Fjárfesting í „einhverju öðru“ 17faldaðist í fyrra

Fjár­fest­ing í íslenskum tækni- og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum í fyrra var nán­ast jafn­mikil og hún var í Finn­landi. Mest mun­aði um þrjár stórar fjár­fest­ingar. Störfum fjölgar hratt og tekjur aukast. „Eitthvað annað“ er farið að skipta máli.

Gríð­ar­leg aukn­ing varð í fram­taks­fjár­fest­ingu í tækni- og nýsköp­un­ar­geir­unum á Íslandi á síð­asta ári. Alls nam ný fjár­mögnun fyr­ir­tækja sem til­heyra þeim geirum, og eru oft kölluð „eitt­hvað annað", 194 millj­ónum dala, um 25,2 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar nam fjár­fest­ing í þeim 11,5 millj­ónum dala, um 1,5 millj­örðum króna, árið 2014. Hún tæp­lega 17fald­að­ist því í fyrra. Árið 2014 áttu sér stað alls sjö fjár­fest­ingar í þessum geirum en í fyrra voru þær 17 tals­ins. Þetta kemur fram í úttekt sem vef­ur­inn The Nordic Web, sem sér­hæfir sig í umfjöllun um nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja á Norð­ur­löndum, hefur gert.

Vert er að taka fram að þarna er ein­ungis verið að tala um fram­taks­fjár­magn og eigið fé sem fjár­festar hafa lagt íslenskum nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum til, ekki lánsfé sem þau hafa náð sér í. Samhliða þess­ari miklu fjár­fest­ingu í nýsköpun hefur störfum fjölgað mikið og tekjur auk­ist hratt.

Nánast jafn há upphæð og í Finnlandi

Í úttekt Nordic Web er fjallað um 17 fjár­fest­ingar í íslenskum fyr­ir­tækjum. Þorri þeirra átti sér stað á síð­ari hluta árs­ins 2015, eða tólf tals­ins. Þar af duttu átta inn á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins. Heild­ar­upp­hæðin sem íslensku fyr­ir­tækin náðu að krækja í þykir ótrú­lega há, alls 194 millj­ónir dala, eða um 25,2 millj­arðar króna. Það er ekki langt frá heild­ar­fjár­fest­ingu í finnskum fyr­ir­tækjum í tækni- og nýsköpun á árinu 2015. Hún nam 197,5 millj­ónum dala, eða um 25,7 millj­örðum króna. Því fengu nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í Finn­landi „ein­ungis“ um hálfum millj­arði króna meira en íslensk í fjár­fest­ingu í fyrra. Það kemur veru­lega á óvart þar sem sprota- og nýsköp­un­ar­um­hverfið í Finn­landi þykir eitt það þroskað­asta á Norð­ur­lönd­unum, en það íslenska hefur lengi verið talið eft­ir­bátur hinna.

Fimm fjár­fest­ing­anna eru í fyr­ir­tækjum sem fram­leiða efni fyrir sýnd­ar­veru­leika eða tölvu­leiki.

Munar mest um þrjár fjárfestingar

Mest munar um þrjár fjár­fest­ingar. Sú fyrsta er hluta­fjár­aukn­ing Verne Global, sem rekur gagna­ver á Ásbrú í Reykja­nesbæ, í jan­úar 2015. Verne Global náði þar í 98 millj­ónir dala, tæpa þrettán millj­arða króna. SÍA II, fram­taks­sjóður í rekstri hjá Stefni, dótt­ur­fé­lagi Arion banka, kom þá ásamt hópi íslenskra líf­eyr­is­sjóða, nýr inn í hluta­hafa­hóp félags­ins. Stærstu hlut­hafar Verne Global hafa til þessa verið Wellcome Trust, Novator Partners, félag að hluta í eigu Björgóls Thors Björg­ólfs­sonar, og General Catalyst, en félögin tóku öll þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni að þessu sinni. Verne Global tók því til sín tæpan helm­ing allrar fjár­fest­ingar í tækni – og nýsköpun á Íslandi í fyrra.

Í fyrra­sumar fjár­festi kín­verska félagið Gelly Group ætli að fjár­festa í íslenska fyr­ir­tæk­inu Carbon Recycling International fyrir sex millj­arða króna.

Þriðja stóra fjár­fest­ingin var síðan 30 milljón dala, um fjórir millj­arðar króna, fjár­fest­ing eins stærsta fram­taks­sjóðs heims, New Enter­prise Associates (NEA), í CCP í nóv­em­ber. Novator Partners, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, tók einnig þátt í þeirri fjár­fest­ingu.

Á meðal ann­arra fyr­ir­tækja sem náðu í háar fjár­hæðir voru Plain Vanilla, Arctic Trucks, ARK Technology og Sólfar.

Hundruð nýrra starfa og tekjur aukist um tugmilljarða

Fjallað er um nýsköpun og tækni í mark­aðs­punktum Arion banka í dag. Þar segir að vöxtur upp­lýs­inga­tækni, vís­inda­rann­sókna og þró­un­ar­starfs, sem allt fellur undir nýsköpun, er mun hrað­ari en í öðrum geirum á und­an­förnum árum. Í virð­is­auka­skatt­skyldrar veltu var hlut­fall þeirra 2,3 pró­sent frá jan­úar og út októ­ber í fyrra. Árið 2009 var hlut­fall þess­arra liða í þeirri veltu 1,6 pró­sent. Í grein­ingu Arion banka segir: „Virð­is­auka­skattsvelta gefur hug­mynd um efna­hags­um­svif, og því hag­vöxt, en af því má ráða að nýsköpun og tækni hafi átt sinn þátt í efna­hags­bat­anum síð­ustu ár, þó að hann hafi verið fremur lít­ill í stóra sam­heng­inu.“

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum hefur einnig fjölgað mikið á und­an­förnum árum. Þeim fjölg­aði til að mynda um 55 á Íslandi milli áranna 2012 og 2014. Starfs­mönnum þeirra fjölg­aði um 400 og tekjur juk­ust um tæpa 22 millj­arða króna. Virð­is­auk­inn jókst minna, en Arion banki segir að það komi ekki á óvart ef fjöldi fyr­ir­tækja í þessum atvinnu­greinum var í miklum vexti og með hlut­falls­lega litlar eða engar tekjur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár