Færri bókaðar utanlandsferðir en eftir að Geir bað guð að blessa Ísland

Frost er í bók­unum ferða segir for­stjóri Úrval-Útsýn. Sala á öllum teg­undum ferða er niður um 90 pró­sent.

Það hafa komið inn færri bók­anir síð­ustu tíu daga en fyrstu tíu dag­ana eftir Guð blessi Ísland ávarpið hans Geir H. Haarde. Það er algjört frost og engu lík­ara en það sé búið að skipa fólki að halda sig inni. Ég hef aldrei séð sölu­stopp og tíðar afbók­anir eiga sér stað á sama tíma.“ Þetta segir Þórunn Reyn­is­dóttir, for­stjóri Úrval-Útsýn, í sam­tali við ferða­þjón­ustu­frétta­vef­inn Túrista.

Hún segir að salan sé niður um níu­tíu pró­sent og að frost sé í pönt­unum á öllum teg­undum ferða.

Ljóst var í upp­hafi viku að ferða­þjón­ustan á Íslandi stæði frammi fyrir miklum áskor­unum í ár vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 veirunni. Svört­ustu spár sem kynntar voru gerðu ráð fyrir að ferða­mönnum gæti fækkað í allt að 1,6 milljón á þessu ári, sem myndi þýða að fækk­unin á tveggja ára tíma­bili væri um 700 þús­und.

[adspot]Eftir að Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá ferða­banni, sem virkar þannig að öllum íbúum landa sem til­­heyra Schengen-­­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­­ópu, verður meinað að koma til Banda­­ríkj­anna í 30 daga frá og með mið­nætti í kvöld, hefur sú staða versnað enn.

Icelandair, sem byggir við­skipta­módel sitt að stórum hluta á því að ferja far­þega til og frá Banda­ríkj­unum, sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­morgun þar sem kom fram að ferða­bannið myndi hafa „veru­leg áhrif“ á flug­á­ætl­un Icelandair á tíma­bil­inu og mun félagið draga enn frekar úr fram­boði á flugi í mars og apr­íl, umfram það sem áður hefur verið til­kynnt.

Hluta­bréf í Icelandair féllu um tæp 23 pró­sent í gær og mark­aðsvirði félags­ins við lok við­skipta var rétt um 21 millj­arður króna. Það hefur ekki verið lægra frá því í jan­úar 2011. Mark­aðsvirði Icelandair fór niður fyrir 30 millj­arða króna í fyrsta skipti í átta ár í byrjun viku og hefur haldið áfram að falla hratt.

Þegar mark­aðsvirði var hæst, í apríl 2016, var það 191,5 millj­arðar króna. Síðan þá hefur hlutafé í Icelandair verið aukið um rúm­lega fimm millj­arða króna en mark­aðsvirðið samt komið niður í ofan­greinda tölu.

Lausa­fjárs­staða ­­fé­lags­ins nam rúmum 39 millj­­örðum króna í árs­­lok 2019. Eigið fé Icelandair var um 60 millj­arðar króna á sama tíma. Mark­aðsvirðið er því um einn þriðji af eigin fé félags­ins og rétt rúmur helm­ingur af lausu fé þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár