Ber saman „meðferð klögumála“ í kosningunum á Íslandi og í Írak

„Hvers vegna er þetta svona flókið?“ spyr Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir um þann tíma sem und­ir­bún­ings­nefnd kjör­bréfa­nefndar hefur gefið sér í að fara yfir kjör­gögn úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir. Mynd: EPA

Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­mála hjá ÖSE, Örygg­is- og sam­vinnu­stofn­un Evr­ópu, ber saman máls­með­ferð­ar­tíma „klögu­mála“ í alþing­is­kosn­ing­unum hér á landi í 25. sept­em­ber og kosn­ingum í Írak 10. októ­ber í færslu á Facebook-síðu sinni.

„Núna eru liðnar tæpar 5 vikur frá kosn­ingum í Írak og sitt sýnd­ist hverjum um úrslitin. Yfir­kjör­stjórnin er núna búin að fjalla um öll klögu­mál og end­ur­telja atkvæði í votta við­ur­vist frá 4.324 kjör­deildum án þess að finna ósam­ræmi við fyrstu taln­ingu,“ segir Ingi­björg Sólrún.

Á sama tíma bendir hún á að und­ir­bún­ings­nefnd kjör­bréfa­nefndar hafi nú varið sex vikum í að fara yfir taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi án þess að kom­ast að nið­ur­stöðu. „Hvers vegna er þetta svona flókið?“ spyr hún.

[links]Und­ir­bún­ings­nefnd kjör­bréfa tók til starfa að loknum alþing­is­kosn­ingum 25. sept­em­ber eftir að í ljós kom að skekkja var í upp­runa­legum loka­tölum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem kynntar höfðu verið morg­un­inn eftir kjör­dag.

Nefndin hefur það hlut­verk að skoða gildi kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og önnur álita­mál, en álit nefnd­ar­innar verður síðan borið undir atkvæða­greiðslu í þing­inu. Nefndin hefur meðal ann­ars farið í þrjár vett­vangs­ferðir í Borg­ar­nes til að skoða aðstæður og kjör­gögn til að leita svara við þeim spurn­ing­um sem enn hafa ekki feng­ist svör við.

Nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar er enn beðið og hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gefið það út að rík­is­stjórn verði ekki mynduð fyrr en nið­ur­staða nefnd­ar­innar liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár