VG og Framsókn samstíga í sölunni um Landsbankann

Sam­hljómur er meðal Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks varð­andi sölu rík­is­ins á Lands­bank­anum. Helm­ingur Bjartrar fram­tíðar tekur undir með sjálf­stæð­is­mönnum í mál­inu.

Lítill sem eng­inn vilji er innan Fram­sókn­ar­flokks­ins til að selja tæp­lega 30 pró­senta hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum á þessu ári. Þingmenn Bjartrar fram­tíðar eru klofnir til helm­inga í mál­inu, sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem Kjarninn gerði meðal allra 63 þing­manna í vik­unni. Spurt var hver afstaða fólks væri til söl­unnar.

Fjár­mun­irnir sem eiga að fást fyrir söl­una eru nú þegar í fjár­lögum þessa árs, rúm­lega 71 millj­arður króna, sem á að fást fyrir 28,2 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum.
Svar­hlut­fall þing­manna í könn­un­inni var nokkuð gott, um 75 pró­sent. Allir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn eru á móti söl­unni, þvert á flokka, að und­an­skildum þremur þing­mönnum Bjartrar fram­tíðar.

Af þeim sem svör­uðu er Willum Þór Þórsson eini þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem er hlynntur söl­unni. Í rök­stuðn­ingi hans sagði Willium: „Meg­in­mark­miðið er að grynnka á skuldum rík­is­sjóðs, lækka vaxta­byrði útgjalda, að því gefnu; að ein­hver vilji eiga 28,2% á móti 70% eign­ar­hlut rík­is­ins, og ásætt­an­legt verð fáist. Þá er svarið Já - en flýta sér hægt.”

Meðal ann­arra þing­manna Fram­sókn­ar­flokks sem svör­uðu er Silja Dögg Gunn­ars­dóttir. Hún vill að ríkið eigi að minnsta kosti einn banka sem rek­inn yrði á sam­fé­lags­legum for­sendum. Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, er sama sinnis og er alfarið á móti söl­unni. Elsa Lára Arn­ar­dóttir tekur undir með þeim og segir að fyrst þurfi að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið með neyt­enda­vernd í huga, aðskilja fjár­fest­ingar- og við­skipta­banka og afnema verð­trygg­ingu.

Þessar hug­myndir eiga margt sam­eig­in­legt með afstöðu flestra þing­manna Vinstri grænna. Margir þeirra viðr­uðu einnig þá hug­mynd að Lands­bank­inn yrði gerður að sam­fé­lags­banka og þar má finna hljóm­grunn á milli VG og Fram­sókn­ar­flokks. 
Björt fram­tíð er klofin til helm­inga í mál­inu.

Þeir Óttar Proppé. Róbert Marshall og Guð­mundur Stein­gríms­son vilja allir selja, en leggja allir áherslu á að sölu­ferlið verði opið, gagn­sætt og vandað. Það rímar full­kom­lega við afstöðu Sjálf­stæð­is­manna í mál­inu, sem sögðu allir „já“ en fara var­lega. 
Þing­menn­irnir Páll Valur Björns­son, Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Björt Ólafs­dóttir eru hins vegar á móti söl­unni og segja rétt að bíða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár