Alma: Þessi veira er sjálfri sér samkvæm

„Skila­boðin eru þau að þetta er mjög alvar­legur far­aldur og þetta eru mjög alvar­leg veik­indi og þess vegna full ástæða til að grípa til þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til.“

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

„Þetta er ný veira og COVID-19 er nýr sjúk­dómur sem okkur vatnar meiri upp­lýs­ingar um,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „En það er samt allur heim­ur­inn að hjálp­ast að við að afla þeirra upp­lýs­inga.“

Hún tók sem dæmi átta klukku­stunda langan fjar­fund evr­ópskra gjör­gæslu­lækna á laug­ar­dag­inn. „Þar kom fram að víð­ast hvar eins og hér er gríð­ar­lega aukin þörf fyrir gjör­gæslu­með­ferð og öll lönd að vinna í því að fjölga gjör­gæslu­plássum.“

Alma sagði að fyrst og síð­ast sner­ist það um mann­skap þó að tæki og birgðir skipti líka miklu máli. Á fund­inum kom líka fram að „þessi veira er sjálfri sér sam­kvæm,“ eins og Alma orð­aði það. „Munstur veik­inda til dæmis á Ítalíu er svipað og það var í Kína.“

Enn er það svo að 80% þeirra sem grein­ast eru með lítil ein­kenni, 15% eru veikir, mis­mun­andi mikið þó en 5% eru alvar­lega veikir.

[adspot]

Alma benti svo aftur á að það væru vís­bend­ingar frá Norð­ur­lönd­unum um að það kunni að vera að fleiri yngri, þ.e. yfir fer­tugu, séu að veikj­ast og leggj­ast inn á gjör­gæslu en í fyrstu var talið. Það er hins vegar enn óstað­fest.

„Skila­boðin eru þau að þetta er mjög alvar­legur far­aldur og þetta eru mjög alvar­leg veik­indi og þess vegna full ástæða til að grípa til þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til og full ástæða til að hlýða fyr­ir­mælum og leggja sitt af mörkum.“

[links]Aðgerð­irnar hér á landi miða að því að hægja á far­aldr­inum og hefta útbreiðslu hans. „Því við ráðum við að fá marga veika inn á gjör­gæslu yfir lengri tíma en ekki ef þeir kæmu allir á örfáum dögum.“

Alma sagði það góðar fréttir að hér á landi væri far­ald­ur­inn ekki í veld­is­vexti eins og víða ann­ars staðar. „Við bindum vissar vonir við það að með því að teygja á far­aldr­inum að þá vinn­ist tími til að þróa ein­hverja með­ferð. Það er þegar fjöldi lyfja til skoð­unar og þrjú hund­ruð rann­sóknir í gangi í heim­inum.“

Eins og stendur snýst með­ferðin að sögn Ölmu fyrst og fremst um almenna gjör­gæslu­með­ferð, þ.e. að styðja við starf­semi líf­færa með tækjum og lyfjum.“

Mikilvægt að vernda konur og starfsfólk

Alma ítrek­aði á fund­inum að það væri ekk­ert sem benti til að COVID-19 legð­ist harðar á óléttar konur en aðra. Gripið hafi verið til margra aðgerða á sjúkra­húsum lands­ins hvað varðar mæðra­vernd, fæð­ingar og sæng­ur­legur. „Við viljum auð­vitað vernda kon­urnar eins og aðra en líka þá þarf meiri mann­afla til að sinna fæð­andi konu sem er með COVID. Einnig er líka gríð­ar­lega mik­il­vægt að vernda þann fámenna hóp starfs­manna sem að sinnir þess­ari sér­hæfðu þjón­ustu.“

Hún sagði sér­fræð­inga fylgj­ast mjög vel með þró­un­inni hvað þetta varðar og að mjög fljót­lega, jafn­vel á morgun, verði hópur þeirra kall­aður saman til ráða­gerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár