Framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála verður forstjóri Icepharma

Hörður Þór­halls­son hefur verið ráð­inn for­stjóri hjá Icepharma í stað Mar­grétar Guð­munds­dóttur, sem lætur af störfum í lok júní næst­kom­andi. Hörður hefur und­an­farið gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra Stjórn­stöðvar ferða­mála en til­kynnt var fyrr í mán­uð­inum að hann myndi hverfa til ann­arra starfa og starf fram­kvæmda­stjóra aug­lýst á næst­unni.

Til­­kynnt var um stofnun Stjórn­­­stöðvar ferða­­mála með við­hafn­­ar­kynn­ingu í Hörpu í byrjun októ­ber 2015. Hlut­verk Stjórn­­­stöðv­­­ar­inn­ar á að vera að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­­anir og hags­muna­að­ila í ferða­­þjón­­ustu. Stjórn­­­stöð­inni er ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020. Hún var sett á lagg­­irnar á grund­velli ­­sam­komu­lags milli rík­­i­s­tjórn­­­ar­inn­­ar, Sam­­bands íslenskra sveit­­ar­­fé­laga og Sam­­taka ferða­­þjón­ust­unn­ar. Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­­son, þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, skip­aði í tíu full­­trúa í stjórn Stjórn­­­stöðv­­­ar­inn­­ar. Fjórir ráð­herrar eiga þar sæti, fjórir full­­trúar frá Sam­­tökum ferða­­þjon­ust­unnar og tveir full­­trúar Sam­­bands íslenskra sveit­­ar­­fé­laga. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­­að­­ar- og við­­skipta­ráð­herra, er for­­maður Stjórn­­­stöðv­­­ar­inn­­ar.

Hörður var ráð­inn í starfið á sama tíma af atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Þar var hann með verk­taka­­samn­ing og fékk 1.950 þús­und krónur í heild­­ar­­laun á mán­uði. Stjórn Stjórn­­­stöðv­­­ar­innar tók ákvörðun um ráðn­­ingu hans og staða fram­­kvæmda­­stjóra Stjórn­­­stöðvar ferða­­mála var ekki aug­lýst.

Ráðn­ing­ar­ferlið þótti mjög umdeilt og var gagn­rýnt víða í sam­fé­lag­in­u. Ragn­heiður Elín sagði í við­tali við Speg­il­inn í á þeim tíma að nýskipuð stjórn Stjórn­­­stöðv­­­ar­innar hafi vilj­að „þung­­ar­vigt­­ar­­mann" í stöðu fram­­kvæmda­­stjóra. Þau hafi orðið þess áskynja að Hörður væri á lausu og Ragn­heiður Elín sagði að hann hefði upp­­­fyllt þau skil­yrði sem sett hefðu verið fyrir starf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár