Andrés Ingi: Elsku Noregur, hættu þessu rugli!

Þing­maður Pírata segir að vegna Noregs þurfi Ísland að banna olíu­leit innan íslenskrar lög­sögu. „Það er vegna Noregs og ann­arra slíkra ríkja sem við þurfum að ganga í alþjóð­legt sam­band ríkja sem hafa snúið baki við olíu- og gasleit.“

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Við þurfum aðeins að ræða Noreg.“ Þannig hóf þing­maður Pírata, Andrés Ingi Jónsson, mál sitt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann sagði að Noregur væri eins og önnur ríki Norð­ur­land­anna for­ystu­ríki í lofts­lags­málum en á sama tíma eitt ágeng­asta olíu­leit­ar­ríki Evrópu, ekki bara eitt ágeng­asta heldur það allra ágeng­asta.

Benti hann á að þetta hefði komið fram í skýrslu, gefin út af Oil Change International, þar sem farið hefði verið yfir tölu­legar stað­reyndir í Noregi.

Norsk stjórnvöld gefið út 700 leyfi til leitar að olíu og gasi í norskri lögsögu síðustu 10 ár

„Síðustu tíu árin hafa norsk stjórn­völd gefið út 700 leyfi til leitar að olíu og gasi í norskri lög­sögu sem er meira en 47 árin þar áður. Þau olíu- og gas­svæði sem þegar hefur verið gefið leyfi til að vinna úr myndu losa þrjú gígatonn af koltví­sýr­ingi sem er sex­tíu­föld losun Noregs sjálfs.

Og nú eru norsk stjórn­völd að veita leyfi fyrir tíma­sprengju nyrst í Barents­hafi, svo­kallað Wisting-svæði sem gæti losað 200 milljón tonn af koltví­sýr­ingi ef sú olía myndi öll líta dags­ins ljós og henni yrði brennt,“ sagði hann.

Andrés Ingi sagði að það væri vegna Noregs sem Ísland þyrfti að banna olíu­leit innan íslenskrar lög­sögu og það væri vegna Noregs og ann­arra slíkra ríkja sem Íslend­ingar þyrftu að ganga í alþjóð­legt sam­band ríkja sem hafa snúið baki við olíu- og gasleit. Hann benti á að Ísland hefði ekki getað gengið í sam­bandið á síð­ustu lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna þess að rík­is­stjórnin hefði ekki fengið sig til að sam­þykkja frum­varp hans um olíu­leit­ar­bann síð­ast­liðið vor.

„Þannig og aðeins þannig geta íslensk stjórn­völd mætt á fundi ásamt Danmörku og Svíþjóð, sem hafa gengið í þetta banda­lag, og sagt: Elsku Noregur, hættu þessu rugli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár