Borgarstjóri: Þýðir lítið að gera samninga ef þeir eru bara brotnir

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Birgir Þór

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, telur íslenska ríkið halda aftur af Reykja­vík­ur­borg þegar kemur að skipu­lags­málum og lofts­lags­málum. „Ef við fylgjum ekki þétt­ingu byggðar þétt eftir, þá munum við ekki ná þeim árangri sem við þurfum í [lofts­lags­málum],“ segir Dagur í sam­tali við þátt­inn Þukl í Hlað­varpi Kjarnans. Þétting byggðar er að mati Dags helm­ingur þeirra aðgerða sem borgin getur gripið til í lofts­lags­málum.

Spurður hvort hann telji ríkið standa borg­inni fyrir þrifum í þessum málum svarar Dagur: „Já, hvað lokun þriðju braut­ar­innar snertir en að öðru leyti þá von­ast ég eftir nánu og góðu sam­starfi í lofts­lags­mál­unum því þar þurfa allir að vinna saman.“

Eins og Kjarninn sagði frá 19. nóv­em­ber þá hyggst Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra, ekki loka þriðju flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli og segir ákvörðun um slíka lokun ekki verða tekna án full­vissu um að lokun braut­ar­innar verði ekki tekin án full­vissu um að lokun hennar komi ekki niður á öryggi flug­vall­ar­ins.

„Það sem gengið hefur verið útfrá, árum og raunar ára­tugum saman, er að þriðja brautin víki,“ segir Dagur. „Um þetta hafa verið gerðir samn­ingar við eina fjóra sam­göngu­ráð­herra; Sturlu Böðv­ars­son, Kristján Möller, Ögmund Jónasson og Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur. Það kemur svo í ljós að ríkið ætlar sér ekki að standa við samn­inga um að loka braut­inni, eða segir það alla­vega. Þannig að við erum á leið í dóms­mál til að knýja á um þetta.“

Dagur telur ýmis­legt liggja þar að veði og tekur dæmi um „prinsippið“ um að það eigi að standa við samn­inga. „Það þýðir lítið fyrir okkur að gera nýjan og nýjan samn­ing ef það er aldrei staðið við það sem þegar er búið að sam­þykkja,“ segir hann. Í öðru lagi nefnir hann bygg­in­ar­verk­efnin sem þegar eru hafin við enda þriðju flug­braut­ar­innar. „Bak við þetta eru stærri hlutir eins og sýnir á það hvernig hag­kvæm, góð lífs­gæða­borg þró­ast inn­á­við. Borgin þarf að standa í lapp­irnar og fylgja þeirri stefnu­mörkun fast eftir.“

Dagur er í ítar­legu við­tali í þætt­inum Þukl í Hlað­varpi Kjarnans. Hægt er að hlusta á þátt­inn hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár