Kannski flogið til Kanarí í sumar

Icelandair von­ast til þess að geta hafið dag­legt flug til lyk­ilá­fanga­staða eftir að landa­mæri Íslands verða opnuð um miðjan júní. Þá reiknar félagið með að geta boðið flug­ferðir til Kanarí, Tenerife og ann­arra áfanga­staða á Spáni í sumar.

Ef eftirspurn verður fyrir hendi er mögulegt að Icelandair bjóði ferðir til Kanarí og Tenerife í sumar.
Ef eft­ir­spurn verður fyrir hendi er mögu­legt að Icelandair bjóði ferðir til Kanarí og Tenerife í sumar. Mynd: Pexels

Icelandair er eina flug­fé­lagið sem flýgur reglu­lega með far­þega til og frá land­inu í augna­blik­inu. Áhersla félags­ins, í sam­starfi við stjórn­völd, er að halda uppi lág­marks flug­sam­göngum. Núna er flogið með far­þega til Boston, London og Stokk­hólms og er flug­á­ætl­unin upp­færð viku fram í tím­ann, segir Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair.

„Ferða­bönn eru í gildi víða en við fylgj­umst vel með þróun mála á öllum okkar áfanga­stöðum,“ segir hún. Enn ríki mikil óvissa um næstu skref „en við von­umst auð­vitað til að geta hafið dag­legt flug til lyk­ilá­fanga­staða eftir að landa­mæri Íslands verða opnuð 15. júní en eft­ir­spurnin mun ráða för.“ Segir hún Icelandair þá sjá fyrir sér áfanga­staði eins og Kaup­manna­höfn, Ósló, Frank­furt og Berlín. „Þetta er þó allt háð eft­ir­spurn en við erum til­búin og getum brugð­ist hratt við um leið og eft­ir­spurn tekur við sér.“

Spánn er óðum að opn­ast og stjórn­völd þar hvetja ferða­menn til að koma. Ásdís Ýr segir þetta jákvæðar fréttir og að Icelandair reikni með að geta boðið flug til Spánar, t.d. Kanarí og Tenerife í sumar. „Svo erum við sífellt að meta stöð­una hvað alla okkar áfanga­staði varðar.“

Sem stendur segir hún ekki verið að skoða nýja áfanga­staði með til­liti til þess hver staðan á far­aldri kór­ónu­veirunnar er í hverju landi. Fyrst og fremst sé verið að ein­beita sér að þeim áfanga­stöðum sem þegar eru í leiða­kerfi Icelandair. „Við stöndum enn frammi fyrir miklum ferða­tak­mörk­unum í heim­inum. Ferðalög milli landa munu fara hægt af stað aftur en von­andi mun áhugi og ferða­vilji aukast jafnt og þétt þegar á líður.“

[links]Icelandair finnur að sögn Ásdísar „tví­mæla­laust“ fyrir áhuga erlendra ferða­manna á að koma til Íslands. „Við höfum hér mikla víð­áttu og fal­lega nátt­úru sem er lík­legt að fólk sæki í þegar þessu ástandi lýkur fremur en að ferð­ast til stór­borga. Þá hefur íslenskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum tek­ist vel að ná tökum á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum hér á landi og það hefur einnig áhrif.“

Ekkert far­þega­flug er nú um stundir farið milli landa á vegum Air Iceland Connect en flogið er með frakt. Spurð hvort til greina komi að bjóða upp á far­þega­flug frá Íslandi til Græn­lands og Færeyja sem virð­ast laus við kór­ónu­veiruna bendir Ásdís á að landa­mæri Græn­lands verði lokuð til 15. Júní og að eftir það verði þau opnuð en með miklum tak­mörk­unum. Ólíklegt sé því að far­þega­flug þangað hefj­ist á næst­unni. Air Iceland Connect hefur ekki flogið í áætl­un­ar­flugi til Færeyja en verið í sam­starfi við fær­eyska flug­fé­lagið Atlantic Airways í því sam­bandi.

Ein­hverjar vikur eru þó enn í að mögu­leiki verði á flugi milli Íslands og Færeyja því landa­mæri Færeyja verða lokuð til að minnsta kosti 30. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár