Spennutreyja austurs og vesturs

Í nýrri bók Steven Lee Myers er teiknuð upp mynd af Vladímir Pútín sem skarp­greindum manni, sem sé óút­reikn­an­legur. Vaxandi ógn sé af honum á vest­ur­löndum, einkum ef honum tak­ist að koma Rúss­landi upp úr þreng­ingum. Hann gleymi heldur aldrei neinu.

Í bók Steven Lee Myers, sem var rit­stjóri New York Times í mál­efnum Austur-Evrópu um langt skeið, The New Tsar, er Vladímir Pútín for­seti Rúss­lands undir smá­sjánni, og stefna hans greind í þaula. Enginn vafi er á því, að Lee Myers telur Pútín vera djúp­þenkj­andi leið­toga gam­allar valda­blokkar KGB-liða í Sov­ét­ríkj­unum, sem vilji þenja út völd Rúss­lands á grunni innra skipu­lags gömlu Sov­ét­ríkj­anna. Samhliða vilji hann hefna sín á vest­ur­löndum fyrir þving­un­ar­að­gerðir, og hugsa þá leiki langt fram í tím­ann. 

Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur, sem búsettur er í Moskvu, skrif­aði ítar­lega frétta­skýr­ingu um þá miklu ref­skák, sem ennþá er í gangi, á milli aust­urs og vest­urs, í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þar kemur meðal ann­ars fram, hvernig Rússar hafa reynt að bregð­ast við þving­unum með því að efla inn­lenda fram­leiðslu, og örva þannig hag­kerfið, um leið og gjald­eyr­is­út­streymi er heft.

Sjálfur efnhagsstórveldi

Það þýðir að Rússland þurfi að vera her­veldi sem umheim­ur­inn ótt­ist. Lee Myers telur enn fremur að gögn frá leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna CIA, frá árinu 2007, þar sem segir að Pútín sjálfur sé efna­hags­legt stór­veldi og eigi í það minnsta 40 millj­arða Banda­ríkja­dala,

um 5.200 millj­arða íslenskra króna, séu að öllum lík­indum rétt. Erfitt sé að nálg­ast frum­gögn um þessi mál, en veldið byggi á teng­ingu við veltu rúss­neskra orku­fyr­ir­tækja, olíu- og jarð­ga­svinnslu þar helst. Gazprom, stærsta orku­fyr­ir­tæki Rúss­lands, hafi lengi verið stýrt af fólki sem standi Pútín nærri, og þrátt fyrir afdrátt­ar­lausar neit­anir Pútín um að tengj­ast fyr­ir­tæk­inu, þá hafi hann aldrei verið til­bú­inn að leggja fram tæm­andi lista yfir eignir sínar. Það gefi auk þess sterkar vís­bend­ingar um hvaða upp­lýs­ingar banda­rísk stjórn­völd eru með, að við­skipta­þving­anir lands­ins gagn­vart Rúss­landi hafa öðru fremur snúið að því að frysta fé á reikn­ingum fólks sem telst vera með trúnað við Pútín.

Styrkir stöðuna

Í bók­inni eru þessar upp­lýs­ingar ekki fyr­ir­ferða­miklar, í sam­an­burði við annað, en þó er þessi staða sögð gera Pútín að enn öfl­ugri stjórn­mála­manni. Ef þetta er rétt mat hjá Lee Myers og CIA, þá er Pútín auð­ug­asti stjórn­mála­maður heims­ins. Gera má ráð fyrir að eign­inar hafi ávaxt­ast vel á þeim níu árum sem liðin eru frá því að CIA greindi stöðu mála með þessum hætti. Aðeins Michael Bloomberg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í New York, kemst nærri þess­ari stöðu sem Pútín er sagður vera í, en eignir hans nema í dag um 40 millj­örðum Banda­ríkja­dala, og eru að miklu leyti bundnar í hluta­bréfum í Bloomberg.

Bregst harkalega við

Pútín er sagður bregð­ast harka­lega við öllum aðgerðum – stórum og smáum – sem túlka má sem hindr­anir á hans stór­veld­is­stefnu. Sér­stak­lega á þetta við um við­skipta­hags­muni, en einnig eru til­tekin dæmi úr stjórn­sýsl­unni í Rúss­landi. Starfs­manna­breyt­ingar alveg niður að lágt settum starfs­mönnum í Rúss­landi má oft rekja til hans við­horfa, líkt og reyndar á þriðja tug manns­hvarfa, en þar eru teng­ing­arnar að miklu leyti í þoku.

En Pútín þykir afburða­grein­andi á alþjóða­póli­tíska stöðu og sér oft ógn­anir og tæki­færi á undan öðrum, sam­kvæmt skrifum Lee Myers. Hvað sem mönnum finnst um stefnu hans, þá megi ekki van­meta hæfi­leika og við­brögð við breyttu lands­lagi.

Dæmi um þetta segir Lee Myers vera hvernig hann hefur brugð­ist við við­skipta­þving­unum Banda­ríkja­stjórnar og Evr­ópu­sam­bands­ríkja. Ofan í mikla lækkun olíu- og hrá­vöru­verðs, sem hafi komið Rúss­landi afar illa, þá hafi Pútín ekki hikað við að bregð­ast við með við­skipta­þving­unum gagn­vart öðrum þjóðum, og einnig oft gagn­vart þjóðum sem ekki geta talist vera stórir leik­endur á hinu póli­tíska sviði. Rússland hafi vissu­lega átt í vanda, en hann hefði geta verið miklu verri, ef ekki hefði komið til við­bragð Pútíns.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­urin spáir því að rúss­neska hag­kerfið, með tæp­lega 145 millj­ónir íbúa, muni minnka um 0,4 pró­sent á þessu ári og áfram verði áhersla lögð á að efla inn­lenda fram­leiðslu.

Merkel og Obama vinna gegn Pútín

Eins og alkunna er þá er í gildi við­skipta­bann Rúss­lands gagn­vart Íslandi, vegna þátt­töku Íslands í alþjóð­legum aðgerðum gegn Rússum. Þær grund­vall­ast af átök­unum í Úkraínu þar sem Rússar hafa farið gegn alþjóð­legum lögum með því að færa undir sig yfir­ráð á svæði sem áður var undir stjórn Úkraínu. Án þess að þær séu gerðar að miklu umfjöll­un­ar­efni, að þessu sinni, þá eru það ekki síður ögr­anir Rússa sem hafa leitt til harðra við­bragða alþjóða­sam­fé­lags­ins. Lee Myers full­yrðir þannig í bók sinni, að Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, og Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hafi sam­mælst um að halda aftur af Pútín, og koma í veg fyrir að Rússar fái að láta kné fylgja kviði í Austur-Evrópu, þar sem við­kvæm staða sé nú, ekki síst vegna mik­ils flótta­manna­straums frá stríðs­hrjáðum svæðum, einkum Sýrlandi, Írak og Afganistan.

Rússar hafa nú dregið úr umfangi hern­að­ar­að­gerða sinna í Sýrlandi, en þar börð­ust þeir við hlið stjórn­ar­hers Sýrlands, sem Assad stýrir með harðri hendi. Við­skipta­þving­anir Rússa gagn­vart Tyrkjum hjálpa síðan ekki til við að ná tökum á erf­iðum aðstæðum og vax­andi ófriði, með skelfi­legum afleið­ingum tíðra hryðju­verka meðal ann­ars.

Breytt staða á Íslandi?

Ísland, með sína örfáu 333 þús­und íbúa, getur seint talist verið mik­il­vægur hlekkur í alþjóða­sam­starfi eða á hinu alþjóða­póli­tíska sviði. En hinn breytti veru­leiki er þó sá, að sam­starf ríkja er það sem helst gerir utan­rík­is­póli­tíska stefnu skil­virka. Þannig geta lítil ríki gegnt mik­il­vægu hlut­verki innan ákveð­innar stefnu, ýmist með sér­þekk­ingu sinni eða mik­il­vægri svæð­is­bund­inni stjórn.

Við­skipta­bann Rúss­lands gagn­vart Íslandi bitnar öðru fremur á íslenskum sjáv­ar­út­vegi en við­skipti með sjáv­ar­fang hafa verið vax­andi und­an­farin ár milli land­anna, ekki síst eftir íslensk fyr­ir­tæki hófu að selja mak­ríl inn á alþjóða­mark­aði. Heild­ar­um­fang við­skipt­anna nemur á þriðja tug millj­arða. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir það ekki koma til greina að breyta utan­rík­is­stefnu Íslands til að koma til móts við við­skipta­hags­muni, og því muni Ísland vera aðili að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi svo lengi sem hann verði ráð­herra.

Bandaríkjaher horfir hingað

Banda­ríkja­her er far­inn að horfa meira til Íslands um þessar mundir, og er það helst útþensla Rússa sem sögð er vera ástæðan fyrir því. Það andar köldu milli aust­urs og vest­urs þessa dag­ana, og greini­legt er að Band­ríkja­menn telja mik­il­vægt að vera á varð­bergi.

Í við­tali sem Kjarninn tók við Benjamin Ziff, aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í októ­ber í fyrra, þar sem auk­inn áhugi Banda­ríkja­manna á hern­að­ar­um­svifum á Íslandi var ræddur, sagði Ziff að þróun mála á Norð­ur­slóðum væri mik­il­vægt atriði þegar kemur að hags­munum Banda­ríkj­anna. Þar væri Ísland í raun mitt á milli austur og vest­urs, með Banda­ríkin og Rússland sitt hvoru megin, og bæði ríkja hafa það á stefnu­skránni að styrkja stöðu sína á Norð­ur­slóðum. Ekki væri tíma­bært að ræða um það hvort Banda­ríkja­her væri á leið­inni til Íslands, en frekar væri þörf á því að greina hinar póli­tísku útlínur sem varða hags­muni, þar á meðal Íslands.

Af þessum ástæðum er lík­legt, að Ísland verði meira í eld­ínu alþjóða­stjórn­mála á næstu árum, heldur en oft áður. Þar sé ekki endi­lega aukin skipa­um­ferð eða fyr­ir­sján­leg aukin efna­hags­um­svif ástæðan, heldur ekki síst póli­tískt mat og land­fræði­leg staða, miðað við núver­andi aðstæður.

Ekki fyrirvaralaust

Þrátt fyrir að gamla umráða­svæði Banda­ríkja­hers á Miðsnes­heiði sé ennþá byggt upp með öllum nauð­syn­legum innviðum fyrir dvöl hersafla á svæð­inu, þá getur Banda­ríkja­her ekki komið sér fyrir á svæð­inu nema með því að fá grænt ljós frá íslenskum stjórn­völdum, og lík­lega í sam­starfi við Atl­ants­hafs­banda­lagið og stjórn­sýslu þess.

Stefán Haukur Jóhann­es­son, ráðu­neyt­is­stjóri utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, segir að allar eignir á svæð­inu sé undir yfir­ráðum Íslands. „Við brott­för varn­ar­liðs­ins árið 2006 voru öll mann­virki á fyrrum varn­ar­svæðum færð til eignar og umsjár til íslenskra stjórn­valda og þau mann­virki sem ekki var talin þörf á vegna varna lands­ins var skilað til Mann­virkja­sjóðs Atl­ants­hafs­banda­lags­ins sem fram­seldi gisti­ríkja­á­byrgð­ina til Íslands. Stærsta hluta þess­ara mann­virkja var síðan ráð­stafað til Isavia og Kadeco sbr. lög nr. 176/2006 og þau varn­ar­mann­virki sem haldið var eftir vegna öryggis-og varn­ar­hags­muna Íslands eru nú stað­sett á skil­greindum örygg­is­svæðum. Eina und­an­tekn­ingin á þessu er áfram­hald­andi rekstur banda­ríska sjó­hers­ins á fjar­skipta­stöð í Grinda­vík. Að öðru leyti eru öll varn­ar­mann­virki á Íslandi undir stjórn íslenskra stjórn­valda og þau ein hafa leyfi til að heim­ila tíma­bundin afnot af þeim vegna dvalar erlends her­liðsafla á Íslandi, t.d. vegna loft­rým­is­gæslu eða ann­arra varn­ar­tengdra verk­efna,“ segir Stefán Haukur.

Hver er næsti leikur Pútíns?

Lee Myers heldur því fram í bók sinni að Pútín og rúss­nesk stjórn­völd eigi nokkra leiki út úr þeim við­skipta­þving­unum sem Evr­ópu­ríki og Banda­ríkin séu búin að setja upp. Í ljósi hans karakt­er­einkanna, þá sé hann ólík­legur til að gleyma aðgerðum sem bein­ast gegn Rússum, og að ef Rússum tekst að ná vopnum sínum á nýjan leik, t.d. með auknu sam­starfi við Asíu­mark­aðs­ríki, sem vaxi hratt, þá geti Pútín orðin enn árás­ar­gjarn­ari en nú. Óhikað muni hann fara fram, því hann hafi mikla sann­fær­ingu fyrir her­styrk Rússa og hafi auk þess lagt áherslu á að tækni­væða hann, og fylgja þróun eftir í þeim efnum.

Stóra spurn­ingin sem þjóðir heims­ins muni þurfa að svara þegar Pútín sé ann­ars vegar, sé hver næsti leikur hans á hinu alþjóð­lega sviði verði. Til þessa hafi hann sýnt að hann hafi ógn­ar­sterk tök á Rúss­landi – bæði póli­tískt og út frá við­skipta­hags­munum innan lands­ins – og á meðan þau tök séu fyrir hendi þá séu uppi aðstæður sem verði metin sem vax­andi ógn á vest­ur­löndum og setji ákveðin svæði heims­ins, meðal ann­ars þar sem Ísland hefur land­fræði­lega stöðu, í póli­tíska spennu­treyju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár