Verne Global lýkur 13 milljarða hlutafjáraukningu

Verne Global, sem rekur gagna­ver að Ásbrú í Reykja­nesbæ, hefur lokið hluta­fjár­aukn­ingu upp á allt að 98 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um þrettán millj­örðum króna. SÍA II, fram­taks­sjóður í rekstri hjá Stefni, dótt­ur­fé­lagi Arion banka, kemur ásamt hópi íslenskra líf­eyr­is­sjóða, nýr inn í hluta­hafa­hóp félags­ins. Stærstu hlut­hafar Verne Global hafa til þessa verið Wellcome Trust, Novator Partners, félag að hluta í eigu Björgóls Thors Björg­ólfs­sonar, og General Catalyst, en félögin tóku öll þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni að þessu sinni.

Isaac Kato, fjár­mála­stjóri Verne Global, segir það vera ánægju­legt að fá íslenska líf­eyr­is­sjóði að verk­efn­inu. Í sam­tali við Kjarnann segir Kaato að framundan væri frek­ari upp­bygg­ing á enn betri þjón­ustu við við­skipta­vini félags­ins. „Við höfum sýnt fram á það með sam­starfi við stóra alþjóð­lega við­skipta­vini að Ísland er ákjós­an­legur staður fyrir gagna­ver og það er spenn­andi fyrir okkur að fá breiðan hóp íslenskra fjár­festa að fyr­ir­tæk­inu til að taka þátt í upp­bygg­ingu þess,“ segir Kato við Kjarnann í morgun. Samtals eru um tíu líf­eyr­is­sjóðir sem koma að Verne, þar á meðal Gildi líf­eyr­is­sjóður, Festa og Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn.

Á meðal stærstu við­skipta­vina Verne eru BMW, RMS, Datapipe, CCP og Colt, en Kato segir það vera stefn­una að stækka fyr­ir­tækið hratt, fjölga við­skipta­vinum og styrkja þjón­ust­una. Fyr­ir­tækið er með um 40 stöðu­gildi, en Kato segir að óbein störf séu í það minnsta tvölfalt fleiri. Hann segir mikil tæki­færi vera hér á landi þegar kemur að gagna­verum. Umhverfið sé stöðugt, orku­ör­yggið betra en víð­ast hvar ann­ars staðar og síðan það heill­andi að orkan sem notuð sé komi frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.

Í sam­tali við Kjarnann sögðu Arnar Ragn­ars­son og Trausti Jónsson, sjóðs­stjórar SÍA II, að ánægju­legt væri að koma að áfram­hald­andi þróun gagna­vers­iðn­aðar á Íslandi. Stefnir, sem er með SÍA II í rekstri, er með um 415 millj­arða króna í eigna­stýr­ingu og er stærsta fyr­ir­tæki lands­ins á því sviði.

Ráðgjafi Verne Global í verk­efn­inu var verð­bréfa­fyr­ir­tækið Arctica Finance, sem sinnir fyr­ir­tækja­ráð­gjöf, mark­aðsvið­skiptum og eigna­stýr­in­ingu á íslenska mark­aðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár