Upplýsingafulltrúi Strætó afruglar Morgunblaðið

Morg­un­blaðið segir í skoð­ana­dálki í dag að heil 98,7 pró­sent svar­enda í könnun sem fram­kvæmd var fyrir Strætó telji að Borg­ar­lína muni ekki auka lík­urnar á því að þeir taki Strætó. Upp­lýs­inga­full­trúi Strætó segir þessa túlkun ekki stand­ast nokkra skoðun.

Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó hnýtir í villandi skrif skoðanadálks Morgunblaðsins um niðurstöður könnunar sem framkvæmd var fyrir Strætó.
Guð­mundur Heiðar Helgason upp­lýs­inga­full­trúi Strætó hnýtir í vill­andi skrif skoð­ana­dálks Morg­un­blaðs­ins um nið­ur­stöður könn­unar sem fram­kvæmd var fyrir Strætó. Mynd: Samsett

Guð­mundur Heiðar Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Strætó, gagn­rýnir rit­stjórn­arp­istil Morg­un­blaðs­ins um nið­ur­stöður könn­unar sem fram­kvæmd var fyrir Strætó fyrr á árinu. Hann segir að túlkun höf­undar skoð­ana­dálks­ins Stak­steina á henni haldi engu vatni.

Stak­steinar gera sér í dag mat úr einni spurn­ingu í könnun Zenter fyrir Strætó, sem fram­kvæmd var í mars. Um opna spurn­ingu var að ræða þar sem spurt var: „Hvað gæti Strætó gert, ef eitt­hvað, til að þú myndir ferð­ast (oftar) með Strætó?“ og gátu svar­endur skrifað hvað sem þeim í datt í hug.

Í skoð­ana­dálki Morg­un­blaðs­ins var fram­setn­ingin á nið­ur­stöð­unum með þeim hætti að sökum þess að ein­ungis 1,3 pró­sent svar­enda könn­un­ar­innar nefndu Borg­ar­línu í þess­ari opnu spurn­ingu teldu hin 98,7 pró­sent svar­enda að Borg­ar­lína og sú fjár­fest­ing sem er fyr­ir­huguð hennar vegna höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndi ekki gagn­ast þeim með neinum hætti.

„Fyrir verk­efni sem hefur verið lengi í und­ir­bún­ingi og á sam­kvæmt áætl­unum að kosta tugi millj­arða hið minnsta og lík­lega vel á annað hund­rað millj­arða, þá má það telj­ast fremur rýr afrakstur að 1,3% telji verk­efnið til bóta fyrir sig,“ segir meðal ann­ars í Stak­steinum.

Nýtt leiðanet og Borgarlína fjölgi ferðum og bæti leiðakerfið

Guð­mundur Heiðar bendir á það í færslu á Facebook, sem raunin er, að flestir svar­enda, eða tæp 30 pró­sent, hefðu nefnt að fleiri ferðir eða aukin tíðni ferða gæti orðið til þess að þeir ferð­uð­ust oftar með strætó. Næst­flestir hafi síðan bent á að betra leiða­kerfi Strætó gæti leitt til þess sama.

Hann segir í færslu sinni að þetta séu einmitt atriði sem standi til bóta með Nýju leiða­neti Strætó og til­komu Borg­ar­línu.

„Í þess­ari könnun er ekki hægt að full­yrða neitt um hversu margir hafa trú á Borg­ar­lín­unni. Það er hvergi spurt um hversu margir telja að þau muni nota Borg­ar­lín­una eða hafa trú á henni. Þessi könnun snýst í raun ekk­ert um Borg­ar­línu. Hún snýst um Strætó.

Ég veit að Stak­steinar er nafn­laus skoð­anapist­ill, en það hlýtur að vera meiri „stand­ard“ hjá rit­stjórn eins stærsta fjöl­mið­ils lands­ins,“ skrifar Guð­mundur Heiðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár