Ættum að nota hvern einnota poka nokkrum sinnum

Kost­ur­inn við plast­poka­bannið er að það getur vakið fólk til með­vit­undar um umhverf­is­mál en aðal­at­riðið er að minnka neyslu og draga úr löng­un­inni til að fylla alla poka af dóti sem vel hægt er að lifa af án.

Guðni Elísson, pró­fessor í bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands, telur plast­poka­bannið ekki skipta máli þegar litið er á stóra sam­hengið varð­andi lofts­lags­mál en hann hefur rann­sakað mál­flokk­inn til fjölda ára.

„Það mætti hugs­an­lega flækja þetta frekar og segja að ef plast­poka­bann yrði að almennri reglu um allan heim þá værum við í raun að skapa nýjan vanda vegna þess að heild­ar­um­hverf­is­á­hrifin af plast­poka­fram­leiðslu eru miklu minni en til dæmis af papp­írs­pokum, svo við tölum ekki um fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull. Samkvæmt skýrslu sem danska umhverfis- og mat­væla­ráðu­neytið lét vinna eru papp­írs­pokar 40 sinnum frek­ari á nátt­úru­legar auð­lindir en plast­pokar og taupok­arnir 7000 til 20000 sinnum verri. Verst er líf­ræna baðmullin, því hún kallar ein­fald­lega á orku­frek­ari fram­leiðslu, meira pláss, o.s.frv.,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann.

Guðni bætir því við að hér sé hann að sjálf­sögðu að tala um fram­leiðslu­end­ann, en vand­inn við plastið liggi ekki síst í því hvað við gerum við það þegar það hefur gengt hlut­verki sínu. „Ef við tryggðum það að öllu plasti væri fargað eftir kúnst­ar­innar reglum ættu allir fremur að nota plast­poka en til dæmis fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull.“

Reglan ætti að vera að nota hvern einnota poka þrisvar, fjórum sinnum. „Ef við not­uðum alla plast­poka nokkrum sinnum og förg­uðum þeim rétt væri hægt að tvö- til þre­falda töl­urnar frá danska umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Og það má árétta að í dönsku skýrsl­unni er gert ráð fyrir að plastið sé brennt í lokin sem er ekk­ert endi­lega besta leiðin,“ segir hann.

Getur skapað falska umhverfisvitund

Guðni bendir á að kost­ur­inn við plast­poka­bannið geti verið sá að það veki fólk til vit­undar um umhverf­is­málin en ef eina nið­ur­staðan sé sú að við fyllum taupok­ana okkar af sama ákaf­anum og áður sé þetta sýnd­ar­gjörn­ingur, sem skapi falska umhverf­is­vit­und. Aðal­at­riðið sé að minnka neyslu, draga úr löng­un­inni til að fylla alla poka af dóti sem vel hægt er að lifa af án. „En auð­vitað er þetta flókn­ara en svo að hægt sé að svara þessu í svona stuttu máli og þarf að slá alls kyns varnagla.“

[links]Þegar Guðni er spurður út í þá tog­streitu sem mynd­ast getur milli umhverf­is­sjón­ar­miða og lofts­lags­mála þá segir hann að lofts­lags­málin séu auð­vitað umhverf­is­vernd­ar­mál og plast­notkun sé hnatt­rænn vandi. „En auð­vitað breyt­ast áhersl­urnar eftir því sem við víkkum sjón­deild­ar­hring­inn, frá til dæmis stað­bund­inni land­vernd yfir í spurn­ingar um almennar aðgerðir í lofts­lags­málum. Þannig eru margir land­vernd­ar­sinnar umhverf­is­sóðar og um leið brjóta þeir gegn því landi sem þeir segj­ast ætla að vernda. Margir sem láta sig vernd hálend­is­ins varða eru til dæmis með risa­vaxin sót­spor og taka þannig beinan þátt í eyð­ingu lands­ins sem þeir hafa svarið að verja.“

Hann telur að ekki sé hægt að kalla sig umhverf­is­vernd­ar­sinna og taka á engan hátt ábyrgð á sótsporum sínum eins og þurfi að gera með því að tak­marka flug og kjöt­neyslu. „Mér hefur sýnst áherslan vera sú að tryggja að land­inu sé ekki breytt í ein­hvers konar fram­leiðslu­land og leggja til dæmis fremur áherslu á þjón­ustu. Fara frá stór­iðju yfir í túrisma.“ Engu sé breytt með því að horfa á þetta gamla við­horf sem sé því miður allt of ráð­andi.

„En ef rúmur millj­arður flýgur á hverju ári heims­horna á milli til þess að „njóta“ breytir hann jörð­inni á stór­tæk­ari hátt en nokkur uppi­stöðu­lón myndu t.d. gera, þótt vissu­lega auðgi menn líf sitt líka með ferða­lögum. Túrismi er stór­iðja skyn­fær­anna og hann er var­inn af djúp­stæðri þörf eftir neyslu, upp­lif­unum og auð­vitað af skilj­an­legri þörf fyrir að kom­ast út úr nærum­hverf­inu. Íslensk umhverf­is­vernd­ar­stefna hefur fók­userað allt of mikið á það að breyta Íslandi úr fram­leiðslu­svæði yfir í stað þar sem neysla og upp­lifun fer fram. Land­vernd var t.d. styrkt af flug­fé­lag­inu Wow air sem er í raun erfitt að skilja ef við skil­greinum Land­vernd sem umhverf­is­vernd­ar­sam­tök,“ segir Guðni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár