Sólfar Studios hefur náð sér í 280 milljón króna alþjóðlega fjármögnun

Íslenskt fyr­ir­tæki sem fram­leiðir efni fyrir sýnd­ar­veru­leika, og var stofnað í fyrra, fær fjár­mögnun frá nor­rænum og asískum fjár­festum.

Kjartan Pierre Emilsson og Reynir Harðarson.
Kjartan Pierre Emilsson og Reynir Harð­ar­son. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Sólfar Studios, íslenskt fyr­ir­tæki sem fram­leiðir efni fyrir sýnd­ar­veru­leika, hefur náð sér í tveggja millj­óna evra, um 280 millj­óna króna, fjár­mögnun frá nor­rænum og asískum fjár­festum. Þetta er önnur fjár­fest­ingin sem fyr­ir­tækið nær í síðan að það var stofnað fyrir ári síðan. Á meðal þeirra sem fjár­festu í þess­ari lotu eru Shanda Group, Tianqiao Chen´s pri­vate invest­ment group, hinn íslenski Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins og finnsku sjóð­irnir VCs Inventure og Reaktor Ventures. Frá þessu var greint í dag á Slush ráð­stefn­unni sem nú stendur yfir í Finn­landi. Slush er alþjóð­leg ráð­stefna í leikja­iðn­aði og sýnd­ar­veru­leika.

Fyr­ir­tækið hafði þegar náð í 500 þús­und dali, um 65 millj­ónir króna, í engla­fjár­fest­ingu frá ýmsum aðilum. Um helm­ingur þeirrar upp­hæðar kom frá inn­lendu fjár­fest­unum Investa og Vil­hjálmi Þor­steins­syni og hinn helm­ing­ur­inn frá erlendum aðilum, aðal­lega frá Finn­landi. Hluti engla­fjár­fest­anna tóku einnig þátt í þeirri fjár­mögn­un­ar­lotu sem nú er lokið.

Aftur í bílskúrinn til að skapa sýndarveruleika

For­svars­menn Sólfars, þeir Reynir Harð­ar­son og Kjartan Pierre Emilsson, voru í við­tali við Kjarnann í apríl síð­ast­liðnum þar sem þeir sögðu frá Sólfars-verk­efn­inu. Þar kom fram að þeir Reynir, sem var einn stofn­enda og list­rænn stjórn­andi CCP, Kjartan, áður yfir­leikja­hönn­uður Eve Online og fram­kvæmda­stjóri CCP í Sjanghæ árum saman, og Þor­steinn Högni Gunn­ars­son, sem var yfir við­skipta­þróun hjá CCP, hafi ákveðið að hætta hjá íslenska tölvu­leikj­aris­anum og „fara aftur í bíl­skúr­inn“ sum­arið 2014.

Í októ­ber 2014 stofn­uðu þeir fyr­ir­tækið Sólfar Studios sem fram­leiðir efni fyrir sýnd­ar­veru­leika. Flestir tengja sýnd­ar­veru­leika­bylt­ing­una við Oculus Rift, tæki sem lítur úr eins og voldug skíða­gler­augu sem færa not­endur inn í sýnd­ar­veru­leika­ver­öld. Það er erfitt að lýsa því með orðum fyrir þeim sem ekki hafa prófað hversu mikil breyt­ing sýnd­ar­veru­leika­tól sem eru í þróun eru frá þeirri upp­lifun sem tölvu­leikja­not­endur fá við að spila leiki í dag. Auð­veld­ast er kannski að segja að spil­ar­anum líður eins og hann sé inni í leiknum, í stað þess að vera að spila hann af skjá.

Það er að miklu að keppa. Grein­ing­ar­fyr­ir­tæki spá því að innan fárra ára verði sýnd­ar­veru­leika­leikja­mark­að­ur­inn 30-40 millj­arða dala mark­aður. Það gera 4.000-5.550 millj­arða króna. Fyr­ir­tæki þarf ekki stóran hluta af þeirri köku til að verða mjög arð­bært.

Í við­tal­inu greindu þeir frá því að á teikni­borð­inu væri að ná í meira til að tryggja rekst­ur­inn næstu árin. Þeirri lotu er nú lokið.

Í gær greindi Sólfar Studios frá því að fyr­ir­tækið ætli, í sam­starfi við íslensku tækni­brellu­fyr­ir­tækið RVX, að bjóða upp á sýnd­ar­veru­leik­a­reynslu af því að vera á Everest-fjalli á helstu sýnd­ar­veru­leika­vett­vanga á næsta ári. RVX vann meðal ann­ars tækni­brellur fyrir stór­mynd Baltasars Kormáks, Everest, sem var frum­sýnd fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár