Enn hefur ekki verið samið um hlutdeild Íslands í loftlsagsmarkmiðum

Fyrsta skrefið í full­gild­ingu lofts­lags­samn­ings­ins verður stígið þegar þing kemur saman í ágúst. Aðeins óform­legar við­ræður hafa átt sér stað milli Íslands og ESB um hlut­deild Íslands í sam­eig­in­legum lofts­lags­mark­miðum.

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra, mun mæla fyrir þingsályktunartillögu um fullgildingu loftslagssáttmála þegar Alþingi kemur saman á ný í ágúst.
Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, mun mæla fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um full­gild­ingu lofts­lags­sátt­mála þegar Alþingi kemur saman á ný í ágúst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stefnt er að því að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um full­gild­ingu lofts­lags­sátt­mála þegar Alþingi kemur aftur saman í ágúst. Nú er unnið að gerð til­lög­unnar í umhverf­is­ráðu­neyt­inu en Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, und­ir­rit­aði Par­ís­ar­samn­ing­inn fyrir hönd Íslands í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna 22. apríl. Þing kemur saman á ný 15. ágúst.

Full­trúar 160 ríkja hafa und­ir­ritað samn­ing­inn sem gerður var í París í des­em­ber á stærstu ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna frá upp­hafi. Um er að ræða laga­lega bind­andi alþjóða­samn­ing undir Ramma­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál sem stuðlar að því að ríki heims dragi úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið og býr til hvata fyrir ríki til að binda meira af kolefni. Með­al­hiti jarðar má ekki fara yfir tvær gráður, miðað við með­al­hita jarðar fyrir iðn­bylt­ingu, sam­kvæmt samn­ingnum án þess að illa fari fyrir mann­kynið.

Í svari umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að nú sé unnið að þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni sem lögð verður fyrir Alþingi í sum­ar­lok. Þar verði fyrsta skrefið tekið að full­gild­ingu samn­ings­ins hér á landi. Samfara vinnu við gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar vinnur Þýð­ing­ar­mið­stöð að íslenskri þýð­ingu á samn­ingnum, en þýð­ing þarf að liggja fyrir áður en leggja má skjölin fyrir þingið.

Ísland setti sér lofts­lags­mark­mið fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum auk Noregs. Áður en Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn verður leiddur í lög hér á landi þarf Ísland að ljúka samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið um sína „rétt­látu hlut­deild“ í lofts­lags­mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ins, eins lýst var yfir í fyrra. Markmið ESB í lofts­lags­málum er að losa 40 pró­sent minna af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum árið 2030 miðað við árið 1990. Ísland hefur skuld­bundið sig til að minnka losun á sínum „rétt­láta hluta“ í þessu mark­miði, sem enn hefur ekki verið samið um.

Aðeins hafa óform­legar við­ræður farið fram við ESB og Norðmenn en póli­tísk ákvörðun liggur fyrir um að stefnt skuli að sama mark­miði. Form­legri við­ræður geta haf­ist þegar drög að nýjum lofts­lags­reglum ESB verða kynntar í sumar. Stefnt er að því að ljúka við­ræðum við ESB og Norðmenn á næsta ári.

Par­ísa­samn­ing­ur­inn er ekki ósvip­aður Kyoto-bók­un­inni svoköll­uðu sem sam­þykkt var árið 1997 og tók gildi árið 2005. Skuld­bind­ingar aðild­ar­ríkja að Kyoto-bók­un­inni renna út árið 2020 og þá er Par­ís­ar­samn­ingnum ætlað að taka við. Mun fleiri þjóðir hafa skuld­bundið sig til að inn­leiða Par­ís­ar­sam­komu­lagið en inn­leiddu Kyoto-bók­un­ina, þar eru á meðal stærstu meng­un­ar­þjóðir heims.

Frakkar urðu á dög­unum fyrsta stór­þjóðin til að full­gilda Par­ís­ar­samn­ing­inn. Stjórn Francois Hollande, for­seta Frakk­lands, hefur lagt mikla áherslu á að sam­komu­lagið verði full­gilt sem víð­ast um heim­inn. Samn­ing­ur­inn mun ekki verða gildur nema þær þjóðir sem bera ábyrgð á sam­tals 55% útblást­urs í heim­inum full­gilda samn­ing­inn. Hollande hvatti í ræðu sinni í Élysée-höll á dög­unum aðrar Evr­ópu­þjóðir að fylgja for­dæmi Frakk­lands áður en árið væri úti. Þegar hafa 17 minni ríki full­gilt samn­ing­inn, aðal­lega eyþjóðir sem eru sér­stak­lega við­kvæmar fyrir hækk­andi yfir­borði sjávar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár