Réttarhöld aldarinnar í Danmörku

„Rétt­ar­höld ald­ar­innar” er heitið sem danskir fjöl­miðlar hafa gefið rétt­ar­höldum yfir kaf­báts­eig­and­anum Peter Madsen. Hann er ákærður fyrir að hafa myrt sænsku blaða­kon­una Kim Wall í ágúst í fyrra. Rétt­ar­höldin hófust sl. fimmtu­dag, 8. mars.

Gríðarlegur fjöldi blaða- og fréttamanna fylgist með réttarhöldunum.
Gríð­ar­legur fjöldi blaða- og frétta­manna fylgist með rétt­ar­höld­unum. Mynd: EPA

Óhætt er að full­yrða að aldrei hafi dóms­mál í Danmörku hafi vakið við­líka athygli umheims­ins og nýhafin rétt­ar­höld fyrir Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar. Málið sem rétt­ar­höldin snú­ast um vakti mikla athygli um víða ver­öld. Ástæður þess eru fleiri en ein: málið sjálft er óhugn­an­legt Kim Wall, sú látna, var þekkt blaða­kona og Peter Madsen, sá ákærði, var sömu­leiðis þekktur vegna upp­finn­inga sinna, kall­aður Raket Madsen, eld­flauga Madsen. Hann er sjálf­lærður upp­finn­inga­maður sem hafði árum saman unnið að til­raunum með eld­flauga­mót­ora og síðar fékk hann mik­inn áhuga fyrir kaf­bátum og kaf­báta­smíði og hefur, einn og í félagi við aðra, smíðað þrjá slíka. Sá nýjasti og stærsti er UC3 Nautilus, 17.5 metra langur, stærsti heima­smíð­aði kaf­bátur í heimi. UC3 Nautilus var vett­vangur þeirra atburða sem dóms­málið snýst um.

10. og 11. ágúst 2017

Sænska blaða­konan Kim Wall hafði um nokk­urt skeið ráð­gert að fá við­tal við Peter Madsen fyrir tíma­ritið Wired. Hún hafði haft sam­band við hann vorið 2017 vegna þessa og gefið honum síma­númer sitt. Kim Wall bjó með dönskum unnusta sínum á Refs­haleøen í Kaup­manna­höfn, skammt frá þeim stað sem Peter Madsen var með verk­stæði sitt, og kaf­bát­inn. Að kvöldi 10. ágúst voru gestir hjá Kim Wall og unnust­anum, til­efnið var að parið var á förum til Beijing í Kína þar sem unnust­inn hafði fengið pláss í háskóla en Kim Wall hugð­ist starfa þar sem blaða­maður.

Um átta­leytið það kvöld hafði Peter Madsen sam­band og bauð henni að fara með í sigl­ingu á kaf­bátnum. Kim Wall var á báðum áttum, var með tíu gesti í heim­sókn, en ákvað síðan að þiggja boðið og tal­aði um það við unnust­ann að koma líka. Hann vildi ekki skilja gest­ina eina eftir og Kim Wall fór því ein. Til er mynd af kaf­bátnum á sigl­ingu í kvöldsól­inni og þau Kim Wall og Peter Madsen standa í turn­inum. Nokkru síðar sendi Kim Wall unnust­anum skila­boð og sagði að allt gengi vel, þau væru nú að fara í kaf og „hann tók kaffi og kökur með“. Kim Wall gerði ráð fyrir tveimur klukku­tímum í við­talið og sigl­ing­una. Sími Kim Wall hefur ekki fund­ist, þrátt fyrir mikla leit og sama gildir um síma Peter Madsen en lög­reglu hefur tek­ist að kalla fram upp­lýs­ingar úr síma hans.

Þegar unnust­ann tók að lengja eftir að Kim Wall sneri heim og ekk­ert heyrð­ist frá henni hafði hann sam­band við lög­regl­una. Hún hóf þegar að svip­ast um eftir kaf­bátnum.

Sökkti bátnum

Að morgni 11. ágúst 2017 hófst leit að kaf­bátnum. Fljót­lega sást til hans á Køgeflóa en þegar bátur leit­ar­manna nálg­að­ist stökk Peter Madsen frá borði en kaf­bát­ur­inn sökk. Peter Madsen sagði að hann hefði sett Kim Wall á land á Refs­haleøen og hefði verið einn um borð þegar bát­ur­inn sökk. Lög­reglan trúði ekki þess­ari frá­sögn og hand­tók Peter Madsen og hann var hand­tek­inn, grun­aður um að hafa orðið Kim Wall að bana.

Einum degi síðar var hann úrskurð­aður í gæslu­varð­hald, en áður en sá úrskurður var kveð­inn upp hafði Peter Madsen sagt lög­regl­unni að Kim Wall væri látin og hann hefði „grafið hana til sjós“, varpað lík­inu í sjó­inn. Neitaði að hafa orðið henni að bana. Síðar greindi lög­reglan frá því að sam­kvæmt frá­sögn Peters Madsen hefði þung lúga sem lokar bátnum hefði lent á höfði Kim Wall, hún við það fallið niður á botn báts­ins og lát­ist. Báturinn lá á litlu dýpi á Køgeflóa og var hífður upp (vegur tæp 40 tonn) og tek­inn á land. Mikil leit hófst þegar í stað að líki Kim Wall, þar naut lög­reglan aðstoðar sænsku lög­regl­unnar, sem kom með sér­þjálf­aða hunda.

Margsaga

21. ágúst fannst kven­manns­lík, án höf­uðs og útlima, í fjöru á Amager. Líkið reynd­ist vera af Kim Wall, síðar fund­ust, með dyggri aðstoð sænsku hund­anna, hand­leggir hennar og fætur og enn síðar höf­uðið. Þung járn­rör höfðu verið bundin við alla lík­ams­hlut­ana, lög­reglan telur að það hafi Peter Madsen gert til að lík­ams­hlut­arnir sykkju til botns. Síðar kom fram að mörg stungu­sár voru á búknum, að mati lög­reglu gerð til að gas sem mynd­að­ist í búknum slyppi út og hann flyti síður upp.

[adspot]Á höfð­inu fund­ust engin merki þess að það hefði orðið fyrir þungu höggi, einsog Peter Madsen hafði haldið fram. Hann neit­aði að hafa hlutað líkið sundur og kom nú með nýja skýr­ingu á hvernig dauða Kim Wall hefði borið að. Hún hefði lát­ist vegna eitr­unar sem mynd­að­ist í bátnum, meðan hann sjálfur var ofan­þilja og und­ir­þrýst­ingur sem mynd­að­ist inni í bátnum gerði það að verkum að hann gat ekki opnað hler­ann (þann sem hann hafði áður sagt að hefði lent á höfði Kim Wall). Þegar hann hafði loks getað opnað var það um seinan. Þetta kom fram við yfir­heyrslur í októ­ber en síðan hefur hann ekki rætt við lög­reglu. Við upp­haf rétt­ar­hald­anna kom hann síðan með mjög nákvæma útlistun á hvers vegna hin ban­væna eitrun hefði mynd­ast.

Peter Madsen hefur setið í gæslu­varð­haldi síðan 11. ágúst í fyrra. Gæslu­varð­halds­úr­skurð­ur­inn hefur marg­sinnis verið fram­lengdur án mót­mæla hans.

Upphaf réttarhaldanna

Eins og áður sagði hófust rétt­ar­höldin yfir Peter Madsen í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar (lægsta dóm­stig) fimmtu­dag­inn 8. mars sl. Frétta­menn víða að voru komnir til Kaup­manna­hafnar af þessu til­efni og fyrir utan þá 130 sem fengu að vera í dóm­hús­inu (flestir sátu í mat­salnum) voru tugir frétta­manna utandyra. Samtals er reiknað með 12 dögum í rétt­ar­höldin og dómur verði kveð­inn upp 25. apríl nk. Yfir­vof­andi verk­fall, eða verk­bann, opin­berra starfs­manna gæti þó orðið til þess að sú dag­setn­ing breyt­ist. Alls hafa rúm­lega 200 manns verið yfir­heyrðir vegna máls­ins og 37 þeirra munu bera vitni fyrir dóm­inum. Í stuttum pistli er engin leið að gera nákvæma grein fyrir þessum fyrsta degi rétt­ar­hald­anna og því skulu ein­ungis nefnd nokkur atriði sem að dómi sér­fróðra töld­ust sér­stak­lega athygl­is­verð.

Fyrst skal nefna að sak­sókn­ar­inn (Jacob Buch-Jepsen) greindi frá nið­ur­stöðum geð­rann­sókna á Peter Madsen. Þar kom fram að Peter Madsen væri ekki geð­veikur, en hins vegar algjör­lega sið­blindur, sjúk­legur, og sam­visku­laus lyg­ari. Auk þess væri hann óeðli­legur (per­vers) varð­andi kyn­hegðun. Nánar verður greint frá nið­ur­stöðum geð­rann­sókn­ar­innar síðar í rétt­ar­höld­unum.

Í öðru lagi kom fram í máli sak­sókn­ara að sár í and­liti og á búk Kim Wall kæmu ekki heim og saman við þær útskýr­ingar Peter Madsen að hún hefði lát­ist vegna eitr­unar.

Í þriðja lagi skýr­ingar Peter Madsen á því hvers vegna hann hefði bútað líkið sundur. Ástæðuna sagði hann þá að þegar honum var ljóst að hann kæmi ekki lík­inu í heilu lagi fyrir borð hefði hann brugðið á það ráð að búta það sundur.

Í fjórða lagi vakti athygli skýr­ing Peter Madsen á því hvers vegna hann hefði upp­haf­lega sagt að Kim Wall hefði dáið af völdum höf­uð­höggs. Ástæðu þess sagði Peter Madsen að hann hefði viljað hlífa fjöl­skyldu hennar við þeirri vit­neskju að hún hefði liðið þann kvala­fulla dauð­daga að deyja úr gaseitrun. En sagði jafn­framt að ef líkið hefði ekki fund­ist hefði hann haldið sig við upp­haf­legu frá­sögn­ina (með hler­ann).

[adspot]Sak­sókn­ari greindi enn fremur frá því að um borð í bátnum hefðu fund­ist rifnar nær­buxur og sokka­buxur Kim Wall. Þar hefðu enn fremur fund­ist sund­ur­skornar nælon­reimar, sams­konar og not­aðar voru til að festa járn­rör við lík­ams­hlut­ana, eins og áður var nefnt. Í tölvu, og í síma, Peter Madsen sást að sama dag og hann bauð Kim Wall í sigl­ing­una skoðað mynd­band sem sýndi afhöfðun konu, ásamt ýmsu fleiru af slíku tagi. Margt fleira kom fram í máli sak­sókn­ara, meðal ann­ars tölvu­sam­skipti Peter Madsen við aðrar konur.

Dómstóll götunnar á ekki að ráða

Betina Hald Engmark, verj­andi Peter Madsen lagði höf­uð­á­herslu á að ákæru­vald­inu hefði ekki tek­ist að sýna fram á dán­ar­or­sök Kim Wall og „dóm­stóll göt­unnar“ ætti ekki að ráða nið­ur­stöðu máls­ins.

Varðandi dóm­ara við bæj­ar­rétt­inn eru tveir mögu­leikar. Annars vegar sá að dóm­arar séu þrír tals­ins og auk þess sex með­dóm­arar (ólög­lærðir) hinn mögu­leik­inn er einn dóm­ari og tveir (ólög­lærðir) með­dóm­endur. Sá ákærði getur í raun ráðið hvort fyr­ir­komu­lagið gildir. Peter Madsen valdi seinni kost­inn. Undir lok þessa fyrsta dags rétt­ar­hald­anna sagði Peter Madsen við sak­sóknar­ann „viltu ekki segja til ef þú treystir ekki ein­hverju af því sem ég segi“. Sak­sókn­ari svar­aði um hæl „ég trúi ekki sér­lega mörgu af því sem þú segir“.

Rétt­ar­höld­unum verður fram haldið 21. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár