Stærsti skandall síðustu áratuga

Áætlun Dana um breytta inn­heimtu á sköttum vakti upp efa­semdir hjá mörgum þegar í hana var ráð­ist 2004. Tölvu­kerfið sem tók við hlut­verk­inu hefur verið nefnt dýr­asti tölvu­leikur sög­unnar. Og nú á að rann­saka þetta kostn­að­ar­sama klúður.

Lars Løkke Rasmussen og Anders Fogh Rasmussen voru tveir af þeim fjórum mönnum sem tóku ákvörðun um hið nýja fyrirkomulag á innheimtu skatta.
Lars Løkke Rasmus­sen og Anders Fogh Rasmus­sen voru tveir af þeim fjórum mönnum sem tóku ákvörðun um hið nýja fyr­ir­komu­lag á inn­heimtu skatta.

„Jeg har en plan,“ er ein þekktasta setn­ing í danskri kvik­mynda­sögu. Egon Olsen, for­sprakki þre­menn­ing­anna í Olsen banden, sem margir þekkja, hafði alltaf „en plan“ sem átti að tryggja þeim félögum áhyggju­laust líf. Þær stór­kost­legu áætl­anir fóru und­an­tekn­inga­laust á sama veg: lög­reglan batt enda á þessa sjálfs­bjarg­ar­við­leitni þre­menn­ing­anna og Egon Olsen, sem ætíð kenndi félögum sínum um að allt fór út um þúfur, fékk fría ferð í stein­inn. Þar sem hann upp­hugs­aði nýja áætlun, nýtt plan.

Í apríl árið 2004 kynntu fjórir danskir ráð­herrar nýtt og breytt fyr­ir­komu­lag, sem eins og plönin hjá Egon Olsen, átti ekki að geta brugð­ist. Þessir fjórir menn voru Anders Fogh Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra, Lars Løkke Rasmus­sen inn­an­ríkis- og heil­brigð­is­ráð­herra, Thor Pedersen fjár­mála­ráð­herra og Bendt Bendtsen efna­hags- og atvinnu­mála­ráð­herra. Þetta nýja fyr­ir­komu­lag sem fjór­menn­ing­arnir kynntu með pomp og prakt var breytt fyr­ir­komu­lag á inn­heimtu skatta og gjalda hins opin­bera, ríkis og sveit­ar­fé­laga. Skatt­tekjur eru ein helsta stoð sam­fé­lags­ins og þess vegna skilj­an­legt að breytt fyr­ir­komu­lag inn­heimt­unnar þætti frétt­næmt. Skattar varða alla borg­ara og miklu skiptir að allt „kerfið“ í kringum það sé vandað og full­komið.

Frá sveitarfélögum til ríkisins

Í stuttu máli gekk þetta nýja fyr­ir­komu­lag sem ráð­herr­arnir kynntu í apríl 2004 út á að inn­heimtan yrði færð frá inn­heimtu­mönnum á vegum sveit­ar­fé­lag­anna til stofn­unar á vegum rík­is­ins, SKAT.

Lars Løkke Rasmus­sen, sem hafði stjórnað und­ir­bún­ings­vinn­unni, hafði orð fyrir ráð­herr­unum. Hann sagði að til­gang­ur­inn væri að ein­falda og sam­ræma inn­heimt­una með nýju tölvu­kerfi. Því full­kom­asta sem völ er á sagði Lars Løkke. Þegar frétta­menn spurðu hvort nýja fyr­ir­komu­lagið hefði auk­inn kostnað í för með sér var því svarað til að þótt til­gang­ur­inn væri ekki sparn­aður yrði hann samt nokkur. Færra fólk þyrfti til að vinna verkin.

Margar efasemdaraddir

Þótt ráð­herr­arnir teldu þetta breytta fyr­ir­komu­lag „mikið fram­fara­skref“ eins og þeir margend­urtóku á kynn­ing­ar­fund­inum voru ekki allir á sama máli. Margir úr hópi inn­heimtu­manna, og ýmsir fleiri, höfðu miklar efa­semdir, töldu und­ir­bún­ingnum ábóta­vant og margt ófrá­gengið. Vel þyrfti að vanda til verka við svona stórt og yfir­grips­mikið verk­efni og hnýta alla lausa enda. Ráð­herrar gáfu lítið fyrir slíkar „úrtöluraddir“ eins og þeir komust að orði.

Umdeilt í þinginu

Í sum­ar­byrjun 2004 var frum­varpið um flutn­ing inn­heimt­unnar komið til þings­ins. Þar urðu miklar deilur um frum­varpið og ekki tókst að ljúka afgreiðslu þess fyrr en í maí árið eftir, 2005. Mjótt var á munum í atkvæða­greiðsl­unni, stjórn­ar­flokk­arnir Venstre og Konservative nutu stuðn­ings Danska Þjóð­ar­flokks­ins. Lögin tóku gildi 1. nóv­em­ber 2005. Kristian Jensen úr Venstre flokknum, var í milli­tíð­inni orð­inn skatta­mála­ráð­herra (2004) og gegndi emb­ætt­inu til árs­ins 2010. Þetta var hans fyrsta ráð­herra­emb­ætti en hann hafði verið þing­maður frá 1998, „dugn­að­ar­forkur“ sagði Anders Fogh Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra á frétta­manna­fundi vegna breyt­inga á stjórn­inni.

„Nýja tölvukerfið“ og tekjurnar sem tapast hafa

Á kynn­ing­ar­fund­inum 2004 lagði Lars Løkke Rasmus­sen for­maður und­ir­bún­ings­nefnd­ar­innar sér­staka áherslu á nýja tölvu­kerfið sem myndi ein­falda inn­heimt­una og gera hana bæði mark­viss­ari og örugg­ari. Kerfið væri í mótun, sagði Lars Løkke, og yrði tekið í notkun árið 2007. Danskir fjöl­miðlar sögðu að bjart­sýni væri vissu­lega góður eig­in­leiki en fyrir stjórn­mála­menn væri raun­sæi ekki síður mik­il­vægt, fáir tryðu því að tölvu­kerfið yrði til­búið árið 2007.

Fljót­lega kom í ljós að tölvu­kerfið kæm­ist ekki í notkun árið 2007, um mitt ár var greint frá því að það yrði til­búið árið 2009. Það kom á dag­inn að það ártal myndi ekki stand­ast og reyndar var það ekki fyrr en árið 2013 að kerfið var loks til­búið. Formlega heitir þetta tölvu­kerfi EFI en Danir kalla það 7- 9 -13. Það hefur þó ekki dugað að þylja þessar þrjár tölur og banka í tré, kerfið var frá upp­hafi mein­gallað og árið 2016 var ákveðið að loka því. Fjöl­miðl­arnir kalla þetta dýrasta tölvu­leik sög­unnar, kostn­að­ur­inn við að útbúa tölvu­kerfið og að loka því kostar að minnsta kosti 1.2 millj­arða (ca. 18 millj­arðar íslenskir). Þótt það sé há upp­hæð eru það smá­munir miðað við hvað tap­ast hefur vegna klúð­urs og mis­taka sem tengj­ast EFI.

Segja má að þetta umdeilda tölvu­kerfi hafi aldrei „snú­ist réttan snún­ing“, allt mögu­legt hefur verið gert til að lappa upp á þennan galla­grip en allt hefur komið fyrir ekki.

100 milljarðar

Danski skatt­ur­inn og allt klúðrið í kringum hann hefur verið til umfjöll­unar í dönskum fjöl­miðlum nær dag­lega um langt skeið. Almenn­ingur á vart til orð yfir enda­lausum frá­sögnum af töp­uðum skatt­tekjum, end­ur­greiddum virð­is­auka­skatti (sem aldrei hafði verið borg­aður) og mörgu öðru, sem á einn eða annan hátt teng­ist tölvu­kerf­inu umdeilda og vinnu­lag­inu hjá skatt­inum. Stjórn­mála­menn hafa talað um að skatt­tekjur sem ekki hafa verið inn­heimtar nemi, var­lega áætlað, að minnsta kosti 100 millj­örðum króna (rúm­lega 1500 millj­arðar íslenskir) og stærstur hluti þess­ara pen­inga fáist aldrei inn­heimtur.

5000 uppsagnir frá árinu 2005

Nýja tölvu­kerfið átti að vera örugg­ara og ódýr­ara. Myndi leysa manns­hönd­ina af hólmi. Manns­hönd­unum hjá skatt­inum hefur vissu­lega fækkað veru­lega. Samtals hefur um 5000 manns verið sagt upp á und­an­förnum árum og starfs­menn eru nú 6100. Nær árlega hefur verið skorið niður þrátt fyrir að starfs­menn, stjórn­mála­menn og margir aðrir hafi marg­sinnis varað við að komið væri í óefni, starf­semi skatts­ins væri í molum. Slíkar við­var­anir breyttu engu, einn stjórn­mála­skýr­andi orð­aði það svo að allir skatta­mála­ráð­herrar frá árinu 2004 (sam­tals níu) væru heyrn­ar­lausir á öðru eyra, eyr­anu sem þeir hafi snúið að gagn­rýnendum. Almenn­ingur hefur sakað þing­menn um aðgerða­leysi, þeir haldi hlífi­skildi hver yfir öðrum og ekki hlustað á gagn­rýn­is­raddir. Stjórn­ar­flokk­ur­inn Venstre (sem er ekki vinstri flokkur þrátt fyrir nafnið) hefur haft tak­mark­aðan áhuga á að rann­saka allt sem miður hefur farið hjá skatt­inum og Karsten Lauritzen skatta­mála­ráð­herra hefur frekar viljað horfa fram á veg­inn en til baka. Starfs­fólki skatts­ins hefur aftur fjölgað þótt það sé enn langtum færra en þegar nið­ur­skurð­ur­inn hófst.

Allsherjar rannsókn

Fyrir nokkrum dögum gerð­ist það að Mette Frederik­sen for­maður sós­í­alde­mókrata, Kristian Thulesen Dahl for­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins og Uffe Elbæk for­maður Alt­ernati­vet náðu sam­komu­lagi um að krefj­ast alls­herjar rann­sóknar á skatt­inum. Þessir þrír flokkar hafa sam­tals 93 þing­menn (af 179) og hafa þvingað stjórn­ina til að setja rann­sókn af stað, hún hefst síðar á þessu ári. Ýmsir hafa velt vöngum yfir því hvers vegna Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn (sem er stuðn­ings­flokkur stjórn­ar­innar) gangi í lið með sós­í­alde­mókrötum í þessu máli. Kristian Thulesen Dahl hefur sagt að rann­sóknin sé nauð­syn­leg en ýmsir stjórn­mála­skýrendur halda því fram að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hafi lítið dálæti á Kristian Jensen,sem nú er fjár­mála­ráð­herra, og hafi ekk­ert á móti því að láta hann finna til tevatns­ins. Kristian Jensen hefur til þessa verið tal­inn lang lík­leg­astur til að taka við for­manns­emb­ætt­inu í Venstre þegar Lars Løkke hættir, sem eng­inn veit reyndar hvenær verður.

Kristian Jensen var, eins og áður var nefnt skatta­mála­ráð­herra frá árinu 2004 til 2010, í hans tíð hófst vinna við EFI tölvu­kerfið. Hann er iðu­lega nefndur sem sá sem beri mesta ábyrgð, af þeirri ein­földu ástæðu að hann er sá sem lengst hefur setið sem skatta­mála­ráð­herra síðan inn­heimtu­kerf­inu var breytt. Sumir hinna átta sem gegnt hafa emb­ætt­inu sátu mjög stutt, Karsten Lauritzen, núver­andi skatta­mála­ráð­herra hefur setið næst lengst, tók við í júní 2015.

Tekst að finna Svarta Pétur?

Höf­uð­mark­mið rann­sóknar þings­ins er að leita skýr­inga á orsökum þess að starf­semi skatts­ins er í molum. Þegar Mette Frederik­sen og Kristian Thulesen Dahl greindu frá sam­komu­lag­inu um rann­sókn­ina lögðu þau áherslu á mik­il­vægi þess að skatt­ur­inn, og starf­semi hans, sé óum­deildur og að danska þjóðin geti treyst því að þar sé allt gert með réttum hætti. Þau lögðu líka áherslu á að draga fram hver, eða hverjir, beri ábyrgð­ina á því sem þau köll­uðu stærsta skandal síð­ustu ára­tuga. Eins og áður sagði bein­ast spjótin fyrst og fremst að Kristian Jensen fjár­mála­ráð­herra og vara­for­manni Venstre. Hvort hann situr uppi með Svarta Pétur, eða apann í fang­inu, eins og Danir segja iðu­lega, er úti­lokað að segja til um. Hins vegar má nokkurn veg­inn slá því föstu að hver sem nið­ur­staðan verður hefur orð­spor Krist­i­ans Jensen beðið skaða og hann er kannski ekki hinn sjálf­gefni erfða­prins Venstre flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár