík og þess vegna er mik­il­vægt að byggja upp vist­væna inn­viði fyrir sjáv­ar­út­veg­inn þar. Í áætl­unum borg­ar­innar er stefnt að raf­vægð­ingu Faxa­flóa­hafnar með sam­starfi við ríkið, orku­sölu­fyr­ir­tæki og aðrar hafnir.

Ekki hefur verið hægt að tengja stærri togara við rafmagn úr landi í Reykjavíkurhöfn. Áætlunin gerir ráð fyrir að á því verði ráðin bót.
Ekki hefur verið hægt að tengja stærri tog­ara við raf­magn úr landi í Reykja­vík­ur­höfn. Áætlunin gerir ráð fyrir að á því verði ráðin bót.

Í höfn­inni ganga stærstu tog­arar og kranar fyrir olíu við löndun enda hefur ekki verið unnt að tryggja tog­ur­unum nægt rafafl til að knýja frysti­kerfi og kana. „Hafn­irnar hafa ekki fjár­hags­legt bol­magn til að koma þessum bún­aði upp og því [er] lagt til að það verði gert með fjár­stuðn­ingi rík­is­ins,“ segir í minn­is­blaði Gísla Gísla­sonar, hafn­ar­stjóra í Reykja­vík, sem vitnað er í í áætlun borg­ar­innar.

Landnýtingin enn lykilatriði

Í öllum áformum borg­ar­yf­ir­valda er þétt­ing byggðar for­senda þess að fram­tíð­ar­sýnin verði að veru­leika. Land­nýt­ing borg­ar­lands­ins þarf að verða betri til þess að hámarka ábata af borg­ar­lín­unni og bættu almenn­ings­sam­göngu­kerfi; til þess að stytta ferðir borg­ar­búa og búa til hvata fyrir þá til að nota síður meng­andi einka­bíla.

Þessi sýn er kort­lögð og útfærð ítar­lega í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur sem sam­þykkt var árið 2010. Þar hefur verið lögð áhersla á upp­bygg­ingu borg­ar­innar á auðum eða illa nýttum svæðum nærri kjarna borg­ar­innar, í stað þess að þenja borg­ar­landið út. Einnig er þar kort­lagt hvernig hjóla­stígar eiga að verða til á kostnað bíla­um­ferðar í borg­inni.

Landnýting skiptir höfuðmáli í borgarlandinu þegar kemur að loftslagsmálum. Mynd: Birgir Þór
Land­nýt­ing skiptir höf­uð­máli í borg­ar­land­inu þegar kemur að lofts­lags­málum. Mynd: Birgir Þór

Skipu­lagið sem unnið er eftir núna hefur ekki verið óum­deilt. Ber þar helst að nefna lokun Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni þar sem fyr­ir­hugað er að reisa nýtt íbúða­hverfi og þjón­ustu­kjarna. Fjölgun hjól­reiða­stíga hefur einnig verið gagn­rýnd, sér­stak­lega þar sem bíla­um­ferð­ar­götur hafa verið þrengdar til að koma fyrir umferð hjólandi og gang­andi veg­far­enda.

Þegar kemur að land­nýt­ingu má heldur ekki gleyma að mik­il­væg aðgerð til þess að ná kolefna­hlut­leysi borg­ar­innar er jarð­rækt. Skógrækt og end­ur­heimt vot­lendis er við­ur­kennd mót­væg­is­að­gerð gegn útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Lofts­lagstefna borg­ar­innar er nokkuð rót­tæk í íslenskum veru­leika. Hvorki ríki eða önnur sveit­ar­fé­lög hafa lagt fram svo rót­tæka áætlun í lofts­lags­málum en er þeim til eft­ir­breytni ef póli­tískur vilji er til þess að standa við mark­miðin sem Ísland und­ir­rit­aði í New York í apríl, sjálfan lofts­lags­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra hygg­ist leggja fyrir alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að sátt­mál­inn verði færður í lög hér á landi og Ísland standi við þær skuld­bind­ingar sem enn á eftir að semja um við Evr­ópu­sam­bandið.

Tengt efni

Samtal við Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París, 2. des­em­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár