Hrædd um að almenningur bíði eftir bóluefni sem töfralausn

Kate Bingham, sem leiðir starfs­hóp breskra stjórn­valda sem ætlað er að styðja við þróun og fram­leiðslu bólu­efnis gegn COVID-19, seg­ist ekki bjart­sýn á það tak­ist að þróa bólu­efni sem veitir var­an­legt ónæmi gegn nýju kór­ónu­veirunni.

Kate Bingham, sem leiðir starfs­hóp breskra stjórn­valda um þróun og fram­leiðslu bólu­efnis gegn kór­ónu­veirunni, hefur tak­mark­aðar vonir um að þau bólu­efni sem verið er að þróa og hafa gefið til­efni til bjart­sýni að und­an­förnu muni verða „töfra­lausn“. Ólíklegt sé að bólu­efni líti dags­ins ljós sem veiti var­an­legt ónæmi gegn COVID-19.[links]

Þetta segir Bingham í við­tali við breska blaðið Financial Times. Hennar mat er að lík­legra sé að bólu­efni finn­ist sem veiti ónæmi tíma­bundið, til dæmis eitt ár í senn, eða þá að bólu­efni komi á markað sem veiti í raun ekki ónæmi heldur dragi úr áhrifum sjúk­dóms­ins sem kór­ónu­veiran veldur.

Bingham leiðir þá vinnu sem á sér stað á vegum breskra stjórn­valda um að styðja við þróun, fram­leiðslu og dreif­ingu bólu­efnis þar inn­an­lands. Hún segir Financial Times að hún sé kvíðin yfir því að fólk telji að bólu­efnið verði töfra­lausn, en í því sam­hengi notar hún orðið silf­ur­kúla (e. sil­ver bul­let) til þess að lýsa því sem hún á við, en það orð­færi er notað á ensku yfir ein­faldar töfra­lausnir á flóknum vanda­málum.

„Það mun lík­lega ekki verða,“ segir hún, og telur lík­legra að komi bólu­efni á markað séu líkur á að það þurfi að end­ur­bólu­setja fólk árlega til þess að halda ónæm­inu virku.

Eins og kom fram í sam­an­tekt um þróun bólu­efna hér á Kjarn­anum í gær hafa nýlegar rann­sóknir á þeim sem smit­ast hafa af COVID-19 sýnt fram á að styrkur mótefna sem ónæm­is­kerfið myndar gegn kór­ónu­veirunni minnkar með tím­anum.

[adspot]

Þetta hefur dregið úr vonum um að hægt verði að þróa bólu­efni sem veiti lang­tíma­vörn gegn veirunni, þrátt fyrir að sér­fræð­ingar séu að reyna sitt besta. Bingham segir þó að „við verðum að sætta okkur við“ að þegar allt komi til alls verði ef til vill ein­ungis hægt að draga úr ein­kennum veiru­sýk­ing­ar­innar.

Hún bendir á að aldrei fyrr hafi tek­ist að þróa bólu­efni gegn nokk­urri kór­ónu­veiru, en sú nýja sem hefur verið á flugi um heims­byggð­ina und­an­farið hálft ár, er ein af alls sjö kór­ónu­veirum sem borist geta í menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár