Órói í stjórnmálum haggar varla fylgi stjórnmálablokka

Meiri­hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar mælist nú með meira fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir þrír, frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir hafa sýnt mik­inn stöð­ug­leika í könn­unum um langt skeið og fylgi Mið­flokks­ins hagg­ast varla þrátt fyrir mikla fyr­ir­ferð.

Þrátt fyrir erf­iðar og óvenju­legar þing­loka­við­ræður, mál­þóf og afgreiðslu nokk­urra mála þar sem tek­ist hefur verið á um grund­vall­ar­mál­efni þá virð­ist stöð­ug­leiki ríkja í íslenskum stjórn­málum. Fjöl­flokka­kerfi, þar sem átta til níu flokkar hið minnsta, keppa um hylli kjós­enda hefur fest sig í sessi og blokkir sem skil­grein­ast að mestu eftir frjáls­lyndi og íhalds­semi farnar að mynd­ast innan þess kerfis. Fylgi flokka virð­ist, að minnsta kosti und­an­farna mán­uði, fyrst og síð­ast fær­ast til innan slíkra blokka.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fengu sam­tals 52,8 pró­sent atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum. Þeir fengu umtals­verðan byr í seglin fyrstu mán­uð­ina eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var mynduð í lok nóv­em­ber 2017. Fram á vor 2018 var stuðn­ingur við hana yfir 50 pró­sent og sam­an­lagt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks að jafn­aði líka.

[adspot]Síð­ast­liðið rúmt ár hefur þó hægt og bít­andi fjarað undan stuðn­ingnum og hann mælist nú 40,2 pró­sent. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja hefur auk þess færst frá því að vera í kringum 50 pró­sent í að vera um og rétt yfir 40 pró­sent. Í nýj­ustu könnun MMR mæld­ist það 41,1 pró­sent, eða 11,7 pró­sentu­stigum lægra en í síð­ustu kosn­ingum. Það þýðir að fylgi stjórn­ar­flokk­anna hefur minnkað um rúm 22 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu.

Athygli vekur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist ekki vera að tapa neinu fylgi á átökum innan hans vegna þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða, en fjöl­margir fyr­ir­ferða­miklir flokks­menn hafa gagn­rýnt afstöðu flokks­ins í mál­inu harð­lega á opin­berum vett­vangi. Hinir tveir stjórn­ar­flokk­arnir, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, eru hins vegar að tapa umtals­verðu fylgi milli kann­ana.

Stóra andstaðan með meira fylgi en ríkisstjórnin

Í samn­inga­við­ræðum um þing­lok und­an­farnar vikur hefur rík­is­stjórnin þurft að semja við tvær mis­mun­andi stjórn­ar­and­stöður. Önnur hefur sam­an­staðið af Sam­fylk­ingu, Pírötum, Viðreisn og Flokki fólks­ins. Síð­ast­nefndi flokk­ur­inn er reyndar hug­mynda­fræði ólíkur þremur fyrst­nefndu og oft með and­stæðar mein­ingar í grund­vall­ar­málum. Það sást ágæt­lega til að mynda þegar kosið var um að lengja heim­ilt þung­un­ar­rof til 22 viku með­göngu og í afstöðu til þriðja orku­pakk­ans. Þessir fjórir flokkar mæld­ust með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír í nýj­ustu könnun MMR, eða 42,5 pró­sent fylgi.

Séu þeir þrír frjáls­lyndu miðju­flokkar – Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn – sem starfa saman í meiri­hluta­sam­starfi í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, starfa þétt saman í stjórn­ar­and­stöðu á þingi og vilji er til staðar á meðal for­ystu­manna þeirra um að mynda grunn að næstu rík­is­stjórn, þá mælist sam­an­lagt fylgi þeirra 38,3 pró­sent, eða rúm­lega tíu pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ingum. Fylgi þess­ara þriggja flokka hefur því auk­ist um tæp 37 pró­sent það sem af er kjör­tíma­bili.

Ef nið­ur­staða kosn­inga yrði í sam­ræmi við nýj­ustu könnun MMR myndu þessir flokkar nær örugg­lega geta myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum og end­ur­tekið þar með mynstrið sem er til staðar í Reykja­vík, jafn­vel þótt slík rík­is­stjórn næði ekki að vera með meiri­hluta atkvæða á bak­við sig.

Mikið dautt fylgi eins og er

Ástæðu þess er meðal ann­ars að finna í því að hvorki Sós­í­alista­flokkur Íslands (4,4 pró­sent fylgi) né Flokkur fólks­ins (4,2 pró­sent fylgi) næði að kljúfa fimm pró­sent þrösk­uld­inn að óbreyttu. Auk þess segj­ast 1,3 pró­sent aðspurðra í nýj­ustu könnun MMR að þeir myndu kjósa aðra flokka en þá níu sem annað hvort eiga sæti á Alþingi eða eru nálægt því að mæl­ast með mann þar inni. Sam­an­lagt myndu því tæp­lega tíu pró­sent atkvæða falla niður dauð ef nið­ur­staða kosn­inga yrði í sam­ræmi við könnun á fylgi flokka nú í júní.

[adspot]Þetta kann þó að breyt­ast og báðir þessir flokkar hafa sýnt að þeir geti hækkað sig skarpt á loka­metrum kosn­inga­bar­áttu á meðan að sér­stak­lega Sam­fylk­ingin og Píratar hafa til­hneig­ingu til að fá minna upp úr kjör­köss­unum en kann­anir bentu til.

Miðflokkur haggast varla

Mið­flokk­ur­inn er sá flokkur sem mesta athygli hefur fengið á stjórn­mála­svið­inu und­an­farin miss­eri. Flokk­ur­inn hefur staðið einn fyrir for­dæma­lausu mál­þófi vegna þriðja orku­pakk­ans og nú er umræða vegna hans orðin sú lengsta í þing­sög­unni. Það er merki­legt í ljósi þess að sex flokkar, með 52 af 63 þing­mönnum, styðja inn­leið­ingu hans.

Mið­flokk­ur­inn virð­ist einnig ætla að skerpa á íhalds­samri sér­stöku sinni í ýmsum öðrum málum. Hann lýsti til að mynda yfir and­stöðu í málum eins og breyt­ingum á lögum um þung­un­ar­rof, gegn til­urð ráð­gjafa­stofu inn­flytj­enda, hlut­leysi gagn­vart frum­varpi um lækkun virð­is­auka­skatts á tíð­ar­vörur og nú síð­ast gerði hann veður út af frum­varpi um kyn­rænt sjálf­ræði þegar verið var að semja um þing­lok. Ekkert af þessu virð­ist vera að skila flokknum neinni fylg­is­aukn­ingu og þvert á móti skreppur fylgið aðeins saman milli kann­ana, þótt vart sé um mark­tæka breyt­ingu að ræða. Alls segj­ast 10,6 pró­sent kjós­enda fylgja Mið­flokknum að málum sem er aðeins minna en í síð­ustu kosn­ingum þegar flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða.

Sá flokkur sem stendur hug­mynda­fræði­lega næst Mið­flokknum er Flokkur fólks­ins, þótt Klaust­ur­málið og eft­ir­köst þess hafi lík­ast til gert sam­starf þeirra á milli ómögu­legt. Sam­an­lagt fylgi þeirra tveggja mælist nú 14,8 pró­sent en var 17,8 pró­sent í kosn­ing­unum í októ­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár