Smári McCarthy með COVID-19

Þing­maður Pírata er smit­aður af COVID-19. Hann veit ekki hvar eða hvenær hann smit­að­ist en segir að þær aðgerðir sem gripið var til á Alþingi að halda hæfi­legri fjar­lægð milli þing­manna ætti að koma í veg fyrir að smit hans hafi áhrif á störf þar.

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, hefur greindur með COVID-19. Í stöðu­upp­færslu á Facebook seg­ist hann hafa farið í sjálf­skip­aða sótt­kví fyrir rúmri viku eftir að hann fór að hósta. Á föstu­dag hafi hann svo farið í prufu og nið­ur­staða úr henni hafi legið fyrir á laug­ar­dag.

Smári segir í stöðu­upp­færsl­unni að hann sé þokka­lega hress, ein­kenni sjúk­dóms­ins séu mjög væg, hóst­inn sem hann var með mest­megnis far­inn og hit­inn sem fylgdi hefði aldrei orðið mik­ill. „Önnur ein­kenni koma og fara ─ en ég er í stuttu máli ótrú­lega hepp­inn með hvað þetta virð­ist vægt. Nú er ég kom­inn í tveggja vikna ein­angrun, en ég mun reyna að sinna þing­störfum eftir því sem ég get í gegnum fjar­fundi og sím­töl á meðan.“

Smári seg­ist ekki vita hvar hann smit­að­ist eða hvernig og að það verði lík­lega aldrei vitað. „Smitrakn­ing­arteymið sendi á mig skjal og gaf mér við­mið­un­ar­dag­setn­ingu eftir sam­tal, og það ætti að vera búið að hafa sam­band við alla sem þurfa að fara í sótt­kví eftir að hafa umgeng­ist mig. Hvað Alþingi varðar hafa aðgerð­irnar þar til að halda fólki í hæfi­legri fjar­lægð hver frá öðrum verið til þess að mitt smit ætti ekki að hafa telj­andi áhrif á störfin þar. Ekki það, það munu eflaust vera fleiri eftir því sem á líður.“

[adspot]Smári hrósar heilsu­gæsl­unni í Miðbæ, smitrakn­ing­arteymi almanna­varna og lækn­inum sem hringdi í hann frá Land­spít­al­anum til að til­kynna honum um nið­ur­stöð­una. „Þau öll, ásamt öllum öðrum í heil­brigð­is­kerf­inu, eru að vinna þrek­virki þessa dag­anna. Við erum öll í þessu saman. Nú reynir á að við fylgjum regl­unum, reynum að minnka smit eins mikið og hægt er, og reynum að kom­ast í gegnum þetta. Stöndum saman og komum út sterk­ari. Pís!“

Á fimmtu­dag var greint frá því að þrír starfs­menn skrif­stofu Alþingis væru smit­aðir af COVID-19, en tveir voru greindir með smit þann dag. Á þriðju­dag í síð­ustu viku greind­ist einn starfs­maður þings­ins með smit og höfðu hinir tveir starfs­menn­irnir verð í sótt­kví síðan þá, vegna sam­skipta við þann sem fyrst greind­ist.

Alls eru nú sex starfs­menn Alþingi með COVID-19. Öll starfa í sama hús­inu, Skúla­húsi. Hert hefur verið á reglum Alþingis til að hindra frek­ari smit.

Fram kom á vef þings­ins í lok síð­ustu viku að nokkrir þing­menn og starfs­fólk þings­ins væru í sjálf­skip­aðri sótt­kví eða smit­vari vegna aðstæðna, ýmist af per­sónu­legum heilsu­fars­á­stæðum eða vegna heilsu ein­hvers nákom­ins.

Fyrr í síð­ustu vik­u hafði Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, greint frá því að hann væri kom­inn í sjálf­skip­aða sótt­kví eftir að hafa fengið mann á heim­ili sitt sem síðar greind­ist með veiruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár