Stjórnvöld taki af öll tvímæli um að þau hyggist ekki styðja „ólögmætt og ósiðlegt athæfi Icelandair“

ASÍ mót­mælir því sem komið hefur fram í fjöl­miðlum um hugs­an­leg við­brögð Icelandair í kjara­deilu félags­ins við Flug­freyju­fé­lag Íslands. For­stjóri Icelandair segir félagið ekki hafa verið í við­ræðum við önnur stétt­ar­fé­lög um gerð kjara­samn­ings.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) mót­mælir harð­lega því sem lýst er í Morg­un­blað­inu og Frétta­blað­inu í dag sem hugs­an­legum við­brögðum Icelandair í kjara­deilu félags­ins við Flug­freyju­fé­lag Íslands (FFÍ). Í báðum til­vikum er vísað til heim­ilda innan Icelandair. Samkvæmt fréttum Morg­un­blaðs­ins skoðar Icelandair mögu­leika á að stofna nýtt stétt­ar­fé­lag flug­freyja og sam­kvæmt Frétta­blað­inu hyggst Icelandair láta reyna á for­gangs­rétt­ar­á­kvæði kjara­samn­ings FFÍ fyrir félags­dómi náist ekki samn­ingur.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu ASÍ vegna frétta um Icelandair sem sam­bandið sendi frá sér í dag.

Í henni segir að þessar vanga­veltur séu settar fram á mjög við­kvæmu stigi samn­inga­við­ræðna og virð­ist til­gang­ur­inn vera að hafa áhrif á starf­semi FFÍ og reka fleyg í sam­stöðu félags­manna. Þær byggi einnig á mik­illi van­þekk­ingu á íslenskri og alþjóð­legri vinnu­lög­gjöf og kjara­samn­ingi FFÍ.

Segist ekki hafa verið í viðræðum við önnur stéttarfélög

Fram kom í frétt RÚV nú rétt fyrir hádegi að Icelandair hefði ekki verið í við­ræðum við önnur stétt­ar­fé­lög um gerð kjara­samn­ings um störf flug­freyja og flug­þjóna hjá félag­inu. Þetta kemur fram í bréfi Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, til Flug­freyju­fé­lags Íslands í dag. „Það stað­fest­ist hér með að Icelandair hefur ekki verið í við­ræðum við önnur stétt­ar­fé­lög um gerð kjara­samn­ings um störf flug­freyja og flug­þjóna hjá félag­inu. Það hefur verið mark­mið félags­ins frá upp­hafi við­ræðna að tryggja nýjan kjara­samn­ing á milli Icelandair og FFÍ sem tryggir hags­muni beggja aðila og von­ast Icelandair enn til þess að slík nið­ur­staða náist fram í tæka tíð,“ segir Bogi Nils, að því er fram kemur í frétt RÚV. 

Við þetta verði ekki unað í íslensku samfélagi

Alþýðu­sam­band Íslands áréttar í yfir­lýs­ingu sinni að stétt­ar­fé­lög séu félög launa­fólks sem njóta verndar í stjórn­ar­skrá og að atvinnu­rek­endum sé óheim­ilt að skipta sér af. Icelandair geti ekki sjálft stofnað til eða haft frum­kvæði að stofnun stétt­ar­fé­laga. Við slíkt atferli verði ekki unað í íslensku sam­fé­lagi og Icelandair hollt að hafa í huga að aðild­ar­fé­lög ASÍ hafi heim­ildir til þess að veita FFÍ stuðn­ing í yfir­stand­andi kjara­deilu með boðun sam­úð­ar­vinnu­stöðv­ana og fulla heim­ild til þess að verja rétt­ar­stöðu sína gegn ólög­mætum árásum.

Raun­ger­ist fyrr­nefndar vanga­veltur eigi Icelandair ekk­ert til­kall til stuðn­ings úr opin­berum sjóðum eða við­bót­ar­hluta­fjár úr líf­eyr­is­sjóðum launa­fólks. ASÍ krefst þess að stjórn­völd stígi fram og taki af öll tví­mæli um að þau hygg­ist ekki styðja ólög­mætt og ósið­legt athæfi Icelandair.

Flugfreyjur staðið sameinaðar og komið fram af heilindum í kjaraviðræðum

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, bendir á í yfir­lýs­ing­unni að flug­freyjur hafi verið samn­ings­lausar lengi. Þær hafi staðið sam­ein­aðar og komið fram af heil­indum í kjara­við­ræðum. Að mæta þeim á þessu stigi samn­inga­við­ræðna með hót­unum um að ganga gegn lögum og leik­reglum á íslenskum vinnu­mark­aði sé með öllu óvið­un­andi.

„Fram­ganga Icelandair í samn­inga­við­ræðum við flug­freyjur hefur verið með ólík­indum og er til þess fallin að draga úr almennu trausti í garð þessa rót­gróna flug­fé­lags. Þetta er ekki flug­fé­lagið okkar allra sem býður okkur vel­komin heim. Við munum ekki sætta okkur við aðferðir sem á ensku eru kall­aðar union busting og ganga út á að grafa undan sam­stöðu launa­fólks og eyði­leggja verka­lýðs­fé­lög. Verka­lýðs­hreyf­ingin mun ekki sitja með hendur í skauti and­spænis slíkum aðgerðum,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár