Minna stress núna en í mars og apríl

Hjúkr­unar- og dval­ar­heim­ili lands­ins þurfa á ný að biðja starfs­menn og aðstand­endur um að gæta sér­stakrar var­úðar, til að forða því að smit ber­ist inn á heim­ilin. For­stjóri Grundar segir minna stress núna en í mars og apríl, þar sem ógnin er þekkt.

Sending af nýjum stólum barst á Grund í gær. Nú taka auknar varúðarráðstafanir við þar og á öðrum hjúkrunar- og dvalarheimilum landsins.
Sending af nýjum stólum barst á Grund í gær. Nú taka auknar var­úð­ar­ráð­staf­anir við þar og á öðrum hjúkr­unar- og dval­ar­heim­ilum lands­ins. Mynd: Grund

Hertar sótt­varna­reglur hafa tekið gildi í sam­fé­lag­inu til tveggja vikna, vegna hópsmits á suð­vest­ur­horn­inu sem virð­ist teygja anga sína víða, miðað við það að níu af þeim ell­efu inn­an­lands­smitum sem greindust á fimmtu­dag voru hjá ein­stak­lingum sem ekki voru í sótt­kví. Hjúkr­unar- og dval­ar­heim­ili lands­ins, þar sem margir af þeim sem sem við­kvæm­astir eru fyrir áhrifum kór­ónu­veirunnar búa, hafa gripið til auk­inna var­úð­ar­ráð­staf­ana.

Gísli Páll Pálsson er for­stjóri Grund­ar­heim­il­anna, sem reka auk Grundar dval­ar­heim­ilið Ás í Hvera­gerði og Mörkina í Reykja­vík. Hann ræddi við Kjarnann í gær og sagði að fyrr í vik­unni hefði verið skerpt á reglum um heim­sóknir á Grund­ar­heim­il­unum og unnið yrði í sam­ræmi við leið­bein­ingar frá emb­ætti land­læknis og sótt­varna­lækni í fram­hald­inu. Um 400 íbúar eru á heim­il­unum þremur og starfs­menn­irnir eru alls um 700 tals­ins.

Starfsfólk beðið um að gæta varúðar

Starfs­fólk hjúkr­un­ar­heim­ila, rétt eins og annað heil­brigð­is­starfs­fólk sem vinnur í návígi við ein­stak­linga sem eru við­kvæmir fyrir veirunni, leggur mikið á sig til þess að forða því eins og kostur er að smit ber­ist inn á vinnu­stað­inn. Það hefur þegar verið beðið um að gæta sér­stakrar var­úðar á ný, eftir að hafa ef til vill getað andað rólegar fyrr í sumar, þegar veiran virt­ist víð­fjarri.

[adspot]

Þetta kom meðal ann­ars fram í máli Ölmu Möller land­læknis á upp­lýs­inga­fundi í gær, en hún sagði að ákveðið hefði verið að reyna að sjá til þess starfs­fólk hjúkr­un­ar­heim­ila færi í tveggja vikna sótt­kví eftir heim­komu erlendis frá og að starfs­menn og aðstand­endur þyrfti auk þess að sýna ítr­ustu smit­gát.[links]

„Það gerði allt okkar starfs­fólk, ekki bara Grund­ar­heim­il­anna heldur hjúkr­un­ar­heim­ila lands­ins, það setti sig í ákveð­inn gír þarna í mars, apríl og maí, sinnti sinni vinnu og gerði lítið annað. Við erum afskap­lega þakk­lát fyrir það. Ég efast ekk­ert um að það sama verði uppi á ten­ingnum nú,“ segir Gísli og bætir við að í ljós eigi eftir að koma hversu lang­vinnt þetta tíma­bil verður nú.

Gísli segir að starfs­fólk hjúkr­un­ar­heim­ila hafi lagt mikið á sig til þess að haga einka­lífi sínu með ákveðnum hætti utan vinnu á meðan veiran var á flugi hér á vor­mán­uðum, þrátt fyrir að ekki hafi verið kvöð eða skylda á fólki um að haga sér á ákveð­inn máta.

„Ég held að fólk finni til sið­ferði­legrar skyldu. En það er ekk­ert verið að tala um að starfs­fólk sé í sótt­kví og hitti engan, en fólk er kannski ekki að fara á djam­mið og kyssa og knúsa alla sem þeir hitta á Lauga­veg­inum. Það er almenn skyn­semi, frekar, sem málið snýst um,“ segir Gísli.

Hann segir, og und­ir­strikar að með því sé hann ekki að gera lítið úr þeim aðstæðum sem nú eru uppi, að fólk sé miklu und­ir­bún­ara núna.

„Það var meira stress fannst mér, í mars og apríl, þegar fólk vissi ekk­ert hvað þetta var eig­in­lega,“ segir Gísli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár