Vilja fleiri ferðamenn til Danmerkur

Dönsk stjórn­völd hafa lagt fram áætlun sem miðar að því að auka straum ferða­manna til Dan­merkur. Þótt ferða­mönnum sem koma til lands­ins hafi fjölgað á und­an­förnum árum þykir stjórn­völdum að betur megi gera, sér­stak­lega á svæðum við hafið.

Áætlun stjórn­ar­innar „Danmark i vækst - Den nationale stra­tegi for dansk turisme“ var birt fyrir nokkrum dögum. Troels Lund Poulsen ráð­herra atvinnu­mála kynnti áætl­un­ina sem nær til árs­ins 2025. Ráð­herr­ann sagði að ferða­þjón­ustan hefði sem betur fer náð sér á strik eftir mikið bakslag í kjöl­far banka­krepp­unnar en fjölgun ferða­manna væri minni en í nágranna­lönd­unum. Við þessu þurfi að bregð­ast.

2015 var metár í danskri ferðaþjónustu

Engar áreið­an­legar tölur eru til um þann fjölda ferða­manna sem heim­sækir Danmörku á hverju ári. Ástæða þess er að engin skrán­ing af neinu tagi fer fram þegar fólk kemur til lands­ins, enda leið­irnar margar. Allar tölur um fjölda ferða­manna eru byggðar á upp­lýs­ingum gisti­staða. Gistinætur árið 2015 voru 49.1 milljón, fleiri en nokkru sinni fyrr. Inni í þess­ari tölu eru Danir sem ferð­ast um og gista í eigin landi. Markmið stjórn­valda er að árið 2025 verði gistinæt­urnar 17 millj­ónum fleiri, sem sé 66.1 milljón. Gangi þetta eftir þýðir það að veltan í danskri ferða­þjón­ustu verður 140 millj­arðar króna, 2411 millj­arðar íslenskir.

Þjóðverjar langstærsti hópurinn

Af íbúum ein­stakra landa, utan Dan­merkur, eru Þjóð­verjar lang­fjöl­menn­astir þeirra sem sækja Danmörku heim. Í yfir­liti danskra ferða­mála­sam­taka kemur fram að í meira en helm­ingi allra gistinótta erlendra gesta í land­inu, eða 56%, eiga Þjóð­verjar í hlut. Samtals 13.8 millj­ónir. Norðmenn eru í öðru sæti með 2.6 millj­ónir gistinótta, 11%. Svíar eru þriðju fjöl­menn­ustu þegar litið er til gistinótta, 1.8 millj­ónir, 7%. Svíum sem ferð­uð­ust til Dan­merkur fækk­aði reyndar lít­ils háttar í fyrra, lágt gengi sænsku krón­unnar er talin helsta ástæðan. Rétt er að geta þess að inni í þessum tölum eru ekki ferða­menn sem koma með skemmti­ferða­skipum en fjöldi þeirra fer ört vax­andi, einkum Asíubúa.

Atvinna og tekjur

Ferða­þjón­ustan er mik­il­væg atvinnu­grein í Danmörku, rétt eins og í mörgum öðrum löndum. Dönsku ferða­mála­sam­tökin telja að tals­vert á annað hund­rað þús­und Dana hafi atvinnu sína af ferða­þjón­ustu, með einum eða öðrum hætti og fari fram sem horfir stækkar sá hópur veru­lega á næstu árum. Tekjur af ferða­mönnum eru taldar hafa numið rúm­lega 100 millj­örðum króna (um 1730 millj­örðum íslenskum) á liðnu ári, sam­kvæmt yfir­liti ferða­mála­sam­tak­anna. Ýmsir telja reyndar að tekjur af ferða­mönnum séu miklu meiri.

Verðlagið helsta umkvörtunarefnið

Dönsku ferða­mála­sam­tökin kanna reglu­lega hvað ferða­mönnum finnst um land og þjóð. Hvað það er sem þeim líkar best og einnig hvað þeim þykir miður gott hjá Dönum. Ferða­menn eiga iðu­lega erfitt með að nefna eitt ákveðið atriði þegar spurt er um hið jákvæða. Þeir nefna t.d. sam­göng­urnar, mat­inn, afslappað mann­líf, Tívolí, mikið vöru­úr­val, ekki síst hönn­un­ar­vörur, og skemmt­ana­lífið. Hvað hið nei­kvæða varðar nefna lang­flestir verð­lagið. Það gildir um nán­ast alla hluti: mat, gist­ingu, fatnað, hönn­un­ar­vörur, elds­neyti, aðgang að Tívolí og Bakkanum svo eitt­hvað sé nefnt. Sumir nefna líka að iðu­lega sé afgreiðslu­fólk í versl­unum og þjón­ustu­fólk á veit­inga­stöðum stutt í spuna og ekki sér­lega við­móts­þýtt. Þýskir ferða­menn nefna iðu­lega að gæði veit­inga séu ekki í sam­ræmi við verð­lagið. Þjóð­verjarnir sem gjarna leigja sum­ar­hús á Jótlandi, gjarna við strönd­ina segja að víða sé lítil sem engin þjón­usta við þá sem vilja sleikja sól­ina og liggja á strönd­inni. Til dæmis fáir veit­inga­staðir og barir.

Átak á öllum sviðum

Þegar Troels Lund Poulsen atvinnu­mála­ráð­herra kynnti áætlun stjórn­ar­innar sagði hann að til að fjölga ferða­mönnum í Danmörku væri í raun allt undir. Það þyrfti að tryggja að ætíð væri nægi­legt gisti­rými, en sú væri ekki raunin nú, einkum í Kaup­manna­höfn og öðrum stórum bæjum. Að mati ráð­herr­ans þarf að verja mun meiri pen­ingum í aug­lýs­ingar, „það veltur á stjórn­völdum að bæta þar úr“ sagði ráð­herr­ann. Hann nefndi sér­stak­lega strand­svæði lands­ins sem þyrfti að kynna miklu betur en nú er gert. Verðlag á gist­ingu og mat ræddi ráð­herr­ann sér­stak­lega og sagði að í áætl­un­inni væri gert ráð fyrir að þeir sem leigja út hús­næði til ferða­manna geti dregið frá skatti hærri upp­hæð en lögin heim­ila nú. „þannig myndi verð á gist­ingu lækka“ sagði ráð­herr­ann. Hann nefndi einnig breyt­ingar á lögum um starfs­fólk á veit­inga­stöðum og til­tók sér­stak­lega að ung­menni, milli fimmtán ára og tví­tugs, megi vinna á veit­inga­stöðum í eigu fjöl­skyld­unnar þótt þar sé selt áfengi. Slíkt heim­ila lögin ekki í dag. Ráð­herr­ann sagði að það hefði komið sér nokkuð á óvart að ferða­menn skyldu kvarta undan durts­hætti þjón­ustu­fólks á veit­inga­stöðum og starfs­fólks í versl­unum. „Við teljum okkur ágæt og erum það að mörgu leyti, en við þurfum greini­lega að taka okkur á í sumu hvað varðar ferða­þjón­ust­una. Danir hafa gott orð á sér meðal þjóða heims og því þurfum að fylgja eftir og verða enn betri“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár