NEA fjárfestir í CCP fyrir fjóra milljarða króna - Veðjað á sýndarveruleika

Á hlutafa­fundi CCP í dag var til­kynnt um fjár­fest­ingu í fyr­ir­tæk­inu upp á 30 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um fjóra millj­arða króna, sem efla mun starf­semi þess á sviði sýnd­ar­veru­leika (e: Virtual rea­lity, VR). Fjár­fest­ingin er leidd af stærsta fram­taks­sjóði heims; New Enter­prise Associates (NEA), með þátt­töku Novator Partners, fjár­fest­inga­fé­lags í meiri­hluta­eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá CCP.

Á hlutafa­fund­inum voru jafn­framt kynnt drög að samn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins við Sturlu­götu 6 ehf um nýbygg­ingu í Vatns­mýri sem hýsa mun nýjar starfs­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi á svæði Vís­inda­garða Háskóla Íslands. Húsið mun jaframt hýsa fleiri fyr­ir­tæki á sviði tækni­þró­unar og nýsköp­unar. CCP til­kynnti um flutn­ing starf­semi sinnar á Íslandi yfir í Vatns­mýri fyrr á árinu, þar sem jafn­framt voru kynnt áform fyr­ir­tæk­is­ins að styrkja og efla enn frekar sam­starf þess við háskóla­sam­fé­lagið og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki hér­lendis.

„Þessi nýja fjár­fest­ing verður nýtt til að styrkja enn frekar leið­andi stöðu CCP á sviði sýnd­ar­veru­leika, nú þegar þessi nýja tækni er tekin að umbreyta afþreyg­ing­ar­iðn­að­inum,“ segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Harry Weller, einn af stjórn­endum NEA, hefur tekið sæti í stjórn CCP auk þess sem annar full­trúi NEA, Andrew Schoen, hefur tekið sæti varam anns í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins.

CCP hefur þegar til­kynnt um útgáfu á tveimur tölvu­leikjum á sviði sýnd­ar­veru­leika sem vænt­an­legir eru á næstu átta mán­uðum; EVE Valkyriesem koma út fyrir Oculus Rift á PC næsta vor og fyrir PlayStation VR á PlaySation 4 á fyrri helm­ing næsta árs, og Gunjack sem koma mun út fyrir Gear VR búnað Samsung síðar í þessum mán­uði. Hilmar Veigar Pét­urs­son for­stjóri CCP segir í til­kynn­ingu að CCP ætli sér frek­ari land­vinn­inga á sviði sýnd­ar­veru­leika.

„Við höfum fylgst með starf­semi CCP um nokkur skeið. Reynsla fyr­ir­tæk­is­ins af útgáfu EVE Online og braut­ryðj­enda­starf þess á sviði sýnd­ar­veru­leika hefur komið fyr­ir­tæk­inu í fremstu röð á þessum vett­vangi, og við viljum vera sam­starfs­að­ilar þess í enn frek­ari land­vinn­ingum á þessu sviði,“ segir Harry Weller einn af stjórn­endum NEA.

CCP var stofnað árið 1997 í Reykja­vík. Með útgáfu á sínum fyrsta tölvu­leik EVE Online árið 2003 ávann fyr­ir­tækið sér sess sem eitt fram­sækn­asta fyr­ir­tæki tölvu­leikja­geirans og hefur fyr­ir­tækið hlotið fjöl­mörg verð­laun og við­ur­kenn­ingar fyrir leiki sína. Helstu hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins í dag eru Novator, General Catalyst og NEA.

NEA hefur lengi verið í far­ar­broddi i i fjár­fest­ingum á sviði hátækni og heilsu­gæslu. Innan tækni­geirans hefur sjóð­ur­inn meðal ann­ars fjár­fest í fyr­ir­tækjum á sviði hug­bún­að­ar­gerðar, orku­mála og neyt­enda­lausna á net­inu. Sjóð­ur­inn var stofn­aður árið 1977 og hefur fjár­fest í um 650 fyr­ir­tækjum í sex heims­álfum. Eignir hans eru metnar á rúmar 17 millj­arða banda­ríkja­dala.

Nánari upp­lýs­ingar um CCP, NEA og Novator Partners, sem til­teknar eru í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu, má sjá hér að neðan.

CCP

CCP er fram­leið­andi fjöl­spil­unar-tölvu­leikj­anna EVE Online og DUST 514 sem komið hafa út á PC/Mac og PlayStation 3, auk sýnd­ar­veru­leika-leiks­ins Gunjack fyrir Samsung Gear VR. Fyr­ir­tækið er einnig með sýnd­ar­veru­leika­leik­inn EVE: Valkyrie í þróun fyrir PC og PlayStation 4. Fyr­ir­tækið var stofnað í Reykja­vík árið 1997 og hjá því starfa rúm­lega 300 manns á skrif­stofum þess í Reykja­vík, Shanghai, Atlanta og Newcastle.

NEA

New Enter­prise Associates (NEA) er alþjóð­legur fjár­fest­ing­ar­sjóður á sviði fram­taks­fjár­fest­inga (e: venture capital firm) með skrif­stofur í New York, Peking, Shanghai, Mumbai, Bangalore, Boston, Chicago, Timonium við Baltimore, Chevy Shase við Washington og Menlo Park við San Francisco. Félagið sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum á sviði tækni- og heilsu­gæslu á ýmsum þró­un­ar­stgum fyr­ir­tækja, um heim allan. Eignir sjóðs­ins eru í dag metnar á rúmar 17 milljón millj­arða banda­ríkja­dala.

Novator Partners

Novator Partners er fjár­fest­inga­fé­lag með aðsetur í í London sem stýrt er af Björgólfi Thor Bjór­gólfs­syni. Síðustu 10 ár hefur Novator fjár­fest í fjölda fyr­ir­tækja innan síma-, lyfja- og tækni­geirans sem og í fast­eignum og verk­efnum á sviði end­ur­nýt­an­legrar orku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár