Fjöldi bensínstöðva í Reykjavík hefur tvöfaldast

Há álagn­ing gerir olíu­fé­lögum kleift að halda úti miklu fleiri bens­ín­stöðvum en raunin væri á virkum sam­keppn­is­mark­aði.

Bens­ín­stöðvum á Íslandi hefur farið fjölg­andi und­an­farin ár, þvert á þróun víða ann­ars staðar í Evrópu. Þetta kemur fram í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lit­is­ins á olíu­mark­aðnum á Íslandi. Há álagn­ing olíu­fé­lag­anna gerir þeim kleift að halda úti svona mörgum bens­ín­stöðvum, en ef það væri virkur sam­keppn­is­mark­aður á Íslandi ætti bens­ín­stöðv­unum að fækka um allt að 30%.

Bens­ín­stöðvum á Íslandi fjölg­aði um 18, sem eru rúm­lega 8%, milli áranna 2005 og 2014. Stærstur hluti fjölg­un­ar­innar var vegna þess að Atl­ants­olía stækk­aði á tíma­bil­inu, en Olís fjölg­aði líka sínum stöðvum um 6.

Fjöldi bens­ín­stöðva í Reykja­vík tvö­fald­að­ist á árunum 1983 til 2010 á meðan íbúum í Reykja­vík fjölg­aði um 35% á sama tíma­bili. Þetta þýðir að færri íbúar eru um hverja bens­ín­stöð, eða tæp­lega 2.700 manns, á meðan að ein bens­ín­stöð var fyrir hverja fjögur þús­und íbúa árið 1983. Á Akureyri eru þrettán bens­ín­stöðvar, sem gerir eina bens­ín­stöð fyrir hverja 1.400 íbúa.

Það er há álagn­ing sem gerir olíu­fé­lögum kleift að halda úti fleiri bens­ín­stöðvum en ann­ars, segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Eins og Kjarninn hefur greint frá segir eft­ir­litið að álagn­ing á bensín hafi auk­ist um 19% og á dísel um 50% á und­an­förnum árum. Ef að álagn­ing væri í sam­ræmi við heil­brigðan markað þar sem ekki eru sam­keppn­is­skað­andi aðstæður myndi bens­ín­stöðvum fækka um allt að 30% að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Á virkum mark­aði hefði þetta átt að ger­ast í kjöl­far hruns­ins vegna þess að þá minnk­aði eft­ir­spurn eftir elds­neyti og fyr­ir­tækin áttu í erf­ið­leikum. Það hefði átt að auka sam­keppni um við­skipti, sem hefði leitt til lægri álagn­ingar og óhag­kvæmum bens­ín­stöðvum hefði verið lokað. Mikill fjöldi bens­ín­stöðva bendir hins vegar til þess að sam­keppni sé skert vegna þess að þau stundi sam­hæfða hegðun.

Bens­ín­stöðvum hefur fækkað í tólf af sextán Evr­ópu­löndum sem vísað er til í skýrsl­unni, og mest fækkun verið á Ítalíu, í Frakk­landi og Bret­landi, en í síð­ast­nefnda land­inu hefur bens­ín­stöðvum fækkað um 20% á átta árum.

Selja líka minna bensín

Að með­al­tali selst líka minna af bens­íni á hverri bens­ín­stöð en ger­ist í helstu sam­an­burð­ar­löndum Íslands. Í Noregi og í Svíþjóð er gegn­um­streymi elds­neytis rúm­lega tvö­falt meira en á Íslandi. Þetta á líka við þegar dreif­býlli svæði eru tekin út fyrir sviga og aðeins er skoðað ástandið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samt eru fáir íbúar um hverja bens­ín­stöð og gegn­um­streymið lítið.

Reykjavík gagnrýnd fyrir að takmarka fjölda lóða fyrir bensínstöðvar

Eftir þessa miklu fjölgun bens­ín­stöðva í Reykja­vík hefur borgin tekið upp þá stefnu að tak­marka fjölda lóða undir bens­ín­stöðvar. Þetta er hins vegar líka gagn­rýnt í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, vegna þess að þetta er talið tor­velda aðgang nýrra keppi­nauta að elds­neyt­is­mark­aðnum. Það hefur einnig skað­leg áhrif á mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár